20.11.2022 | 15:04
Annað banaslysið vegna skutlu
og kemur sennilega fáum á óvart. Ekki spurning hvenær heldur hvort banaslys verði. Votta ættingjum samúð vegna fráfalls unga mannsins. Mikill missir.
Menn hafa bent á hættur sem fylgja skutlunum um helgar. Kannski er þörf að á endurskoðun. Taka þarf saman slys á skutlunum og alvarleika þeirra. Verra er þegar börn hafa aðgang að skutlunum og tvímenna á þær. Stundum skil ég ekki fjárráð barna. Hafa þau virkilega efni á að nota skutlur í tíma og ótíma. Á Akureyri sýnist mér það. Börn niður í 13 ára aldur.
Kemur fram í athugasemd hér neðar að þetta er annað banaslysið. Það fyrsta fór framhjá mér. Sorglegt. Lagaði færsluna í samræmi við betri vitund.
Athugasemdir
Þetta er annað banaslysið á skutlu hér á landi.
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 20.11.2022 kl. 17:16
Takk fyrir leiðréttinguna. Laga það í færslunni. Synd að heyra.
Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2022 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.