25.11.2018 | 19:50
Uppspuni skemmir baráttuna. Þarfa baráttu.
Heilt helvíti sem þolendur ofbeldis ganga í gegnum. Skiptir kyn og aldur þar engu. Verra er þegar einstaklingar skemma baráttuna með lygum hér á landi. Inn á milli í baráttunni eru lygarar. Sjálfar eru konurnar gerendur ofbeldis, rétt eins og karlmenn. Þær fela sig meðal ,,Einnig ég" hreyfingarinnar. Konur í nafni þolendur ofbeldis loka augum fyrir ofbeldisverkum kynsystra. Finna afsökun fyrir ofbeldi þeirra. Því miður. Ofbeldið á ekki að líða, hvort sem það er karl, kona eða barn (í formi eineltis sem dæmi) sem beitir því.
Áhugaverð grein sem ýjar að því sama...https://www.frettabladid.is/skodun/konur-eiga-a-vera-konum-bestar?fbclid=IwAR0yK9UsKDXNQMt3hyxNtly6LmLg11gpS0kiSVxiT5zJo9OkRdLw0e9Mavs
Kynbundið ofbeldi nær en margur heldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2018 | 09:20
Efniskostnaður pr. nemenda er lítill
Ekki má gleyma í tengslum við þessi skrif að fjármagnið sem mörg bæjarfélög úthluta á nemanda í list- og verkgreinum er svo lítið að oft lenda kennarar í vandræðum með verkefnaval vegna fjárskorts. Að auki taka list- og verkgreinakennarar færri nemendur í hverja kennslustund og það kostar skólana. Sveitastjórnarmenn reyna að sleppa eins ódýrt og hægt er. Nauðsynlegt að taka framkvæmd kennslunnar til endurskoðunar.
Vægi verkgreina sláandi lágt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)