Kvennahópurinn heldur áfram- nú er það kynsystir

Karlmenn sátu ekki á sér með illkvittnisleg og ljót ummæli eftir að Jón Steinar opinberaði kvennasíðu sem heldur úti skemmtiefni að þeirra sögn. Það sem karlarnir sögðu má lesa hér og er engum til eftirbreytni, https://stundin.is/grein/7659/dreifa-mynd-af-borgarstarfsmanni-kalla-hana-oged-og-brundfes-sem-aetti-ad-naudga/ Skömm að þessu.

Ein úr kvennahópnum skrifar ,,Ofbeldið sem ríður yfir hana í dag er með því viðbjóðslegasta sem ég hef séð – og hafi það ekki verið á hreinu hef ég ýmsa fjöruna sopið í þeim bransa.“ Vildi óska að umrædd kona hefði sömu skoðun á ummælum kvennanna í hópnum hennar. Hvoru tveggja sorp.

Hún heldur áfram ,,Hetjur internetsins tóku svo við og nú er búið að birta mynd af henni á Facebook sem hefur, þegar þessi orð eru skrifuð, verið deilt tæplega 40 sinnum.“ Hetjudáðin lítilmannleg. Hvorki karlar né kvennahópurinn sem umrædd kona er þátttankdi í lætur sitt eftir liggja í óhróðri um fólk. Engar hetjur hér á ferð. Væri ekki gott að fólk tæki til í garðinum heima.

Svo bætir þessi ágæti hópmeðlimur skemmtihópsins við ,,Í athugasemdum sem um hana hafa fallið er vitanlega rangt farið með nokkurn veginn allt.“ Þetta virðist algilt þegar eitt og annað er fullyrt um annað fólk. Einhver segir eitthvað til að koma höggi á viðkomandi og það er látið flakka. Líka í skemmtihóp kvennanna.  

Sorglegra en orð fá lýst að lesa skjáskot úr skemmtihópnum sem Jón Steinar fletti ofan af um daginn. Nú fær kona útreið. Umrædd kona fór í viðtal um daginn og kynsystur skemmta sér yfir því. Á hennar kostnað. Vinaþelið og góðmennskan skín í gegn.

Hér má sjá nokkur ummæli.

,,Ég hef bara aldrei rekist á skynsamlega orð frá þessari konur, og hefur hún haft nóg að tala um sl. Misseri. Svo fæst hún við ljóðagerð sem er að mínu mati bara sóun á gagnamagni á internetinu. Hún mætti satt best að segja að segja bara stfu.“

,,Nei sko hún ræðst aldrei á neinn og gerir aldrei neitt á hunt neins!! Hún hefur betra siðgæði en við allar til samans, enda er hún móðir drengja og not like the other girls!“

,,Sterkur og stor karlamður Klettur Konan er ekki i nutimanum Hun er eins  og gengin ut ur afdal og hja henni er arið 1967“

,,Mér finnst að fleiri konur ættu að skrifa pistil til varnar sonum sínum. Þetta eru ekkert smá erfiðir tímar fyrir karla.“

,,Hvað er að þér- hún er að verja syni sína.“

,,Haha jú, mér heyrðist hún eiginlega í lokin í raun vera að kvarta undan því að þér séu engir kallar á lausu sem eru eins og henni finnst kallar eigi að vera.“

,,...ég bara rúmlega bilast.“

,,Að sjálfsögu. Við erum bara náttúrulega bara ógeðslega vondar konur sem vilja bara ráða yfir öllum köllum og gera þá að aumingjum.“

,,Er hún ekki bara svona veik af meðvirkni gagnvart drengjunum sínum.“

,,Og öllum öðrum körlum í heiminum held ég.“

,,Jæja hún er með opið bréf til hópsins á veggnum sínum. Hvað liggja hérna margar í leyni og screenshota einsog maskínu beljur.“ Fallega talað um kynsystur og einkennandi fyrir orðfæri þessarar stúlku inni á kvennasíðunni.

Svona tjáir karlmaður sig innan um konurnar.

,,Ég er svo lítill í mér að ég elska þessa grúppu og er ógeðlega glaður að fá að vera hér inni.“

Er ekki mál að linni. Snúum okkur að málefnunum. Þau eru mörg sem þarfast lagfæringar, fyrir bæði kynin og ekki síst börnin.


Sóðaskapur- á hvorn veginn sem er og á hvaða aldri sem er

Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu um hegðun unga fólksins á netinu. Neteinelti þar sem börn og unglingar ráðast að öðrum með ljótum orðum. Án minnsta tilefnis. Starfsfólk skóla berjast við slíkt einelti má segja í viku hverri. Fullorðið fólk rís upp og finnst skólastofnunin sem slík ekki gera nóg. Spurning hvort skólafólk berjist við vindmyllur.

Með sanni má segja að netheimar hafi logað. Upp komst um kvennahóp sem telur það rétt sinn að svívirða aðrar manneskjur. Bara karla og allt í gríni. Sennilega fá konur eins og ég sinn skerf. Það var tilkynnt sérstaklega á síðunni að nú hafi ég bloggað. Mér er meira í mun að gagnrýna málefni en menn. Málefnin fara fyrir lítið í kvennahópnum. Þau virðast aukaatriði enda á síðan að vera skemmtiefni. Góð fyrirmynd að skemmtiefni fyrir unga fólkið!

Ég ákvað að kíkja á nokkur ummæli sem féllu í lokaða kvennahópnum. Andúð kvennanna tók sig upp að nýju þegar ákveðinn lögfræðingur ákvað að sæki mál kennarans sem var rekinn frá HR. Ummæli kennarans voru óheppileg en í samhengi við stóru myndina virðast þau rökrétt ef marka má orð stjórnenda og meðlima kvennasíðunnar þegar þær ræða eigin ummæli. Bent var á að lögfræðingurinn yrði að skoða samhengi umræðunnar. Varla gerður greinamunur á!

Tek fram að ummæli lögfræðingsins á sínum tíma voru á engan hátt viðeigandi, engan veginn. Það réttlætir ekki persónuníð eins og konurnar viðhafa. Farið í málefnið.

Sjáið þið fyrirmyndirnar. Hér eru mæður, systur, dætur, frænkur, ömmur og kannski langömmur!

Ein ummælin á mannauðsstjóri.

,,Ég er drulluspæld að hafa ekki tekið þátt í þessari umræðu og ekki fengið nafnið mitt þarna. Finnst hann samt drulluhali. Hei Jón Steinar fer ég í næstu grein?“

,,Vá. Bara vá. Ekkert samhengi, bara kópur kvenna að úthúða okkar allra bestu snúllum, meira að segja aðal.“

,,Plís sheraðu þessu á dv greinina...Var búin að gleyma að þessi vibbi væri Hæstaréttar dómari. Ekki furða að nauðgarar sleppi með enga eða grálega lita dóma þegar svona risaeðlur fá að ráða.“

,,Ó stelpur, nú var Bubbi Morthens að henda sér í slaginn í deilingu Smartlands-Mörtu á greininni. Þetta verður stöðugt merkilegra allt saman.“

,,Og ótrúlegt en satt gleymdi...blessunin að fjarlægja myndina sína af öllum skáskotunum sem hún sendi ...þetta er svo gáfað fólk að það nær ekki nokkurri átt.“

,,Hversu margar af okkar semsagt kynsystrunum eru hér inni af annarlegum forsendum og hvernig er hægt að loka fyrir þær?“

,,Finnst þetta bara svo skammarlegt, reyna að koma sundrungu og ósamstöðu gagnvart kynsystrum sínum! Yndislegar.“

,,Ég held að hann sé bara ennþá sár eftir að HR prófessorinn var rekinn þrátt fyrir mótmæli Júlla Sigga sjálfs. Lyktar pínu eins og nornaveiðar að nefna konurnar við kommentin. En hvað veit ég með minn auka konuheila, ég ætti auðvitað að vera að mótmæla Jonna Sjonna.“

,,ARRRG hann hringdi í konu og spurði út í komment, en vissi ekkert í hvaða grúppu eða hvenær það hefði verið skrifað. Þegar hún kveikti ekki strax á perunni var hún AUGLJÓLEGA að feika það og vera vond við elsku litla blómið.“

,,Vá eigum við að taka upp þann sið að hringja í alla sem eru með leiðindi á netinu? Ógna  svolítið.“

,,...neinei, það er svo ódömulegt fáum pabba og bræður okkar til að gera það.. verja heiður okkar!“

,,Aaaah kommentin hérna á Vísi. Er skilningur fólks enginn? Hvernig nær þetta fólk að halda lífi svona skilningslaust!“

,,Takk já nú erum við frægar.“

,,Jón Steinar, við viljum ekki ræða við þig af því þú ert með geðsjúkdóm sem heitir kvenfyrirlitning. Rök þín eru rotin. Það að konur vilji ekki hitta þig og ræða mál ,,á málefnalegum grunni feðraveldisins“ er  ekki aðför að tjáningarfrelsi karla. Veistu  ekki herra lögkarl!? Skilur þú ekki 73. Gr. Stjórnarskrá og 10.gr. MSE?“

,,...já hvernig læt ég. Hélt smá stund að ég gæti hagað mér eins og þessi merkilegi maður.“

,,Og svo er alveg massa umræða inná DV sem ég ætla ekki að deila af því ég vil ekki að þeir fái ´hittin´ (það er sko orð!). Greyið strákarnir sem greinilega hafa enga stjórn á kvenþjóðinni. Vita ekkert hvað á að segja og gera með allar  þessar blessaðar konur að gera grín að öllum þessum merkilegum einstaklingum með Y litning.“

,,Ég er bara ógeðslega sár að hann hafi ekki haft tinder commentið mitt með. MISMUNUN.“

,,Lærdómur dagsins: Það má tala illa um konur í lokuðum Facebook hópum, en ekki Jón Steinar Gunnlaugsson.“

Augljóst, skrifa á grein í blað þar sem ummæli og störf Jóns Steinars verða dregin fram í sviðsljósi, sennilega til að réttlæta svona orðfæri.

,,Byrjuð að skrifa bréf til blaðsins. Hendið á mig linkum.“


Vinnuréttur

Út frá vinnurétti verður áhugavert að fylgjast með málinu. Er hægt að vísa opinberum starfsmönnum úr starfi fyrir ummæli. 


mbl.is Mun ekki höfða mál gegn femínistunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. október 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband