13.6.2018 | 17:38
Þetta mega grunnskólakennarar aldrei sætta sig við
Það er með ólíkindum að formaður Félags framhaldsskólakennara ætli grunnskólakennurum 7 ára nám til að kenna í framhaldsskóla. Í dag er grunnskólakennaramenntunin 5 ár og er jafn löng og flest allt nám sem framhaldsskólakennarar hafa með kennsluréttindanáminu.
Sótt er að grunnskólakennurum úr báðum áttum. Leikskólakennarar hafa barist fyrir leyfi til að kenna á yngsta stigi grunnskólans og ætli framhaldsskólakennari að teygja sig niður með almennu leyfi, ekki undanþágu, þá vilja þeir unglingastigið. Það segir sig sjálft að gangi þetta eftir verða það grunnskólakennarar sem sinna miðstiginu.
Grunnskólakennarar þurfa að standa vörð um réttindi sín, gagnvart öðrum kennarastéttum. Réttindi til grunnskólakennslu er með ýmsum hætti en er ekki kominn tími til að staldra við og skoða málið og ekki á þá leið sem formaður FF hvetur til.
Guðríður telur eðlilegt að grunnskólakennari taki 7 ára nám til að kenna í framhaldsskóla á meðan framhaldsskólakennarar láti 5 ár duga til að kenna í grunnskóla. Nei takk þetta mega grunnskólakennarar ekki gefa eftir á nokkurn hátt.
Fái leyfisbréf þvert á skólastig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Grunnskólakennarar þurfa líka að meðhöndla mikið að viðkvæmum persónugreinanlegum gögnum. Stuðningur Reykjavíkurborgar við þann þátt er til skammar - HVAR eru persónuverndafulltrúanir
Borgari (IP-tala skráð) 13.6.2018 kl. 21:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.