Viðreisn hefur á að skipa leiðinlegum

stjórnmálamönnum. Sigmar er betri fréttamaður en þingmaður að mínu mati. Í upphafi hélt ég að Viðreisn myndi láta að sér kveða, var með nokkra öfluga menn. Eftir því sem árin líða finnst mér lítið til flokksins koma. Hanna Katrín er kapítuli fyrir sig. Gengdarlaust stríð hennar að koma foreldrum og fagfólki á bak við rimla með bælingarfumvarpinu vekur athygli mína og undrun. Sama með Þorbjörgu sem ég upplifi sem ,,tuðara", reyndar Sigmar líka. Hvað um það, kannski fellur þessi flokkur af þingi í næstu kosningum og tekur Pírata með sér. Fátt um fína drætti þar á bæ.


Bloggfærslur 22. nóvember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband