Ruv heggur í sama knérunn í málefnum flóttamanna

og sorglegt að hlusta á fréttamann Ruv í Silfrinu tyggja sömu tugguna. Af hverju talar hún ekki almennt um flóttamannamálin. Komið nóg af þessu rausi um það sem liðið er. Hvað með framtíðina, reglugerðirnar og annað sem Útlendingastofnun vinnur eftir. 

Að tala um að maðurinn hafi verið rifinn úr hjólastólnum er ofsögum sagt. Það fórnaði sér lögreglumaður til að taka hann í fangið og setja inn í bílinn. Þannig þurfa þeir sem hafa ekki bíl sem hentar hjólastólum að flytja fólkið sitt. Engin nýlunda. 

Nóg komið af þessu flóttamannamáli. Það talar enginn um af hverju þetta fólk fór ekki þegjandi og hljóðalaust þegar þeim var hafnað. 

Helga Vala í Samfylkingunni og Magnús Norðdal Pírati reka lögfræðiskrifstofur sem hjálpar þessu fólki á kostnað ríkisins. Eru hagsmunaárekstrar ekki of mikilir hjá þeim. 


Bloggfærslur 13. nóvember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband