Kemur ekki á óvart þegar Heiða Björg

er annars vegar og málefnið snýr aðallega að drengjum. Hef sjaldan sé jafn mikla andúð gagnvart karlkyninu og hjá Heiðu. Þarf ekki að rifja upp orð hennar í tengslum við forsjárlausa feður.

 

  1. ,,Varaformaður Samfylkingarinnar, Heiða Björg Hilmisdóttir ,,lækar“ færslu sem endar á orðunum ,,rústum þessum gaurum“ og aðra færslu þar sem kallað er eftir slúðri og níði um þá karlmenn sem voga sér að vera sýnilegir í #DaddyToo baráttunni. Þess ber að geta að Heiða Björg skráði sig í fésbókarhóp #DaddyToo gagngert til að njósna eða ,,spæja“ um mennina sem verið var að skipuleggja aðför að svo notuð séu hennar eigin orð. Hún afskráir sig svo síðar úr #DaddyToo hópnum og hefur um leið um það þau orð að henni þyki leitt að geta ekki haldið áfram að ,,spæja“ eins og hún orðar það."

 

Samfylkingin er vissulega fátæk af færu fólki ef Heiða er það eina sem hún getur boðið í svona embætti. 

Kemur mér heldur ekki á óvart að prófessor á Menntavísindasviði hafi látið þetta út úr sér, svo mikið fóru þættirnir fyrir brjósti á fólki í menntageiranum. ,,„Mér finnst al­veg glatað þegar pró­fess­or­ar á menntavís­inda­sviði segja þess­ar töl­ur úr lausi lofti gripn­ar, sem ég vissi reynd­ar, en hvað þá þegar formaður Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga seg­ir það líka og end­ar með því að blokka mig á Face­book.“


mbl.is Blokkaði aðstoðarskólastjóra sem krafðist svara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. mars 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband