Færsluflokkur: Bloggar

Hjúkrunarfræðingar fara í mál við vinnuveitenda sinn

Átta hjúkrunarfræðingar hjá  NHS í Darlington segjast hafa fundið til óöryggis í búningsklefa kvenna þar sem karlmaður, sem skilgreinir sig sem kona, fékk að nota sama klefa. Þegar hjúkrunarfræðingarnir kvörtuðu var þeim sagt að þær þyrftu endurmenntun. Alltaf sama sagan, konur settar niður til að þóknast hugsunum karlmanns.

Hjúkrunarfræðingarnir höfða mál gegn vinnuveitanda sínum fyrir kynferðislega áreitni og kynjamismunun vegna stefnu sem heimilar trans konum að nota búningsklefa kvenna. Málshöfðunin hófst eftir að 26 hjúkrunarfræðingar skrifuðu til County Durham and Darlington NHS Foundation Trust og lýstu áhyggjum sínum af málinu í mars.

Einn hjúkrunarfræðinganna sem hefur mótmælt stefnu spítalans, um þetta efni, en kona sem var fórnarlamb kynferðisofbeldis. Hún segir að nærvera karlmannsins, sem skilgreinir sig sem konu, í lokuðu rými komi áfallastreituröskuninni af stað.

Samkvæmt jafnréttislögum frá 2010 er ólöglegt að mismuna mönnum vegna kynferðis. Sumir túlka kynferði þannig að það vísi eingöngu til líffræðilegs kyns, á meðan aðrir telja að það eigi einnig við um trans-fólk sem skilgreinir sig samkvæmt upplifun og fengið vottun um það.

Það kemur ekki á óvart að trans-aðgerðasamtök vilja að trans-fólk hafa meiri réttindi en konur og stúlkur sem vilja þessa tegund af karlmönnum ekki inn í klefa með konum. Þeir hafa valið ekki konurnar. Gripið er til þeirra röksemdarfærsla að það skaði engan að hafa trans-fólk í búningsklefum gagnstæða kynsins. Hér má lesa um málið.

Víðar í heiminum

Bretland er ekki eina landið þar sem þessi vandræði hafa komið upp. Mönnum virðist ómögulegt að skilja að stúlkur og konur vilja ekki karlmenn, sem skilgreina sig sem konu, í einkarými þeirra, íþróttir eða yfir höfuð að þeir kenni sig við konu. Líffræðilegu kynin breytist aldrei.

Hin síðari ár hafa þessir karlmenn gert meiri kröfur en áður, kvennarýmin, eftir að ríkisstjórnir víða um heim samþykktu lög um kynrænt sjálfræði. Krafa karlmannanna er afleiðing af laganna. Áður en lögin voru sett skiptu menn sér ekki af hvað umræddir karlar eða konur, sem skilgreina sig gangstæða kynið gerðu. Um leið og réttindi annarra hópa skerðist við lagasetningu ber að láta í sér heyra.

Íslendingar hafa gengið lengst í þessari vitleysu eins og heyra má í þessu spjalli.


Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum

Enn eitt gosið. Móðir náttúra lætur ekki að sér hæða. Það gerir þingmaðurinn, Nancy Mace ekki heldur. Líkja má máli hennar við gos. Henni hefur verið hótað lífsláti

Það kostar að verja konur. Það fékk þingmaðurinn, Nancy Mace, að finna fyrir þegar hún hafnaði aðgengi karlmanns, sem skilgreinir sig sem konu, að salernum kvenna í þinghúsinu. Hún vill leggja fram frumvarp sem bannar svona tegund karla inn á kvennasalerni.

Margir risu upp á afturfæturna. Virðist sama um réttindi kvenna, ekki borin virðing fyrir þeim. Trans-kona er m.a. þeirra sem hafa hótað þingmanninum lífláti fyrir að segja upphátt sem vel flestar konur hugsa og vilja. Engir karlmenn, sem skilgreina sig sem konu, inn á kvennaklósettin.

Þingmanninum var nauðgað þegar hún var 16 ára og finnst óboðlegt að karlar mæti inn á kvennaklósett. Konur mega vera stoltar af þessari konu. Hún segðist ekki gefast upp, hlustið.


Af hverju vill karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, endilega pissa á kvennaklósetti

Sagt er frá að þingmanni á þingi USA sem er karlmaður og skilgreinir sig sem konu. Einn þingmannanna, kona, sættir sig ekki við að trans-konan noti kvennaklósett. Talað er um aðför að trans-konunni. Má ekki snúa þessu við, er það ekki aðför að konum þegar karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, vill nýta einkarými kvenna? Það finnst mér.

Á fréttinni á Visi.is segir „Maður er maður og kona er kona. Og maður getur ekki orðið kona. Að því sögðu þá er það mín trú að við eigum að koma fram við alla af virðingu. Við getum gert bæði á sama tíma.“ Að sjálfsögðu eigum við að koma fram við alla af virðingu, en það þýðir ekki að konur eigi að gefa eftir kvennarýmin sín til karlmanna sem skilgreina sig sem konu. Aldrei og alls ekki án mótstöðu.

Trans-konan ætti að bera virðingu fyrir konum og aldrei láta sér detta í hug að nota kvennarými.

Tek hatt minn ofan fyrir konunni sem berst gegn þessari blöndun á kvennklósettinu í þinghúsi USA.


Viðreisn segist vera hýrasti flokkurinn- styður hann brjóstagjafir karlmanna?

Það er sérstakt að horfa á þvæluna sem viðgengst í sumum samfélögum. Nú hafa karlmenn, sem skilgreina sig sem konur, eyðilagt fyrir mjólkandi konum. Það væri forvitnilegt að heyra hvort hýri Viðreisnflokkurinn styðji karlanna. Sjáið hér.

Þingmenn Viðreisnar vilja breyta orðum sem snúa að konum og kynjunum.

Þingmenn Viðreisnar vilja að fólk sem skilgreinir sig kynlaust fái nýtt vegabréf eins oft og það vill, a.m.k. einu sinni á ári ef því dettur í hug að skipta um kyn. Ríkið á að borga fyrir andlegan óstöðuleika fólksins. Pírastar eru á sömu vegferð samkvæmt frumvarpinu sem lagt var fram á þingi.

Þingmenn Viðreisnar samþykktu lög um kynrænt sjálfræði þar sem öryggi og réttindi kvenna urðu undir.

Þingmenn Viðreisnar hljóta, miðið við áherslurnar, að vilja karlmenn í kvennafangelsi, íþróttir og búningsklefa stúlkna og kvenna. Þeir hljóta miðað við málflutning að vera sammála því að karlmaður, sem skilgreini sig sem konu, geti verið lesbía.

Hýri flokkurinn Viðreisn er ekki allur þar sem hann er séður. Allt sem kemur varðandi trans-málaflokkinn er runnið undan rifjum ESB, undirstofnunum þeirra. Ætli Viðreisn stefni á sömu lög og í Þýskalandi?


Er hún ekki betur að sér í íslensku?

Öll velkomin í þessari framsetningu á við um dýr og börn. Hefði Sjálfstæðisflokkurinn sagt verið öll velkomin væri það allt annað. 

Baldur Hafstaf útskýrir vel hvernig á að nota orðið öll. Hér má lesa það.

Gefum við fólki lausan tauminn líkt og Kolbrún ætlar sér að gera þá fer tungumálið okkar inn á þennan veg. ,,Gerðist hratt, leghafinn fæddi barnið og punghafinn viðstaddur. Barninu verður ekki úthlutað kyni, því það finnur sjálft upp á hvort kynið það ætlar að vera síðar meir. Leg- og punghafinn horfðu á okkur þegar við sögum það. Þið eignuðust kynlaust barn!"

Rísum upp, verndum íslenskuna og látum ekki örfáa stjórnmálamenn leiða okkur út af sporinu.

Hér má lesa annan fróðleikspistil frá Baldri Hafstað.


mbl.is Takast á um „woke-afbökun íslenskunnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höldum á­fram með ís­lenskuna og konuna

Ég undrast ekki viðbrögð þeirra sem lifa í bergmálshelli við síðustu grein minni um íslenska tungu. Menn reyna að gaslýsa þjóðina. Ekki eigi að banna nein orð! En til hvers að breyta góðum og gildum orðum í tungumálinu? Orð sem allir vita hvað þýða og 99% manna getur samsamað sig við.

Að sjálfsögðu eigum við ekki að nota orðið stórforeldri í reglugerðum né lögum. Heldur ekki í almennu tali. Að sjálfsögðu eigum við ekki að nota foreldri foreldris í stað dásamlegu orðanna amma og afi. Þeir sem vilja hins vegar nota svona orð geta gert það á heimavelli. Á ekki að þvinga þeim á íslenska þjóð, hvorki í gengum texta frá þinginu né í almennu tali.

Kvennaorð eiga undir högg að sækja

Það er þekkt um hinn vestræna heim að orð sem varðar konur eiga undir högg að sækja. Víða má sjá orð eins „fæðandi foreldri“ í þeirri meiningu að kona sé í fæðingu. Persóna með barn á brjósti í þeirri merkingu að „kona með barn á brjósti.“ Einstaklingur sem gengur með barn í merkingunni „barnshafandi kona.“ Einstaklingur með leg eða leghafi í merkingu orðsins kona. Í stað þess að kyngreina konur er orðið þessi notað í staðinn. Allt rennur þetta í sömu átt, útrýma kvennaorðunum. Vilt þú það kona góð?

Þingmenn eiga að passa upp á þetta

Á hinu háa Alþingi á að vera sérstök virðing gagnvart kvennaorðunum. Þar á bæ eiga menn að leggja sig í líma við að varðveita orð sem tilheyra konum. Það á ekki að leyfa neinum að skemma þau eins og dæmin sýna. Þetta er ekki þróun í tungumálinu heldur handstýrð eyðilegging. Konur á þingi eiga passa upp á þessu orð, ég vænti þess af þeim. Ef þær hunskast ekki til þess biðla ég til karlanna, sem voru fæddir af konu og lágu við brjóst móður sinnar. Þeir eiga mömmu sem fædd var af konu sem er móðuramma.

Ef ekki er passað upp á orðin sem tilheyra konum þá hverfa þau hvert á fætur öðrum inn í texta á Alþingi og að lokum hverfa þau. Konan sem kyn er nú orðin eign allra (karlsins). Félagsleg uppbygging - í íslenskum lögum - en ekki líffræðileg eining með sitt eigið gildi og eigin tilverugrundvöll.

Mér þykir brýnt að þingheimur taki til í þeim lögum þar sem kvennaorðum var sýnd vanvirðing.

 


Djörfu stúlkurnar í blakinu

Stelpurnar láta ekki að sér hæða og nú skal sækja rétt sinn. Blakkonur hafa mátt lifa við þann ófögnuð að hafa karlmann, sem skilgreinir sig sem konu, í sínum röðum og í liði andstæðinga. Þvert á geð þeirra. Eins og í öðrum Íþróttasamböndum hafa stúlkur og konur lítið um þetta að segja. Komið nóg af þessu óréttlæti.

Stelpurnar hafa kært veru karlmanns í liðinu, þrátt fyrir skilgreiningu hans.

,,Hópur íþróttakvenna hefur tekið djarfa afstöðu gegn Mountain West Conference og San Jose State University (SJSU) vegna þátttöku trans íþróttamannsins Blaire Fleming í blakliði kvenna. Fleming, sem er fæddur karlmaður, skilgreinir sig sem konu og hefur tekið þátt í kvennadeildinni. Það hefur leitt til fjölda tapaðra leikja frá keppnisliðum sem eru ósáttir við aðstæðurnar.

Aðstoðarþjálfari SJSU í blaki tók það ótrúlega skref að leggja fram kvörtun og benti á ójafnvægið sem þátttaka Fleming olli. Þessi aðgerð leiddi hins vegar til tafarlausrar lausnar frá störfum, sem vakti spurningar um skuldbindingu háskólans til að vernda réttindi íþróttamanna sinna.

Til að auka á deilurnar hefur komið í ljós að þjálfarinn sem upphaflega bauð Fleming velkominn í liðið yfirgaf SJSU skömmu síðar og virðist með því reyna að koma sér undan ábyrgð. 

Samkvæmt fréttum lýsti Kersten, fyrrverandi þjálfari, yfir ,,samúð" með ,,jaðarsettum hópum" og virtist líta fram hjá áhyggjum kvennanna sem standa frammi fyrir afleiðingunum af þátttöku Fleming.

Lesa má meira um málið á síðu Katarine Brøgger

blakmynd


Verndum íslenskuna- líka á Alþingi Íslendinga

Tungumálið er arfur frá forfeðrum okkar. Tungumál sem er einstakt og ber að vernda með öllum tiltækum ráðum. Tungumál sem við eigum að kenna þeim sem koma hingað til að búa. Tungumálið á að nota í samskiptum á öllum skólastigum, líka við foreldra.

Hvað með þingmenn

Þingmenn eiga að leggja sig fram um að tala góða íslensku. Lýðræðisflokkurinn leggur áherslu á að vernda tungumálið okkar. Svo er ekki með alla flokka.

Það er ekki ofsögum sagt að nokkrir þingmenn hafa lagt sig fram um að eyðileggja íslenska tungu. Einnig má finna nokkra í framboði sem hallast að sömu skoðun.

Á síðasta löggjafarþingi Íslendinga lögðu fáir þingmenn fram frumvarp til þess að breyta ákveðnum orðum. Það er gert til að koma á móts við hinsegin hreyfingar.

Í skjalinu segir: Flm.: Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Dagbjört Hákonardóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Guðbrandur Einarsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
              a.      Í stað orðanna „föður- eða móðurnöfn“ í 1. mgr. kemur: foreldrisnöfn.
              b.      Í stað orðanna „föður eða móður“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: foreldris.
              c.      Í stað orðsins „föður“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: foreldris.
              d.      Í stað orðanna „afa síns“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: stórforeldris síns. o.s.frv.

Hvað gengur þeim til

Lýðræðisflokkurinn hafnar svona skemmdarverkum á tungumálinu. Hefðbundin góð og gild orð sem vísa til um hvern ræðir á ekki að breyta. Höfundur óttast að áframhald verði á ef þeir sem mæla fyrir svona skemmdarverkum komist inn á þing. Breytingartillagan er aðför að fjölskyldunni og íslenskunni. Við eigum ekki að sætta okkur við þetta.

Orðið leghafi komst inn í lög um fóstureyðingar. Núverandi heilbrigðisráðherra sá til þess. Engar konur stóðu upp fyrir orðum kvenna á þinginu, einn karlmaður gerði það. Leghafi er notað í stað orðsins kona. Nei segi ég, við eigum ekki að sætta okkur við að svona sé farið með orð sem tengjast konum. Aldrei.

Í stefnu Lýðræðisflokksins kemur skýrt fram að fjölskyldan sé horsteinn samfélagsins og lögð áhersla á verndun íslenskrar tungu. Þetta tvennt fer saman um þau orð sem snúa að fjölskyldumeðlimum. Á vakt Lýðræðisflokksins myndi svona frumvarp aldrei ná í gegn og því mótmælt í þingsal. Liður í verndun tungunnar sem menn hafa mismikla virðingu fyrir.

Fámennur hópur sem finnur sig ekki undir ákveðnum orðum getur ákveðið hvað þeir kalla sig á heimavelli. Höfundur frábiður sig að þessi skemmdarverk á íslenskum orðum sem ylja flestum hjörtum haldi áfram. Hvað er yndislegra en að tala um ömmu og afa, langömmu og langafa, móður og föður, frænda og frænku, pilt og stúlku?

Hjálpið okkur að stoppa þetta, gefum nýju fólki tækifæri með því að kjósa það á þing.

Frumvarpið má lesa hér. Gildistaka átti að vera á næsta ári. Einu get ég lofað kjósendum flokksins, komist ég á þing verð ég eins og hungraður úlfur eftir tilraunum til að eyðileggja tungumálið og sérstaklega það sem eyðileggur orð um konur og kvennamál sem virðist vinsælla en að skemma karlaorðin.


Stjórnarmenn knattspyrnusambandsins lifa í bergmálshelli

Eftir að ung stúlka steig fram og lýsti efasemdum sýnum um heilindi stjórnarmanna Danska knattspyrnusambandsins (DBU) í garð stúlkna tjáði einn sig. Sá reynir að klóra í bakkann.

Það er nefnilega ófyrirgefanlegt að stjórnin, skipuð 6 körlum og 1 konu, skuli vilji að blanda strákum og stelpum saman í fótbolta, frá unglingsaldri. Líkamsbygging stráka er allt öðruvísi en stúlkna, styrkur og þol meira. Kynin eiga að spila aðskilin.

Lítum á hvað Jeppe Rønnebæk Kongsbak segir á X. ,,Fótboltanum er deilt milli pilta/stúlkna og kvenna/karlmanna- og verður í framtíðinni. En það er rétt, innlimunin er viðfangsefni sem DBU skoðar. Lestu meira um ástæðuna, staðreyndir og skoðun DBU hér

Lotte Ingerslev, sem nú sætir málsókn af hálfu eins nefndarmanns, hefur vakið athygli á þessum gjörningi stjórnarinnar frá því þær komu fyrst fram. Síðan hafa foreldrar bæst við. Lesa má um það hér. Betur má ef duga skal. Það þarf fylkingu foreldra til að hafna karlmönnum, sem skilgreina sig sem konur, í fólbolta og aðrar íþróttagreinar kvenna.

Hoppa á skilgreiningar hinsegin hreyfinga

Það er ljóst að DBU hoppaði á trans skilgreiningar um mörg kyn, sést á plagginu þeirra. Þeir segja ,,Öll kyn velkomin í fótbolta“, og síðar tala þeir um kynhneigð. Það er ekkert launungamál að einn ráðgjafinn er karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, og þarf vart að ræða áhrifin sem slíkur einstaklingur hefur. Allir passa sig, má ekki móðga tilfinningar eða upplifun viðkomandi.

Það eru bara tvö kyn- góð vísa er aldrei of oft kveðin. Löngu tímabært að menn tali um það, tali hátt um sannleikann. Ef menn ætla að raða í fótboltalið byggða á tilfinningum fólks er tímabært að hinir sömu segi sig frá störfum sínum í DBU eða KSÍ væri um það samband að ræða.

Stelpunum blæðir

Það er líka ljóst að DBU hefur að engu réttindi stúlkna og kvenna í fótbolta. Troðið á stúlkum sem eiga bara að þegja og vera góðar. Þeim blæðir. Réttindi þeirra eiga að víkja fyrir fáeinum einstaklingum sem finna fyrir ónotum í eigin skinni, en eiga klárlega heima í karlaboltanum. Það er nefnilega þannig að karlar sækja í kvennaboltann en ekki öfugt. Opna á karlaflokkana fyrir fólk sem skilgreinir sig annað en karl eða konu. Það á ekki að opna á þennan möguleika, aldrei.

Stjórnarmenn DBU segi að þetta skipti ekki máli af því um fáa einstaklinga sé að ræða. Einn er of mikið, svo einfalt er málið. Hvað með ef fáum stelpum finnst þetta óviðunandi, á að taka tillit til þeirra?

Hvers vegna að ræða danska kvennaboltann. Áður en lagt um líður munu við á Íslandi lenda í sömu aðstæðum. Þá er gott að hafa séð þróun mála í nágrannalandi okkar. Vona að KSÍ taki þetta aldrei upp, dreymi ekki einu sinni um að blanda kynunum í fótbolta. KSÍ á að hugsa um öryggi og réttindi kvenna ef málið kemur til umræðu.

Eitt foreldri spyr stjórnarmann; ,, Hvenær er maður nógu kvenlegur til að kallast kona og dóttir mín þarf að spila fótbolta með honum. Má hann vera skeggjaður? Á hann að ganga í kjól? Nota farða? Annað?

Bloggari vil að biðja lesendur að íhuga hvað þeim finnst um þennan ágang karlmanna í kvennaíþróttir.


Frumvarp sem takmarkar málfrelsið

Í Ástralíu heldur brjálæðið áfram. Nú komust lög í gegnum neðri deildina sem takmarkar tjáningarfrelsi landans. Ríkisstjórnin mun verða úrskurðaraðili sannleikans.

Frumvarpinu var komið í gegnum þingið á meðan þingmenn voru uppteknir af forsetakosningunum í USA. Frumvarpið sem kallast MAD mun takamara málfrelsi og refsa þeim sem eru á móti stjórnvöldum.

Þeir sem hafna hinsegin hugmyndafræðinni, að karlmaður geti verið kona, að karlmenn eigi ekki heima í kvennarýmum, íþróttum eða annars staðar þar sem einkarými kvenna eru, eiga á hættu að lenda í vandræðum ef öldungadeildin samþykkir lögin líka.

Lögn vernda ekki lögbundin réttindi kvenna eins og þau eru. Verkamannaflokkurinn veit um ,,woke” andstöðu almennings og eru hræddir vegna komandi kosninga. Þeir urðu fyrir höggi í fylkiskosningunum og hafa tekið eftir því sem gerist um allan heim. Stefnu öfga-vinstri er hafnað.

Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir alla Ástrala þar sem sannleikurinn verður ekki byggður á staðreyndum heldur því sem ógnar stjórnvöldum. Það má ekki viðgangast.

Þessi löggjöf er í anda stefnu Vg og þeir reyndu að koma inn í þingið, takmarka tjáningarfrelsi manna og refsa þeim sem segja sannleikann. 

Hér má lesa greinina.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband