11.9.2016 | 11:56
Konur svari þessu og kjósa aðra flokka
Eina svarið við slöku gengi kvenna í prófkjöri Sjálfstæðismanna er að sniðganga flokkinn í þessum kosningum. Hins vegar verða þingkonur flokksins og aðrar konur að skoða hvað veldur að kvenþjóðinni sé í raun hafnað í Sjálfstæðisflokknum. Hafa þingkonur flokksins staðið sig vel, persónulega finnst mér það ekki. Mættu flokksbundnar konur í prófkjörið til að kjósa, hvert er hlutfall kosningaþátttöku kynjanna. Ekki það að kjósa konu bara til að kjósa konu kann ekki góðri lukku að stýra.
Mikilvægt að ESB gangi vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú liggur það fyrir að konur kusu ekki konur. Svo kusu líklega fleiri karlar í þessu prófkjöri. Að leggja til að sjálfstæðiskonur kjósi aðra flokka er algjört rugl og þær munu ekki gera það. Svo á auðvitað að virða niðurstöurnar.
Örn Johnson´43 (IP-tala skráð) 11.9.2016 kl. 12:22
Hjartanlega sammála að virða eigi niðurstöðurnar. En að kjósa annan flokk er í góðu lagi og sýna það að menn eru ekki á eitt sáttir með niðurstöuna, sýnist mönnum svo. Það er enginn flokkur svo heilagur að ekki megi bregða út af venjunni. Til að ákveðnir einstaklingar fái brautargengi þá þarf að mæta á kjörstað í prófkjörum, það er nokkuð ljóst.
Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 11.9.2016 kl. 14:57
Ég held að svarið við lélegri útkomu kvenna í prófkjörum sé að leita hjá konum sjálfum. Hjá þeim sem setið hafa á þingi fyrir flokka sína og eins hjá þeim sem kusu í prófkjörunum. Ég minni á að það er ekki bara hjá Sjálfstæðismönnum sem konum gekk illa, Ólína Þorvarðardóttir hjá Samfylkingunni, einn ötulasti þingmaður þeirra féll af lista í NV-kjördæmi.
Tómas Ibsen Halldórsson, 11.9.2016 kl. 16:36
Jú, rétt. Auðvitað þurfa konur að skoða hvað það er sem þær gera eða gera ekki sem fellur kjósendum vel/illa. Svo illa að þær fá ekki kjörgengi í alþingiskosningunum. Vil síður en svo kenna karlmönnunum um.
Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 11.9.2016 kl. 16:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.