13.8.2019 | 09:59
Pattstaða hjá grunnskólakennurum
Eftir því sem ég best sé er pattstaða í kjaraviðræðum grunnskólakennara við sveitarfélögin. Grunnskólakennarar hafa ekki viðræðuáætlun en KÍ hefur það um sameiginleg málefni kennarastéttanna sem vinna hjá sveitarfélögunum. Stjórn Félags grunnskólakennarar bíður eftir að félagsdómur taki fyrir mál sem vísað var til þeirra...og biðin virðist endalaus. Samband sveitarfélaga sagði á heimasíðu sinni, fyrr í sumar, að þeir endurnýjuðu ekki viðræðuáætlun fyrr en félagsdómur hafi kveðið upp úrskurð. Eðlilegt ef dómur hefur áhrif á kjör grunnskólakennara.
Spurning hve langan tíma félagsdómur tekur fram að dómsafgreiðslu.
Kjaraviðræður komast á skrið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.