15.1.2022 | 16:45
Lítið hefur farið fyrir umræðunni
um ný lög vegna skipunar á dómurum. Í Kjarnanum má lesa um málið.
Þar segir nýdoktor í lögfræði:
,,Þetta kemur fram í umsögn Hauks Loga um málið. Þar gagnrýnir hann tvær breytingar sem lagt er til að verði gerðar á lögum og segir þær báðar til þess fallnar að auka um of völd dómarastéttarinnar til þess að hafa áhrif á hverjir verði skipaðir í embætti, sem aftur sé líklegt til þess að rýra traust almennings til þess hvernig dómarar eru skipaðir á Íslandi og þar með dómstóla."
Fram hefur komið í opinberri umræðu að dómarar telji sér engu að síður heimilt að gegna umfangsmiklum aukastörfum, en ýmsum þykir sú túlkun ganga í berhögg við lagabókstafinn. Það er því full ástæða til þess að skerpa á því sem þar stendur í 45. gr. dómstólalaga um aukastörf dómara og tilvalið væri að nýta tækifærið núna þegar verið er að leggja til ýmsar breytingar lögunum, segir í umsögn Hauks Loga."
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.