Skólastjóri Breiðholtsskóla fer ekki með rétt mál

Faðir sem hugnast ekki hinsegin fræðsla í 6. bekk hjá barni sínu sendi stjóranum póst. Hann vildi áróður hinsegin hreyfinga niður af veggjum og vildi ekki að barnið væri baðað í hugmyndafræði sem á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Umdeild hugmyndafræði, pólitísk og ekkert vísindalegt á bak við hana.

Faðirinn bendir á að hann kæri sig ekki um að þetta sé í boði fyrir sitt barn. Vill losa það undan svona áróðri í grunnskóla sem er skylda fyrir barnið.

Skólastjórinn bendir réttilega á að kyn og kynímynd er ekki það sama. Stjórinn heldur líka fram að trans Samtökin 78 hafi ekkert með þetta að gera. Samt kenna kennarar hans eftir þeirra hugmyndum og fá börnin til að hengja upp á vegg orð sem kemur úr smiðju trans Samtakanna 78. Hvernig má það vera ef umrædd samtök koma hvergi að. Í Drammen er barist gegn sömu hugmyndum, þar vita kennarar sínu viti.

Kennarar bæta um betur í skilaboðum til fóðursins. Þeir segja ,, Jafnrétti er einn af grunnþáttum menntunar og undir jafnrétti fellur m.a. kyn og kynhneigð. Í kennslustofu 6. bekkjar eru orð trans Samtaka 78 uppi á vegg. Það ríkir engin sátt í samfélaginu um að nota orð sem koma úr smiðju trans Samtakanna 78. Fornöfn sem fámennur hópur vill taka upp um sjálfsímynd sína en engum ber skylda að nota. Ef vísa á til jafnréttis hlýtur það að ganga í báðar áttir, sér í lagi þegar umdeild pólitísk hugmyndafræði er annars vegar.

Ef stjórnandi Breiðholtsskóla og kennarar hans ætla að vísa í mannréttindastefnu stjórnvalda, þá er gott að benda á að það fylgja engar haldbærar skilgreiningar yfir kynvitund, kynímynd og önnur huglæg hugtök og sjálfsgreiningar. Það er hins vegar reynt að bera það á borð eins og um staðreynd sé að ræða. Valdaójafnvægi ríkir í kennslustofu og barn í 6. bekk hefur hvorki getu né þor til að mótmæla kennara sínum þegar þessi umdeilda hugmyndafræði er kennd. Því má orða þetta eins og faðirinn gerði, það er verið að troða þessu í börnin.

Stjórnendur í menntamálum hafa lagt sitt að mörkum til að mjög umdeild hugmyndafræði um hinsegin kynjaviðhorf skjóti rótum í menntakerfi barna okkar. Sama með stjórnvöld. Sömu aðilar halda fram að þeir sem séu andvígir þessari hugmyndafræði, að hluta eða öllu leyti, séu fáfróðir og fordómafullir öfgamenn. Því miður hafa sumir kennarar hoppað á sama vagn. Meira að segja foreldra fá að heyra þetta um sig. Skólastjóri Breiðholtsskóla hefur ekki sagt föðurnum það berum orðum en lesa má á milli línanna viðhorf skólastjórans.

Þó svo að einhverjir semji ný orð í aumkunarverðri tilraun sinni til að raungera ranghugmyndir sínar um kyn mannfólksins þá gefur það engum leyfi til að þröngva því upp börn almennra borgara sem kæra sig ekki um það.

Ekki vantar hrokann í skólastjórann þegar hann sendir föðurnum skilaboð, sjá neðar. Er það ætlan skólastjórans að þagga niður í foreldri sem sinnir skyldu sinni sem foreldri? Ætli skólastjóri Breiðholtsskóla viti ekki að trans málefnið snýst um miklu meira en frelsi, ást og fjölbreytileika. Að auki má kenna það án þess að fræðsluefni trans Samtaka 78 er notað í skólum og þær áherslur sem samtökin nota í sínum málflutningi. Maður spyr hafa ekki öll börn sama rétt? Gengur fagleg forysta ekki út að halda úti skóla án aðgreiningar. Eiga börn og fjölskyldur þeirra sem hugnast ekki óvísindaleg pólitísk hugmyndafræði, sem mjög fáir aðhyllast, engan rétt í Breiðholtsskóla?

skólastjóri breiðholtskóla


Kennarar í Noregi mega vera stoltir – annað en hér á landi

Í Noregi hafa kennarar stigið fram til að mótmæla þeirri trú trans hreyfinga að kyn sé breytanlegt og mörg. Tormod Evensen hefur látið í sér heyra m.a. skrifað nokkrar greinar, haldið fyrirlestra og farið í viðtöl.

Í Noregi hafa skólar tekið þátt í hinsegin hátíð og flaggað trans fánanum. Margir kennarar mótmæla þátttöku skólabarna í slíkri hátíð og benda á að ekki þurfi hinsegin hátíð til að elska og virða fjölbreytileikann. Tormod segir eins og satt er, kynin eru tvö. Hann hefur haldið fyrirlestra fyrir foreldrafélagið sem setur sig upp á móti trans kennslu með námsefni FRI (systursamtök trans Samtaka 78) að leiðarljósi. Skóli í Drammen gekk svo langt að neita honum um húsnæði þó FRI hafi fengið sal hjá þeim fyrir fyrirlestur. Meðvirknin alger, sjá hér.

Erna Solberg og Thomas Larsen Sola, stjórnendur í leik- og skólamálum í sveitarfélaginu Drammen, reyna að leggja lok á tjáningarfrelsi kennara með yfirlýsingum sínum. Með því að halda fram, að skólastjórnendur eigi að ákveða hvort kennarar taki þátt í flöggun trans fánans og að skólinn sé ekki hlaðin gildum hinsegin hreyfingarinnar eru kennarar beittir siðferðilegum þrýstingi af vinnuveitendum. Sérstaklega þeir sem vilja ekki taka þátt í hinsegin gleðinni. Með fullyrðingum vinnuveitenda er litið svo á að kennarar sem hafna þátttöku brjóti í bága við grunngildi námskrárinnar. Hér á landi var svipað reynt, rifjum það upp hérhér, hér og hér.

Kennarar standa með sínum manni

Við erum mörg sem stöndum saman í þessu máli (líka nafnlaust). Við styðjum hugrakkan kennara sem þorir að segja skoðun sína á fána og hátíð sem inniheldur miklu meira en fögur orð stjórnmálamanna segja kennararnir.

Tormod Evensen hefur víðtækan stuðning við skoðun sína meðal almennings. Við ætlumst til þess að foreldrar og kennarar séu teknir alvarlega segja kennarar. Sjá hér. Nú herja transaðgerðasinnar á hann og öðrum kennurum misbýður.

Í blaðagrein þar sem fjallað er um málið segir, það er ekki að ástæðulausu að við sem kennarar eigum að vanda áherslurnar um pólitísk málefni eins og fjölbreytileika kyns og kynhneigðar. Hugtökin er ekki einu sinni að finna í námskránni. Lesið má greinina hér.

Kennarinn fær stuðning samstarfsfólks sem segja:

Við erum margir kennararnir sem stöndum með Tormod Evensen en hann hefur fundið fyrir hve krefjandi það er að fara gegn hinsegin málefnum í skólanum.

Að leggja lok á umræðu um hinsegin málefnin og göngu takmarkar rétt kennara til að tjá sig um efni sem fjallar um miklu meira en frelsi, ást og fjölbreytileika. Heft tjáningarfrelsi þýðir að samviska og persónuleg sannfæring kennara er ekki tekin alvarlega, en það ber skólanum að gera, taka þá alvarlega. Það verður að vera svigrúm til að getað tjáð sig á gagnrýninn hátt um hinsegin málefni án þess að mönnum séu gerðar upp skoðanir.

Kennararnir lögðu nöfn sín með skrifunum.

Miriam Hetland Jørgensen, lærer,

Eden Abraham Paalgard, lærer,

Jarle Mong, lektor,

Ole Christian Vedvik, lærer,

Laila ÇaliÅŸkan Fitjar, lektor,

Malene Foss, lektor,

Anders Aamodt, lærer,

Mariann Frøysa, lærer,

Marit Eide, lærer,

Lesa má öll nöfnin undir greininni.


Arnar þór bendir á að forseti skipi ráðherra

Áhugavert spjall við forsetaframbjóðandann Arnar Þór Jónsson. Í spjallinu benti hann á skyldu forseta að skipa ráðherra. Margir hafa undrað sig á gjörningi Bjarna Ben. og Svandísar Svavarsdóttur, skipta bara um stól til að þagga niður í almúganum. Arnar benti á að í svona tilfelli gæti forsetinn samkvæmt lögum hafnað að skipa viðkomandi í ráðherraembætti. Sem sagt forseti getur sett stoppað fyrir svona spillingu eins og þjóðin hefur horft upp á með Katrínu Jakobsdóttur í broddi fylkingar. Hér má hlusta á spjallið frá 32.40.

Nú er að sjá hvort þeir sömu og gagnrýndu stólaskiptin eru tilbúnir í breytingar á Bessastöðum. Eru menn tilbúnir að kjósa forseta sem þorir að láta kné fylgja kviði. Arnar Þór er eini frambjóðandinn sem ég myndi treysta til að segja, stopp, hingað og ekki lengra gagnvart svona spillingu inni á þingi. Þarf þjóðin ekki þennan varnagla eða vill þjóðin meðvirkan forseta sem er eins og hvert annað skraut.

Menn þurfa hugarfarsbreytingu gagnvart forsetaembættinu. Arnar Þór benti á að hver tími kallar á nýjar áherslu. Hverju orði sannara hjá frambjóðandanum. Nú hefur þjóðin möguleika á að taka þátt í breytingum, velja þann sem getur veitt spilltum þingmönnum viðnám. Grípið tækifærið.


Stjórn Danska knattspyrnusambandsins úti á þekju

Lotte Ingerslev sem berst fyrir réttindum kvenna og stúlkna póstaði á síðuna sína transkoen.dk samskiptum sínum og annarra við upplýsingafulltrú DBU (Dansk bold union) á Twitter. DBU svarar til KSÍ.

DBU hefur breytt reglunum sínum til að þóknast trans fólki sem finnur þörf hjá sér að keppa með þvi kyni sem það telur sig tilheyra. Alltaf karlmaður í kvennaliði. Á Twitter þræði svaraði upplýsingafulltrúi DBU, Jeppe Rønnebæk Kongsbak. Seint og um síðir viðurkennir hann að stjórnin hafi tekið ákvarðanir fyrir félögin um málefni trans fólks í kjölfar ákvörðunar vinnuhóps sem í sat trans einstaklingur.

DBU sendi merkilegan spurningalista til foreldra drengja sem stunda fótbolta, um upplifun af kyni. Það kemur fram í blogginu að engir spurningarlistar hafi verið sendir til stúlkna. Foreldri stúlku spyr af hverju. Það spyr líka hvort stúlkurnar hafi ekkert um það að segja að drengir spili í kvennaboltanum. Nei stjórn DBU finnst það ekki, í það minnsta getur fulltrúinn ekki svarað af viti þegar hann er spurður. Stelpurnar eiga bara að láta þetta yfir sig ganga.

DBU hefur líka gefið út að þegar leitað er á fólki sem kemur á fótboltaleiki má óska eftir hvort kynið leiti á manni. Nema karlmenn, þeir mega ekki velja. En trans-kona, karlmaður sem skilgreinir sig sem konu, hefur valið. Fyrir sæmilega þekjandi einstakling hljómar þetta undarlega. Í alla staði. Upplýsingafulltrúinn hefur engin svör við þessu þegar einn Twitter notandi spyr hann.

Rúsínan í pylsuendanum er skýrsla sem DBU lét gera um trans einstaklinga í fótboltanum og vitnað er til. Þá virðist upplýsingafulltrúinn ekki alveg með á hreinu hvað stendur í skýrslunni. Eitt það óhuggulegasta sem þar stendur og er samþykkt af stjórn DBU er:

Athugið varðandi búningsklefa

Fólk er beðið að vera umburðarlynt gagnvart trans fólki, og þeim sem skilgreina sig öðruvísi, og búa ekki til þröskulda svo hægt sé að innlima þau án átaka í búningsklefana.

Allir eru beðnir um að leita lausna svo trans fólk og þeir sem skilgreina sig annað en mann eða konu upplifi sig velkomin. Mætti t.d. setja upp hengi sem viðkomandi gæti klætt sig úr og í.

Takið eftir, hvergi minnst á að konur og stúlkur hafi réttindi. Hvað með vellíðan stúlknanna, skiptir það máli. Eiga þær að sætta sig við að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, eða strákur, með líffærin undir sér noti kvennaklefa? Eða verður kvenkynið ekki spurt frekar en endranær þegar karlmenn vilja ná sínu fram? Einstaklingur af gagnstæðu kyni fari bara á bak við hengi. Þetta er knattspyrnusamband Danmerkur!

Lotte Ingerslev spyr réttmætra spurninga og finnst vanta svör við frá DBU.

,,Hvernig ,,trans kona" (þ.e. karlmaður) ætti að hreyfa sig á bak við hengi án þess að glæpur á sér stað (gæjur eða perraskapur - jafnvel gegn mjög ungum stúlkum) er erfitt að ímynda sér.

Hvernig á að forðast að henginu sé lyft (óvart eða viljandi), hefur enginn hefur tekið afstöðu til þess

Þú getur því fengið á tilfinninguna að DBU telji að það eigi ekki lengur að banna eigi gæjur og perraskap í Danmörku."

DBU skipaði Nadiu Jacobsen, trans einstakling, í vinnuhópinn sem kom með mótandi reglur um þátttöku trans og ,,kynlausu“ fólki í fótbolta.  Stjórn DBU styður tillögurnar einróma og hefur hrint þeim í framkvæmd.

Nadia Jacobsen, trans einstaklingurinn, sem situr í umræddum vinnuhópi höfðaði mál á hendur Lotte fyrir afstöðu hennar um ákvörðun stjórnarinnar og þeirri skoðun að gengið sé á rétt kvenna. Nadia notar sama stefið og við þekkjum hér heima, Lotte er trans fóbísk og allt er hatursorðræða sem hún segir.

Grunnskólakennarinn Ólafur Haukur Tómasson féll í sömu gryfju vegna greinar sem hann er ekki sammála. Hann segir: ,,…Neikvæð áhrif Samtakana 78 á börn og kemur fram í honum fóbískur áróður í garð trans barna“ Þessi grunnskólakennari bætti um betur og Samtökin 78. Allir þessir aðilar svara ekki málefnalega frekar en umrædd Nadia hjá DBU, en slá fram endurtekningunni um fordóma, hatursorðræðu og að lokum kæru. Virkar vel á almúgann. Ávallt án rökstuðnings.

Ég leyfi mér að grípa í orð Arnars Þórs sem eiga vel við þríeykið sem ég nefndi hér ofar þegar hann segir, feitletrun bloggara ,,…hitt allt of marga sem segjast ekki treysta sér til að tjá skoðun sína opinberlega, af ótta við ofsafengin viðbrögð þeirra sem telja sig hafa ,,réttari skoðanir". Þegar fólk er farið að ritskoða sjálft sig með þessum hætti erum við komin á háskalega braut sem beinist í átt frá lýðfrelsi og lýðræði.“

Þeir sem lesa dönsku geta lesið blogg Lotte hér. Bendi líka á gervigreindina, þýðir sæmilega þannig að maður nær inntaki bloggsins.


Kristnum börnum úthýst úr Smáraskóla í Kópavogi

Móðir sem hefur barist fyrir að kristin gildi barna hennar séu virt í Smáraskóla hefur ekkert orðið ágengt. Hún hefur þurft lögfræðing til að ræða við skólastjórnendur og fræðsluyfirvöld í Kópavogi. Menn gefa lítið fyrir málflutning hennar. Reyndar finnst þeim þetta vesen í henni og börnunum.

Sumt af hinsegin fræðunum ganga gegn kristnum gildum og það fer fyrir brjóstið á móðurinni að hugmyndafræðinni sé flaggað með þeim hætti sem gert er í Smáraskóla. Börnum hennar eru kennd fræði sem henni hugnast ekki og börnunum ekki heldur. Eins og alþjóð veit má ekki kenna kristinfræði í mörgum skólum og nemendur fá ekki að heimsækja kirkju.

Skólastjórnendur Smáraskóla hafa gengið svo langt að kæra móður til Barnaverndar þar sem hún tók börnin úr skólanum þangað til allur áróður yrði fjarlægður sem minnir á hinsegin fræðin. Skólinn gat ekki orðið við þeirri beiðni. Kennarar barnanna kenndu meira segja fornöfn hinsegin hugmyndafræðanna og létu hanga upp á vegg í skólastofunni. Þetta vildi móðirin niður enda fer það gegn lífsgildum viðkomandi.

Skólinn á að vera hlutlaust og öruggt svæði fyrir börn. Smáraskóli brást börnunum. Almenningur hlýtur að gera þá kröfu á leik- og grunnskóla að þeir virði hlutleysi en þvingi ekki umdeildri hugmyndafræði upp á börn. Foreldrum er frjálst að leggjast gegn hugmyndafræðslu fámenns hóps. Skólar eiga að virða það og fara eftir óskum foreldra.

Smáraskóli og fræðsluyfirvöld í Kópavogi hafa brugðist börnum og foreldrum þeirra. Barnaverndarnefnd í Kópavogi sömuleiðis. Auðvitað á barnaverndarnefnd að taka af skarið og minna skólastjórnendur á hlutleysi grunnskólans. Fagleg stjórnun skólans fær falleinkunn, vægt til orða tekið.

Börnin voru sett í annan skóla að beiðni barnanna sem gáfust upp í Smáraskóla. Fjölskyldan gafst upp á baráttunni við skólakerfið. Skólayfirvöld bentu henni á Suðurhlíðarskóla í Reykjavík. Sem sagt til að virða kristin gildi fjölskyldunnar áttu þau að fara í skóla í öðru bæjarfélag svo Smáraskóli gæti haldið áróðri sínum um hinsegin hugmyndafræðina áfram.

Smáraskóli úthýsti kristnum börnum og gildum þeirra fyrir trans hugmyndafræðina. Nemendur og foreldrar hafa ekki farið fram á að tákn kristinnar séu sýnileg öðrum nemendum.


Úthlutar sónar kyni?

Sú kjánalega orðanotkun ,,útdeila kyni/útdeilt kyn“ hefur náð mikil flugi hjá fólki sem hefur trans hugmyndafræðina að leiðarljósi. Hámenntað fólk á félagsvísindasviði lætur þetta meira að segja inn í rannsóknir sem það gerir. Háskólakennarar kenna að kyni sé deilt út og boða fagnaðarerindið hvar sem þeir geta. Margir úr hinum kennarastéttunum gera sig að sömu kjánum. Víða í bókum má sjá þessa snarvitlausu hugmynd sem ætluð er börnum.

Bloggara langar að spyrja, því langflestar konur fara í sónar og fá oft gefið upp hvort kynið barnið er, getur sónar úthlutað kyni? Ef já hvernig?

Ef sónar úthlutar ekki kyni gerir ljósmóðirin það þegar barnið er fætt? Þá langar bloggara að spyrja ljósmóðurstéttina, hvernig úthlutið þið kyni? Dragið þið upp úr hatti um leið og barnið fæðist hvort kynið afkvæmið er? Eru foreldar spurðir hvort kynið þeir vilja? Mega foreldrar ráða hvort barnið er stelpa eða strákur?

Ef ljósmæður deila ekki kyni gerir fæðingarlæknirinn það? Þá spyr bloggari. Hvernig ferð þú að því að útdeila kyni ágæti læknir. Gerir þú eins og ljósmóðirin, ert með hatt, kannski pípuhatt og dregur miða? Eða notar þú úllen, dúllen doft, kikki lani koff...þú ert strákur?

Ef ljósmóðir eða fæðingarlæknir deilir ekki út kyni gera foreldrarnir það þá? Bloggari spyr foreldra sem deila út kyni hvernig farið þið að. Eru þið með töfrasprota sem þið treystið á? Eða pendúl? Eða hattinn eða, eða, eða?

Kyn er ákvarðað í móðurkviði, litningar foreldranna sjá um það. Munum, XX og XY. Karlmaðurinn með sína litninga ákveður kynið. Enginn getur breytt því. Annað tveggja fæðist barnið strákur eða stelpa og því vita foreldrar hvort kynið þau hafa eignast. Enginn getur sér til um kyn barns.

Löngu tímabært að menn hætti að flagga þessari arfavitlausu hugmynd að börnum sé útdeilt kyni. Þekking fólks, vísindi og vitneskja er meiri en svo en að við getum hent fram hugmyndafræði sem er æðri líffræðinni. Hvað þá að halda svona þvælu á lofti í ræðu og riti.


Foreldrar verða að leiðrétta kennara

Komið er í ljós að til eru kennarar sem láta nemendur leiðrétta rétt skrifaða íslensku í ranga. Þeir gera það til að þóknast ímynduðum kynjum sem eru ekki til nema í hugum fólks. Um það eiga íslenskir nemendur ekki að læra, út á það gengur ekki málfræðin.

Á myndinni hér að neðan, sem er úr 9. bekk grunnskóla, eiga nemendur að breyta setningunum þannig að þær eigi við um öll kyn. Kennarastéttin er sett niður með svona fræðslu, rangri fræðslu, sem tengist hugmyndafræði trans hreyfinga. Fáir kennarar setja svartan blett á kennarastéttina.

Verði foreldrar varir við svona íslenskukennslu hjá börnum sínum verða þeir að leiðrétta kennarann og kvarta til stjórnenda. Foreldrar verða að passa upp á að kennarar fari með rétt mál í skólastofunni. Menn undrast að foreldrar mæti með lögfræðing á prófasýningar. Þegar kennurum er ekki einu sinni treystandi til að kenna rétt mál skil ég vel að foreldrar séu fullir grunsemda. Ekki það, langt gengið að mati bloggara að mæta með lögfræðing.

leiðrétta rétt mál

2

 

 

 

 

 

 

 

Nemendur eiga að læra rétt mál í grunnskóla ekki rangt mál. Foreldrar verða að vera á varðbergi gagnvart þeim kennurum sem stunda svona rangfærslur. Foreldrar bera ábyrgð á að barn gangi í skóla og það hlýtur að vera lágmarkskrafa hvers foreldri að í skólanum fari fram viðurkennd menntun. Rangfærslur á íslenskunni er ekki viðurkennd og stangast á við málfræðireglur. Einkaframtak kennara og hugmyndafræði.

Höskuldur Þráinsson segir á fyrirlestri um íslenskt mál:

,, Hvað ræður kyni kynbeygjanlegra orða í íslensku? Algengast er að kynbeygjanleg orð sýni samræmi í málfræðilegu kyni við nafnorð sem þau eiga við en þegar kynbeygjanleg orð eiga ekki við nein nafnorð og vísa ekki heldur í neina tiltekna einstaklinga er málfræðilegt karlkyn sjálfgefið og kynhlutlaust.“

Það er undarleg staða sé sú að foreldrar þurfi að hafa auga með að kennarar kenni rétta íslensku. Hér áður mátti ganga að því vísu og líka hve margir kennarar kenndu gott mál, talað og ritað. Nú er öldin önnur!

Hér er beinlínis kenndar rangar staðhæfingar, öll kyn. Það eru til þrjú kyn í málfræði og kennari í 9.bekk sem ekki veit það og reynir að breyta málfræðinni þarf endurmenntun.

kynusli

 

 


Skólar í Álasundi flagga ekki trans fánanum- samkvæmt bæjarstjóra

Mikið er ánægjulegt að lesa um bæjarstjóra sem virðir alla bæjarbúa. Eins og alþjóð veit er trans- fáninn fyrir hinsegin fólk, ekki hina, ekki homma, ekki lesbíur. Hefur ekkert með fjölbreytileikann að gera eins og skólastjórar og bæjarfulltrúar halda fram. Skilaboð til barna um að þau séu ekki nógu góð eins og þau eru.

Í Noregi eru er haldið upp á  gleðidaga (Pride), í júní. Þá hafa skólar flaggað trans fánanum en nú verður breyting á í Álasundi.

Skólastjórar fengu póst og í honum stendur, ,, "Skólar eiga að vera fyrir alla nemendur og unnið er að námi án aðgreiningar og fjölbreytileika alla daga allt árið. Að beiðni nokkurra hefur sveitarstjóri ákveðið að engum fánum verði flaggað við skólana í Álasundi í tengslum við gleðidagana (Pride) í ár. Flaggað verður við ráðhúsið og í miðborginni. Viðeigandi aðilar hafa fengið tilkynningu um ákvörðunina." Flaggað verður í ráðhúsinu fyrir þennan hóp. Hér má lesa um málið.

Þingmaðurinn Anette Trettenbergstuden bregst hart við og bendir á að fáninn sé merki fjölbreytileikans. Grundvallar mannréttindi. Bloggari er ekki sammála henni. Fáninn hefur ekkert með fjölbreytileikann að gera, hér er verið að flagga því að börn séu öðruvísi og við eigum að taka eftir þeim. Bæjar- eða landsfáninn er fyrir mannskapinn í hverjum skóla og bæjarfélag.

Blessuð börnin dregin í dilka sem skólafólk öllu jöfnu forðast með skólastefnunni ,,Skóli án aðgreiningar.“ Þegar börnum sem líður illa í eigin skinni eru annars vegar hugsar skólafólk öðruvísi, við skulum gefa öllum til kynna að þau eru ekki eins og við hin og hömpum því.

Hér má lesa stuðning stjórnmálamanns á þingi Norðmanna við ákvörðun bæjarstjórans í Álasundi. Hún segir eins og satt er að engin vísindi séu á bak við það sem Pride stendur fyrir. Hinsegin hreyfingin stendur fyrir að telja fólk trú um að maður geti skipt um kyn, stenst engin vísindaleg rök segir Jenny Klinge.


Arnar þór næsti forseti Íslands

Í þessu viðtali fjalla hjónin um þá þöggun sem hefur ríkt í samfélaginu. Hrafnhildur talar um að fólk þori hvorki að setja þumalinn upp né hjarta á færslur þó þeim hugnist það. Fólk óttast viðbrögð annarra.

Málflutningur Arnar hugnast mörgum. Hann talar um tjáningarfrelsið sem er mikilvægt í hverju samfélagi. Arnar hefur talað um málskotsréttinn sem er hverri þjóð mikilvægur ventill. Arnar hefur talað um að sá réttur verður ekki notaður í tíma og ótíma, en notaður sé þess þörf.

Einn sagði í athugasemdarkerfinu: ,, Forseti íslands stóð með Bretum í þorskastríðinu sem fræðimaður, þeir sem geta ekki staðið með fámennri þjóð í stríði við stórþjóðir um auðlindir eins og landhelgi, víðáttur, vatn, orku og aðrar nauðsynjar ættu að vera à eigin framfæri.“ Arnar Þór er ekki feiminn að láta það í ljós að hann standi með þjóðinni þegar þessir málaflokkar eru annars vegar.

Einar Scheving segir réttilega, ,, Í guðanna bænum ekki láta illgirni fárra einstaklinga hafa áhrif á skoðanir ykkar á Arnari eða í raun hverjum öðrum. Ef fólk vill puntudúkku á Bessastaði, þá er best að leita annað, en ef fólk vill að Forseti geti veitt spilltum ríkisstjórnum aðhald í veigamiklum málum - ekki síst varðandi afsal ákvarðana til keyptra alþjóðastofnanna - þá er Arnar góður kostur.“ Ótrúlegt að sjá fámennan hóp reyna að rýra mannorð og skoðanir Arnars Þórs.

Hér má hlusta á brot úr kappræðum á Stöð 2 þar sem Arnar stóð sig vel.

Treystum Arnari Þór, kjósum hann á Bessastaði fyrir land og þjóð. Hér má lesa um framboðið.


Ný menntastefna í Bretlandi

Norska blaðið Steigan.no segir frá nýjum leiðbeiningum í menntamálum í breskum skólum. Trans hugmyndafræðin verður sett á hilluna. Bloggari vonar að það verði til frambúðar. Slík fræðsla á ekkert erindi í skólakerfið. Ef svo þá í fyrsta lagi á unglingastigi.

Menntamálaráðherrann Gillian Keegan mun senda skólum skilaboð um breytta menntastefnu.

Nemendur munu læra að kynin séu tvö en ekki 72 eins og hugmyndafræðin hefur haldið fram segir hún við Sky News.

Síðast liðinn fimmtudag opinberaði Menntamálaráðuneytið drög að leiðbeiningum fyrir skólana um sambönd, kyn og heilsufræði. Kennarar í enskum skólum fá ekki að kenna börnum að þau geti breytt um kyn.

Ekki á að kenna börnum, burtséð frá aldri, um kynvitund sagði menntamálaráðherrann eftir að ný drög að leiðbeiningum um sambönd, kynlíf og heilsufræðslu voru birt. Drögin er afleiðing af áhyggjum vegna umdeildri kennslu í skólum um kyn. Í leiðbeiningunum kemur fram að kynfræðsla verði í fyrsta lagi kennd í fimmta bekk, þegar nemendur eru níu ára. 

Gillian Keegan, menntamálaráðherra, sagði í morgunverðarviðtali við BBC: ,,Líffræðilegt kyn er undirstaða sambanda, kynlífs og heilsufræðslu – ekki þessar umdeildu skoðanir."

Um það sem er nýtt í námskránni skrifar GOV.UK á Education Hub: ,,Við gerum okkur einnig ljóst að hugtakið kynvitund – sú tilfinning sem einstaklingur kann að hafa fyrir eigin kyni, hvort sem það er karl, kona eða fjöldi annarra flokka – er mjög umdeilt og ætti ekki að kenna.“

Þeir skrifa líka: ,,Í leiðbeiningum fyrir skólana er einnig að finna nýjan kafla um gagnsæi gagnvart foreldrum þar sem kemur skýrt fram að foreldrar eiga lagalegan rétt á að vita hvað börnum þeirra er kennt í heilsufræði og geta óskað eftir að fá að sjá fræðsluefnið.

J.K. Rowling hefur mætt mikilli andúð fyrir að segja að konur séu konur, ekki karlmenn sem skilgreina sig sem konur. Hér má lesa hennar orð.

Auk þess má lesa hér og hér.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband