31.12.2022 | 11:09
Stoppa upp í eigið gat
með þessum aðgerðum. Vitað er að leigufélög munu hækka leigu vegna aukins fasteignamatsins og því verður ríkið að stoppa upp í eigið gat. ,,Ríkisstjórnin kynnti þó nýverið að eignaskerðingarmörk í vaxtabótakerfinu muni hækka um 50 prósent í byrjun árs 2023, sem verður til þess að fleiri munu fá bætur en hefðu ella fengið eftir gildistöku nýja fasteignamatsins. Um er að ræða eina af stuðningsaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna nýgerðra kjarasamninga."
Almenningur hins vegar sem hefur ekki rétt á neinum bótum frá ríkinu situr uppi með töluverðan kostanað. Launahækkanir sem samið var um gera varla nokkuð en mæta þessum hækkunum sem ríkið ákveður. Katrín og Bjarni töluðu um að þetta væri nauðsynlegt til að hin ýmsu gjöld haldi verðlagi sínu. Var þeim jafn annt um persónuafsláttinn, hefur hann fylgt verðlagsþróun. Nei þau gleymdu því eins og sönnum stjórnmálamönnum sæmir.
Verðmat fasteigna hækkaði um 2.100 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Persónuafsláttur hækkar reyndar um 10,7% um áramótin til samræmis við verðlagsþróun.
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/12/28/Skattabreytingar-a-arinu-2023/
Guðmundur Ásgeirsson, 31.12.2022 kl. 14:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.