27.12.2022 | 13:10
Kæra á bílstjórann og fyrirtækið
fyrir að leggja ferðamenn í hættu þegar lögregla hefur lokað vegi. Vítaverð hegðun. Svona nokkuð á ekki að taka með léttúð. Íþyngjandi aðgerðir eru í góðu lagi. Björgunarsveitarmenn vinna þrekvirki við að koma fólki í skjól. Svona menn og fyrirtæki eiga vissulega að finna fyrir því að þeir lögðu fólk í mikla hættu. Viðurlög eiga að vera íþyngjandi til að aðrir forðist að gera slíkt hið sama. Hef enga samúð með bílstjóra eða fyrirtæki sem hegða sér svona.
Kallar eftir skýringum frá Hópbílum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fyrir hvaða lagabrot viltu að hann verði kærður?
jon (IP-tala skráð) 27.12.2022 kl. 17:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.