1.10.2015 | 20:58
Að mínu mati óviðeigandi
Mér þykja magabolir óviðeigandi klæðnaður hjá börnum í grunnskóla. Þetta er ekki spurning hvað þeim finnst heldur skólasamfélaginu. Bolir þar sem brjóstaskorur eru sjáanlegar eru jafn óviðeigandi. Slíkur klæðnaður getur haft áhrif á blygðunarkennd samnema. Hafi foreldrar ekki dug í sér að banna börnum slíkan klæðnað á meðan þau eru í skólanum ættu skólastjórnendur að gera það.
Biðst afsökunar á athugasemdunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það sem upp úr stendur er fyrst og fremst aumingjaskapur skólastjórans.
Jón Garðar (IP-tala skráð) 2.10.2015 kl. 10:51
Búrka er málið, þá sjást engir naflar engar brjóstaskorur og bara ekki neitt.
Gísli Sigurðsson, 2.10.2015 kl. 15:50
Ég er algjörlega ósammála þessari færslu. Skólastjórnendur eiga ekkert með að skipta sér af klæðaburði nemenda, jafnvel þótt skólastjóri Háteigsskóla hafi fengið alls konar kynferðislegar hugsanir, sem eru ósæmandi fyrir mann í hans stöðu.
Mér finnst að skólastjórnendur og kennarar ættu frekar að einbeita sér að því sem þeim er borgað fyrir, þ.e. kennslunni sem að mínu mati hefur verið mjög léleg í þeim grunnskólum sem ég þekki til. Léleg, annars vegar vegna þekkingarleysi og lágs menntunarstigs kennaranna og hins vegar vegna rangrar forgangsröðunar á verkefnum og námsefni.
Pétur D. (IP-tala skráð) 3.10.2015 kl. 19:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.