Við sitjum uppi með þá

Þjóðin situr uppi með svona fólk á þingi. Kann hvorki að skammast sín hvað þá að taka siðferðilegum afleiðingum gjörða sinna. Við náum alþingi aldrei upp á hærra plan með svona framferði. Enginn axlar ábyrgð og alltaf einhverjum öðrum um að kenna. Þingmenn benda til Norðurlandanna þegar þeir vilja líkja sínum störfum við það sem gott er en ekki þegar slæmt er. Allir siðprúðir alþingismenn á Norðurlöndunum segðu af sér eftir þennan gjörning.


mbl.is Segja upptökurnar skipulagða aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegra en orð fá lýst

Hvílíkur harmleikur í fjölskyldunni. Menn berast á banaspjótum í fjölmiðlum og við leikum með eins og strengjabrúður. Svona mál á ekki að útkljá á opinberum vettvangi. Að skila skömminni á ekki að gerast á síðum fjölmiðla eða á opinberum síðum. Hefndaraðgerðir þar sem fjölda fólks er blandað í málin sem hafa ekki forsendur til að taka þátt í umræðunni. Sorglegt.


mbl.is Aldís leitast eftir viðtali í Silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. febrúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband