Færsluflokkur: Bloggar
13.8.2024 | 08:09
Ætli kennarar hafi ekki lesið um Grudtvig
Áhuga- og fróðlegt viðtal birtist við leikarann Ulrich Thomsen sem leikur Grundtvig í samnefndum þáttunum um sálmahöfundinn, prestinn, heimspekinginn, kennarann o.fl. Þættirnir eru þrír. Viðtalið birtist í Jyllands-posten.
Ulrich bendir á að sennilega yrði Grundtvig ekki ánægður með þróunina sem á sér stað í samfélögum víða um heim. Ólíkar skoðanir ekki leyfðar. Ekkert hægt að ræða málefnin eða færa rök fyrir máli sínu. Fylgir þú ekki minni skoðun þá á að slaufa þér segir Ulrich. Menn eru kallaðir rasistar og með fóbíu ef þeir eru ekki á sömu skoðun og viðkomandi. Þessi hegðun er þvert á það sem Grundtvig boðaði sem sagði að nám gerðist á milli nemenda og kennara með hinu talaða orði. Það sama gildir um þá sem eru ósammála, eða!
Ulrich Thomsen telur það sem Grundtvig gat í gamla daga, að hræða andstæðingana með góðum rökum, að þá sé það eitthvað annað sem margir óttast í dag. Og hér verðum við að skoða þá þróun sem hefur átt sér stað með tilkomu samfélagsmiðla.
Á Facebook og Instagram ertu ekki hræddur við þann sem rökstyður mál sitt vel. Þú ert ekki hræddur við einhvern á öðrum stað sem situr og segir skoðun sína. Við getum ekki bent á hvern við hræðumst því þetta sýnst um eitthvað allt annað í dag. Í dag snýst þetta allt um bergmálsóm. Við erum hrædd um að lenda í skítastormi segir hann og útskýrir hvernig fólk getur skipulagt sig með allt öðrum hætti í dag en þegar Grundtvig stóð í ræðustól. Og það getur haft víðtækar afleiðingar.
Ulrich segir ,,Fólk er hræddara við bergmálsóm skítastormsins en hvort það sé í raun satt eða ósatt sem sagt er. Ef þú segir eitthvað og lendir í óveðri er auðveldara að reka þig og ráða einhvern annan. Það er vandamál." Að þessu sögðu er ekki ýkja langt síðan kennari á Akureyri vildi láta víkja öðrum úr starfi vegna málefnaágreinings. Lýsandi dæmi og gerist varla betra um bergmálsóm samfélagsins.
Við hæfi er að ljúka pistlinum á tilvitnun eftir Grundtvig: ,, Friheden duer til alt Godt, Trældommen duer til intet Godt i Aandens Verden, derfor ville vi have Friheden med alle dens Farer.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í Alsír fylgja flestir múslimatrú. Margir segja að þeir séu strangtrúaðir og því hefði karl aldrei verið sendur, í hnefaleikakeppni á OL, sem kona. Vegabréfið ræður. Það að maðurinn hafi fæðst með vansköpuð kynfæri gerir hann ekki að konu. Að hann hafi farið í gegnum kynþroskann með eistun að vopni gerir hann að karlmanni. Maðurinn veit það best sjálfur og því er ákvörðunin hans. Reyndar notar hann veikleika IOC, sem ber litla virðingu fyrir konum, og hleypa honum í kvennaflokk. Hann er ekkert saklaus, veit upp á sig skömmin. Það er ekki rasismi að benda á hið augljósa heldur kynjamismunun.
Í augum bloggara og tug þúsunda, milljóna, annarra varð silfurhafinn meistari. Hnefaleikastrákurinn sem fagnaði sigri á herðum þjálfarans vann keppni við stúlkur, ekki sína líka. Ætli það sé venjuleg hefð að múslimskar íþróttakonur sitji klofvega á herðum karlkyns þjálfara fyrir framan allan heiminn?
Í hvaða múslímalandi mega konur sýna hold? Ekki í Egyptalandi í það minnsta, því konur þaðan spiluðu strandblak á OL með slæðu, í síðbuxum og síðerma bol. En hann, hnefaleikamaðurinn, sýndi bert hold.
Sall Gover er ein þeirra sem hefur tjá sig um karlmennina í hnefaleikum kvenna. Hlustið hér, en hún segir m.a. ,,Þessar konur taka ekki bara að taka á sig höggin, heldur verðum við hin líka fyrir barðinu á þessu vegna þess þegar þú lögleiðir rangt kyn sem allir verða að viðurkenna sem þýðir að kvennaíþróttir eru ekki lengur til, kvennarýmin horfin og þú hefur ekki rétt á að segja að þetta sé karlmaður.
Það finna allir fyrir gaslýsingum fjölmiðla hér á landi og í útlöndum. Þeir ráðast að fólki sem mótmælir veru karlmanna í kvennaflokki og reyna að fá fólk til að trúa lygunum.
Láttu ekki fjölmiðla gaslýsa þig með hugmyndafræðilegu orðalagi sem er hannað til að forðast raunveruleikann. ,,Úthlutað kvenkyns við fæðingu" þýðir ekki ,,kvenkyns." ,,Sískynja kona" þýðir ekki ,,kvenkyns." Imane Khelif er líffræðilega karlkyns og það er það eina sem skiptir máli. Khelif hefði aldrei átt að fá leyfi til að keppa í kvennaflokki. Þetta er skrípaleikur.
Það er traðkað á réttindum kvenna og mjög margar konur taka þátt í því. Kannski vilja þær gleðjast með ,,sigurliðinu til að öðlast hylli þó þær svíki aðrar konur. Svona endurtekur sagan sig, aftur og aftur. Ekki furða að kvennabaráttan sé endalaus.
Konur víða um heim hafa látið sig málið varða, sem betur fer. Það þarf að taka á málunum, þó fyrr hefði verið. Hér má hlusta á áhugavert spjall hjá samtökunum ,,Sex Matter.
Neðar má sjá myndir af stúlkunum sem báru sigur úr bítum í sínum flokkum á OL 2024. IOC aumingjarnir veittu þessum meisturum ekki gullið heldur karlmönnum sem hafa allt aðra líkamsbyggingu, sterkari vöðva og mun meiri slagkraft en konur hafa. Hvenær er komið nóg af yfirtöku karlmanna, hvað sem þeir skilgreina sig, í kvennaíþróttum?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2024 | 09:26
Alma Möller þekkir lögin en fer ekki eftir þeim
segja hjónin sem berjast fyrir svörum um horfnu fósturvísana sem þau átti. Bloggari segir enn og aftur, hafi menn ekkert að fela af hverju fá þau ekki svör. Hvað er vandamálið ef hægt er að afsanna málið með einni DNA rannsókn á umræddum börnum.
Alma Möller virðist vernda eigin fjölskyldubönd en foreldrarnir líða. Innbrot í sjúkraskrá er alvarlegt mál en Persónuvernd með Helgu í forsvari sinnir ekki erindi þeirra.
Umboðsmaður Alþingis er kominn í málið. Hann gengur í málið og vill svör. Landlæknir reyndi að afvegaleiða hann. Alma Möller sinnir starfi landlæknis og á að hafa milligöngu um að fá sjúkraskýrslur ef spítalinn vill ekki afhenda þær. En innbrotið tengist víst einum og öðrum og því mega gögnin ekki líta dagsins ljós. Það er vissulega athugunarvert hve mörg innbrot eru inn í sjúkraskránna frá ólíkum læknum, líka nemum í Ungverjalandi.
Lögfræðingur Landspítlans fer upp á afturlappirnar. Hótar fólkinu í stað þess að aðstoða það. Sama með lögfræðing fyrirtækisins.
Menn eru tvísaga í svörum eftir því sem best verður komist. Þeir sem hafa brotist inn í sjúkraskránna tengjist afar mörgum læknum. Dagur B. Eggertsson kemur víða við þegar hjónin segja frá þeim sem hafa flett upp. Minnir á kóngulóavef.
Vona svo sannarlega að Umboðsmaður Alþingis gefist ekki upp og sanni að hann er verðugur stólpi í réttindum almennings og að hægt sé að leita til hans.
Hjónin létu samkeyra nemendalista frá MR og HÍ á mörgum einstaklingum sem komu fyrir í sjúkraskránni. Margt áhugavert kom í ljós sem varpar ljósi á t.d. Bragga málið sem tengist Degi B. Eggertssyni.
Hvet fólk endilega til hlusta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2024 | 09:21
Karlmaður vinnur gull í hnefaleikum kvenna
Það er sorglegt að karlmenn fái aðgang að íþróttum kvenna. Allir sem hafa lágmarks þekkingu í líffræði vita að karlmenn hafa meiri styrk og kraft en konur. Samfélagsmiðlar hafa logað ef svo má segja út af báðum karlmönnunum sem kepptu við konur í hnefaleikunum á OL. Annar fékk gull og hinn mun sennilega líka gera það í fjaðurvigt.
Íslenskir fjölmiðlar eru meðvirkir, en ekki hvað. Engin rannsóknarblaðamennska í gangi.
Trans Samtökin 78 lágu ekki á áróðri sínum. Kalla það hatur að segja sannleikann. Margir hafa bent á að um karlmenn sé að ræða sem keppa í hnefaleikum og það sé sannreynt. Þeir eru hvorugir konur. ICO vill hins vegar ekki láta reyna á sannleikann.
Vonandi, í kjölfar þessa atburðar vaknar heimbyggðin og fjarlægir karla út kvennaíþróttum, með góðu eða illu. Það að karlmaður berji konur í hringnum hefur sennilega opnað augu margra. Vonandi fer af stað hreyfing sem verður ekki stöðvuð. Margir íþróttamenn hafa sýnt stúlkunum stuðning með því að tákna X. Vel gert og sýnir samstöðuna þó kjánarnir í ICO viti ekki hvað kona er.
Hér má lesa grein, en í henni stendur ,, Sumir halda að þetta ofbeldi muni loksins fá transaðgerðarsinna til að viðurkenna að öll þeirra hugmyndafræði er byggð á lygum og er konum hættuleg. Það er ekki séns á því. Í fyrsta lagi er þeim nákvæmlega sama. Í öðru lagi hefur ,,kynjafræði svo sýkt stofnanir þjóðfélagsins að fyrrum skynsamt fólk er ekki lengur fært um rökræna hugsun.
Nú glymur yfir þjóðinni ,,burt með hatrið ,,hatrið má ekki sigra og því verða gagnrýnar raddir að spyrja um hvað eru menn að tala. Uppspuna trans samtakanna? Að sannleikurinn sé sagður hefur ekkert með hatur að gera. En slagorðin hitta í mark. Menn vilja nú ekki láta saka sig um eitthvað misjafnt. Fólk heldur virkilega að það styðji eitthvað fallegt og gott. Því miður er það ekki svo. Trans Samtökin er pólitískt afl. Almenningur nennir bara ekki að setja sig inn í málefnin og hoppa á það sem þægilegast er. Leyfa áróðrinum að blómstra.
Trans Samtökin 78 hafa endurskilgreint hugtakið kona. Viti bornir menn vita að kona er fædd með XX litninga. Fullorðin kvenkyns einstaklingur.
Vonandi mun braátta halda áfram og verða að alsherjahreyfingu. Markmið að koma körlum úr kvenníþróttum. Hér má hlusta á gott viðtal við Dr. Emmu Hilton líffræðing um karlana í kvennaflokknum.
Bloggar | Breytt 11.8.2024 kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2024 | 10:25
Grefur undan mannréttindum
Árið 1998 var veröldin einföld, allir sem mótmæltu rétti samkynhneigðra til að elska þann sem þeir elskuðu voru fávitar. George Michael bjó til myndband og söng ,,Outside eftir að mjög trúuð móðir hans lést. Hann gat þá loksins verið sá sem hann er, hommi. Myndbandið og textinn fjallar um hvernig samkynhneigðir hafa þurft að fela kynhneigð sína fyrir umheiminum og stunda hana í felum í stað þess að vera í svefnherberginu. Það er líka fjallað um hvernig ríkið og lögreglan eltu fólk uppi vegna kynhneigðar. Þetta skrifar Katrine Brøgger og hún heldur áfram.
Það er þessi barátta sem við höfum samúð með og skiljum í dag, og það er þessi barátta sem trans hugmyndafræðingar hafa lifað eins og sníkjudýr á og hagnast. Það er þessi barátta sem gerir þá lygi að trans hugmyndafræði sé hluti af venjulegri mannréttindabaráttu er étin hrá. Til að skilja betur hvernig trans hugmyndafræðin grefur undan grundvallarmannréttindum samkynhneigðar verður maður að skilja þau.
Það er ekki í lagi að halla sér aftur og afla sér ekki þekkingar um málið. Sérstaklega ekki sem gagnkynhneigður, þar sem eini hluturinn er hvort þú standir undir ,,Gutenmenschen viðmiðinu.
Trans og tæling samkynhneigðra til að vera trans frekar en samkynhneigð er árás á samkynhneigða. Það er óásættanlegt segir hún.
Hér má hlusta á lagið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2024 | 08:30
Vonandi verður áframhald á
Með sanni má segja að þátttaka karlmanna með XY litninga í kvennflokki hafi valdið úlfaþyt. Að sjálfsögðu. Karlmenn eiga ekki að sjást í kvennaíþróttum. Ekki á OL, ekki í heims-eða Evrópukeppnum og hvað þá í háskólum eða annars staðar.
Hvað þarf til að útrýma þátttöku karla. Samstöðu. Ekki bara kvenna heldur heimsbyggðarinnar. Mæður, feður, frændur, frænkur, systur og bræður þurfa að taka sig saman og vera samstíga í að vernda kvennaíþróttir. Stúlkur sem hafa unnið hörðum höndum frá því þær voru litlar að elta íþróttadrauma sína lenda nú í öðru og þriðja sæti af því karlmaður tekur vinningssætið.
Karlmenn hafa meiri styrk og vöðvabyggingu en konur hafi þeir farið í gegnum kynþroskann sem strákar. Fólk veit þetta en velur að snúa blinda auganu að í nafni ,,fjölbreytileikans" og ,,réttindi trans fólks" en á móti HVER ERU RÉTTINDI STÚLKNANNA? Engin. Þær verða að lúffa fyrir einhverjum reglum og eru aldrei spurðar.
Birst hafa myndir í kjölfar hnefaleikakeppninnar á OL 2024 og vonandi rísa stúlkur upp um alla heim. Nú er komið nóg!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2024 | 08:38
Sumarleyfi kennara lokið
Allt tekur enda og sumarfrí grunnskólakennara líka. Nú styttist í skólabyrjun. Endurmenntun kennara hafin og margir þeirra geta sótt námskeið fram að skólabyrjun 15. ágúst. Mörg sveitarfélög bjóða upp á endurmenntunarnámskeið 13. og 14. ágúst. Höfðar misvel til kennara, enda þarfir ólíkar. Hver grunnskólakennari á að skila 102 stundum í endurmenntun á ári.
Kjarasamningur grunnskólakennara eru lausir. Vonandi koma fréttir áður en skólastarfið hefst um hvernig miðar. Formaður Kennarasambandsins er í forsvari fyrir samningana eftir því sem bloggari hefur komið næst. Í það minnsta samkvæmt blaðinu ,,eplið sem félagsmenn fá.
Áður en skóla lauk sagaði formaður Félags grunnskólakennara, Mjöll Matthíasdóttir, að hjálp yrði sótt til félagsmanna. Ekki koma fram í hverju sú hjálp er fólgin. Kannski og mjög hugsanlega er það verkfallsboðum.
Hugur margra kennara hefur breyst. Fyrir ekki svo mörgum árum var óhugsandi að fá kennara í verkfall, en það hefur breyst. Kannski af því samsetning grunnskólakennara hefur breyst.
Á Akureyri hafa foreldrar kvartað undan litlu framboði af afþreyingu fyrir börn. Bærinn setur málið í nefnd. Tímasetning skólastarfs í Skandinavíu er með öðrum hætti en hér. Þar fá kennarar 6 vikna sumarfrí og skila ekki endurmenntun eins og hér á landi. Endurmenntun grunnskólakennara er tvær og hálf vika og þar liggur megin munurinn.
Útikennsla er þekktari á hinum Norðurlöndunum en hér. Síðustu vikur og upphafsvikur skólastarfsins er nánast eingöngu útikennsla. Kannski er tímabært að skoða hvort ekki eigi að breyta þessu hér. Fleiri og fleiri foreldrar lenda í vandræðum með börn sín þessar 3-4 vikur sem er umfram lögbundið sumarfrí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2024 | 08:35
Öll réttindi kvenna í stjórnarskrá eru í hættu
Sall Grover háir baráttu við kerfið og karlmann sem segist vera kona. Sall stofnaði app fyrir konur. Þar geta þær sótt eftir herbergis- og ferðafélaga svo eitthvað sé nefnt. Hún henti öllum karlmönnum út enda appið ekki ætlað báðum kynjum. Þegar hún fluttist til USA leitaði hún að herbergisfélag og varð fyrir reynslu sem ýtti henni út í að búa til appið þegar hún flutti aftur til Ástralíu.
Einn karlinn sættir sig ekki við neitun og höfðaði mál gegn henni. Nú liggja dómstólar undir feldi, verður réttindum kvenna rústað. Verða öll lög sem talar um konur að engu. Missa allir konur réttindi sín vegna karlmanns sem segist vera kona og vill vera þar sem konur eru.
Sall heyir allt aðra kvennabaráttu en Rauðsokkurnar gerðu. Að kvennabarátta árið 2024 skuli snúast um réttindi kvenna t.d. til einkarýma er ótrúlegt. Verjast ágangi karlmanna. Sorglegast er að konur styðja valdtöku karla sem skilgreina sig sem konur, og segja það að umburðarlyndi. Nei þetta er mannvonska að láta einn hóp blæða fyrir réttindi annarra. Ekkert jafnræði og engin mannréttindi í því.
Öll stjórnarskrávarin réttindi kvenna er í húfi!
Hér má hlusta á viðtal við Sall Crover.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2024 | 07:18
Hægt að útrýma einhverfu ef menn viðurkenna rétt kyn fólksins
Starfsfólk í félagsþjónustunni í Danmörku á að mennta svo þau geti sent einhverfa af stað í ,,kynjaferðalag Danska félags- og húsnæðisstofnunin stendur á bak við það.
Danska félags- og húsnæðisstofnunin stendur að baki verkefni sem á að þjálfa starfsmenn félagsþjónustunnar til að senda einhverfa í ,,kynjaferðalag," Rökin eru, það kemur fram í ,,rannsókn sem mælir með því. Þegar sú rannsókn er skoðuð sést að hún trans aktivísk og styður hinsegin kenningar og hugmyndafræði. Þetta kemur fram í bloggi Lotte Ingerslev um málið.
Verkefnið mun leiða til framleiðslu fræðsluefnis og líklega einnig ,,uppfærslu" námskeiða sem upphaflega eru ætluð starfsfólki sem sinnir einhverfum.
Sagt er að verkefnið sé til að auka ,,gagnrýna nálgun á (kynja)viðmiðum" meðal fagfólks. Og það starfsfólk sem efist verða að velta fyrir sér ,,eigin kynjahlutdrægni.
Þær svokölluðu ,,rannsóknir" sem verkefnið byggir á eru ekki gæðametnar á nokkurn hátt.
Meðal annars er gefið í skyn að einhverfu einkenni séu kannski alls ekki vegna einhverfu, heldur að þau séu vegna þess að fólk sem er með ,,mismunandi kynvitund" sé ,,rangkynjað" og stimplað.
Allt við ,,kynjaferðina" er lýst sem jákvæðu. Það eru engir ókostir og engin áhætta en maður þarf að taka fyrsta ,,prófið, fyrsta skrefið í verkefninu er að taka ,,þekkingarpróf. Það gengur út á að þú svarir alls kyns spurningum um eigið kyn, tilfinningu þína gagnvart kyni o.s.frv.
Ekki er minnst á orð um samkynhneigð eða félagslegt smit. Ég hef farið ofan í saumana á þessu- skoðað smáatriðin segir Lotte. Hér er ritið sem Lotte hefur farið í gegnum lið fyrir lið.
Í einu fylgiskjalinu sem fylgir með færslu Lotte segir: Ef þú fylgir þessari ,,rökfræði" er augljóst að starfsfólk félagsþjónustunnar geta dregið úr eða jafnvel útrýmt einhverfum eiginleikum fólks með því að vera 100% fylgjandi þörf einhverfra fyrir að tengjast kynjafjölbreytileikanum. Það tryggir þeim meðferð sem færir líkamann í takt við innri reynslu þeirra af kynvitund, þannig að þeir verði ekki lengur fyrir fordómum vegna þess að samfélagið lítur á þá sem það kyn sem þeir ,,raunverulega" eru.
Lotte segir; Eins og sjá má telja höfundar ritsins mikilvægt að starfsmenn félagþjónustunnar ,,afli sér þekkingar" um t.d. ,,kynskipti" og ,,notkun fornafna". Þannig þurfa þeir að staðfesta við einhverft fólk að það sé á leið í ,,kynjaferðina".
Lotte Ingerslev er sálgreinir sem hefur skrifað mikið um trans málaflokkinn af mikilli fagmennsku. Öll hennar umfjöllun fjallar um börn, því hún eins og bloggara er nákvæmlega sama hvað fullorðið fólk gerir. Hún kaupir og nær í rannsóknir, hefur augun opin fyrir því sem gerist í veldi Friðriks X og kemur því efni til skila. Það sem er þýtt hér að ofan er lítið brot af færslunni hennar sem sjá má hér.
Lotte býður fólki að kaupa kaffibolla til að styrkja vinnuna sem hún leggur í þetta. Þeir sem hafa áhuga að kaupa kaffi geta ýtt hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2024 | 07:49
Litningargalli og viðtal við Imane Khelif
Í kjölfar umræðu um hnefaleikamanninn sem sló Ítalann út á 46 sek. hafa ýmsar vangaveltur komið upp. Margir telja hann karlmenn og aðrir ekki. OL-nefndin gaf út yfirlýsingu, hvorki um trans-konu að ræða né heldur DSD, svona er viðkomandi bara.
"ATHUGIÐ. Þetta er ekki trans kona, heldur 99 prósent líklega karlmaður með sama litningafrávik og hlauparinn Caster Semenya. ,,DSD - truflanir á kynþroska." Hópurinn heitir 46, XY, 5 ARD. Er með XY litninga (þ.e. karlkyns) í hverri frumu og testósterónmagn karla. Hins vegar eru ytri kynfæri þeirra við fæðingu ekki skýr, geta líkst konu og þess vegna eru þeir skráðir og alast upp sem stelpur. Hins vegar eru þeir með virk eistu í kviðarholinu og fara því í gegnum kynþroska karla sem er ávinningurinn.
Þessi litningaskekkja sést oftast á meginlandi Afríku." segir Astrid Randi Thinnesen.
Danskur læknir, Jens Fedder, segist ekki geta sagt hvort Imane sé karl eða kona, til þess þurfi hann hormónapróf og líkamsskoðun til að ganga úr skugga um hvort hann finni leg og annað sem einkenni kvenfólk. Kyneinkenni hjá þessu fólki geta legið í dvala fram að kynþroskanum og þá kemur í ljóst hvort kynið er hafi maður ekki gert nákvæma greiningu á litningum.
Lasse Rimmer segir um DSD:
,,Eitt dæmi er suður-afríski hlauparinn, Caster Semanya, sem er með ytri kynfæri kvenna, en ekkert leg, enga eggjaleiðara, hann er með innri eistu og testósterónmagn í takt við karla. Fólk með DSD upplifir venjulega hormónaþróun á kynþroskaaldri sem passar við erfðafræðilega tilhneigingu þeirra. Oft, til dæmis, mun fólk með 5-ARD eða PAIS líta frekar kvenlegt út sem börn fyrir kynþroska, en síðar þróa með sér mun karlmannlegri eiginleika þegar testósterónframleiðsla fer af alvöru í gang.
Hér má sjá viðtal við hinn fræga hnefaleikara Imane Khelif í algerísku sjónvarpi árið 2017, sem sagt fyrir 7 árum. Spurning hvort okkar landsfrægu rannsóknarblaðamenn fari á stúfana.
Hér er sama viðtal frá öðru sjónarhorni.
Mynd af vegabréfinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)