16.1.2024 | 09:06
Ég var stelpa en hagaði mér eins og strákur
Tonje Gjevjon skrifaði áhugaverða grein í norska hjúkrunarblaðið árið 2019 sem rakst á fjörur mínar. Hún svarar þar skólahjúkrunarfræðingi sem vill setja stelpur og stráka í box þegar þau brjóta hennar viðmið um hvernig stelpur og strákar eiga að haga sér.
Hér á landi má finna marga sem gera slíkt hið sama í stað þess að leyfa börnunum að vera eins og þau eru. Fullorðnir virðast hafa mikla þörf fyrir að segja börnum sem fara út fyrir ,,normið sem þeir hafa búið til að þau séu ófullkomin.
Lesum hvað Tonje Gjevjon hefur að segja.
Ég var stelpan sem var betri en strákarnir í fótbolta, spilaði íshokkí, vildi ganga í glímufélagið og á eftir pabba með verkfærakassa og trésmiðsbelti. Hvað myndi gerast í dag væri ég þetta barn?
Kvenfrelsun á árunum 19701980 hjálpaði til við að brjóta niður staðalímyndir um kynhlutverk. Fram komu hópar eins og ,,Konur í karlastörfum" og gripið var til aðgerða til að gera konum til dæmis kleift að stjórna Holmenkollen-boðhlaupinu. Það er kvenfrelsunin frá þessum tíma sem hjálpaði til við að skapa pláss fyrir stúlkur til að tjá sig og gera það sem þær höfðu hæfileika til. Á sama tíma var samkynhneigð afglæpavædd. Ég er ótrúlega þakklát fyrir réttindabaráttuna sem forfeður mínir tóku þátt í.
Kynjaferðalög eða tímaflakk?
Nú er 2019, en svo virðist sem lýðheilsuhjúkrunarfræðingurinn Stine Holm Sætervik vilji fara aftur til áranna 19501960, þegar litið var undarlega á stúlkur sem, ef fylgja á hennar rökfræði, ,,höguðu" sér eins og drengir. Í ræðu sinni í norska hjúkrunarráðinu þann 25.11.19 segir hún að börn sem tjá ,,kyn sitt á skapandi hátt" séu ,, trans börn. Hún lýsir því að þetta séu börn sem ,,klæða sig" eða ,,hegða sér ekki" í ,,samræmi við það kyn sem þau fæddust". Kyn er ekki deigklumpur sem þú getur mótað eins og þú vilt, það er raunveruleiki. Að kenna börnum og öðrum að þau geti breytt kyni sínu eða sjálfsmynd er villandi í besta falli, í versta falli mjög skaðlegt.
Það er ekki börnunum að kenna
Hvers vegna gerir hjúkrunarfræðingurinn lítið úr því að stúlkur kjósi frekar athafnir sem strákar stunda en stúlkur? Hvað fær lýðheilsuhjúkrunarfræðing til að flokka og greina brot með staðalímynd af kynhlutverkamynstri sem ,,að hegða sér ekki í samræmi við kyn sitt"? Það eru ekki börnin sem brjóta normið sem eitthvað er að. Hefur hjúkrunarfræðingurinn farið í tímaferðalag? Getur hún það, get ég: Hvað ef hún væri skólahjúkrunarfræðingur í mínum skóla?
Það er eitthvað að
Hvaða áhrif myndi það hafa á sjálfsálit mitt að skólahjúkrunarfræðingurinn segði mér að ég gæti verið strákur? Hvaða áhrif hefði það á mig? Þegar önnur börn og fullorðnir halda að þú sért strákur, þá finnst þér eins og það sé eitthvað að þér. Stelpur ættu ekki að líta út eins og strákar, ekki satt? Þær ættu ekki að spila fótbolta, íshokkí, glíma, hafa stutt hár eða klæða sig í ,,strákaföt."
Sem stelpa óttaðist ég að eitthvað væri að mér að ég hefði rangt fyrir mér. Vegna þess að þegar önnur börn og fullorðnir halda að þú sért strákur, þá líður þér eins og það sé eitthvað að þér. Að fá óæskilega athygli vegna þess að þú skerð þig úr getur leitt til alvarlegra sálrænna vandamála. Ég vildi bara fá að vera í friði og fá að gera það sem ég elskaði að gera. Börn eru viðkvæm, þau búa til sínar eigin skýringar sem þurfa alls ekki að eiga sér rætur í raunveruleikanum.
Börn sem skera sig úr
Hjúkrunarfræðingurinn rekur kynjarugling til barna sem brjóta væntingar. Hvenær gerðu fullorðnir börn sem skera sig úr að vandamáli og fordómum?
,,Tengslanet barnsins getur raskast vegna þess að það tjáir sig kynskapandi," skrifar hún. Ég er ósammála. Það truflar hjúkrunarfræðinginn að börn brjóti staðalímyndir um kynhlutverkamynstur. Svo mikið að hún ímyndar sér að við mennirnir getum farið í kynferðislegar ferðir.
Tilhneigingu til útskúfunar
Árið 2019 verða börn og ungmenni sem brjóta staðalímyndirnar um kynhlutverkamynstur fyrir miklum fordómum. Hjúkrunarfræðingurinn boðar einfaldlega að börn sem brjóta niður staðalímyndir um kynhlutverkamynstur geti fæðst í röngum líkama eða hafi kynvitund sem passar ekki við þann líkama sem þau hafa. Þessi skilaboð geta valdið börnum áföllum, þunglyndi, ruglingi og kvíða. Börn sem brjóta gegn norminu þurfa vernd frá fullorðnum sem ýta undir skaðlegar og óvísindalegar hugmyndir byggðar á fantasíukenningum og skilaboðum um að börn geti orðið meira en þau sjálf ef þau fá staðfesta nýja sjálfsmynd sem á að koma fram með kynþroska blokkerum og skurðaðgerðum.
Óæskileg athygli
Það er margt sem við getum gert sem getur hjálpað til við að tryggja að þeir sem skera sig úr verði ekki stimplaðir eða lagðir í einelti. En að fá óæskilega athygli og fá að vita að þú sért ekki sá sem þú hélst að þú værir er ekki það sem þessi börn þurfa á að halda. Börn eru óþroskuð, lítið fólk sem mun þroskast og verða þroskað fólk. Þau þurfa að vita að heimurinn er hnöttóttur, ekki flatur.
Útskýring á sársauka
Þegar börnum er sagt að þau séu ,,fædd í röngum líkama" opnast sá möguleiki að börnin haldi að þau hafi fundið skýringu á sársaukanum og útskúfuninni sem þau upplifa. Önnur börn gætu haldið að öll börn sem brjóta með kynhlutverkamynstrinu fæðist í röngum líkama. Börn hafa ekki þroska eða getu til að skilja að sú kynjafrásögn sem hjúkrunarfræðingurinn setur fram er ekki möguleg. Börn verða auðveld bráð fyrir fullorðna sem segja þeim að þau kunni að hafa sjálfsmynd sem passar ekki við líkama þeirra.
Samnefni
Lesbísk vinkona mín sagði mér að þegar hún var lítil hafi hún haldið að hún þyrfti að vera strákur til að vera með stelpum. Svo hún bjó sér til dulnefni sem var strákur. Börn gera svona, í huga barna er allt mögulegt. Kennari sem ég þekki sagði mér að hún hafi verið með nemanda sem krafðist þess að hann væri köttur í tvö ár. Hann mjálmaði, skreið á fjórum fótum í skólastofunni og vildi að allir kölluðu sig kött.
Fyrir utan að fólk hélt að ég væri strákur, hugsaði ég ekki mikið um hver eða hvað ég var sem barn, ég gerði bara hluti, lék mér og var virk. Allar stelpur eru skapaðar á mismunandi hátt og við tjáum okkur á mismunandi hátt, jafnvel þó við séum af sama kyni, sama gildir um alla stráka. Það þarf ekki að segja börnum að þau geti verið misheppnuð þau þurfa bara að vera þau sjálf og vera elskuð fyrir það sem þau eru.
Greinin er þýdd með leyfi höfundar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Guri Eggen teiknaði þessa mynd fyrir þremur árum (sjá neðar á síðunni). Teikningin var tilkynnt, af mönnum með fölsk brjóst og þeim sem hallast að klámi, svo oft að hún getur ekki talið það. Reikningi hennar var lokað og netverslunin eyðilögð. Hún segir það hafa verið þess virði. Hún segir að haldi þeir að ég hætti að afhjúpa kvenhatara og hommafælni þá hafi þeir rangt fyrir sér.
Áfram Eggen segi Tonja á snjáldursíðunni sinni.
Hér á landi hefur það sama gerst. Þeir sem kunna illa við að heyra sannleikann að karlar geti ekki verið konur hafa ráðist á pósthólf fólks sem hefur sig frammi. Fólk sem vekur athygli á þeirri staðreynda að öryggi stúlkna og kvenna eru í hættu þegar karlmenn láta sér vaxa hár, mála sig og klæða sig eins og konur og hafa aðgang að kvennarýmum. Kemur við kaunin á þessu fólki, annars hefðu árásirnar ekki átt sér stað. Hryðjuverk, það er eina orðið sem á við um svona gjörnunga fólks sem unir ekki sannleikanum.
Geir segir í athugasemd við eigin skrif; ,,Ég hef í kjölfar þessarar færslu fengið margar ábendingar um svipaðar árásir á tölvupósta fólks sem hefur það sameiginlegt að hafa gagnrýnt kyn- og hinseginfræðslu á litlum börnum, svo þá vitum við það. Má ekki segja að um skipulögð hryðjuverk sé að ræða á Íslandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2024 | 07:55
Það er óheiðarlegt og afar siðlaust að þrýsta á foreldra að samþykkja umskipti barna með því að ýkja sjálfsvígshættu
Finnski prófessorinn Riittakerttu Kaltiala bendir á að þær rannsóknir sem heilbrigðisstarfsmenn horfðu til sem dásömuðu ,,kynskipti barna sem líður illa í eigin skinni voru ekki eins góðar og áreiðanlegar og menn héldu. Þvert á móti, aðgerðirnar höfðu slæm áhrif á unglingana. Hún var sjálf í þeim hópi sem framkvæmdi aðgerðir á börnum en hefur nú skipt um skoðun eftir rannsókn sem hún ásamt fleirum gerðu 2015.
Nokkur lönd hafa tekið í handbremsuna þegar kemur að ,,kynskiptum barna og unglinga. Skortur er á sönnunum fyrir því að heilsa barna og ungmenna batni almennt með kynskiptismeðferð. Því miður er það ekki svo í Bandaríkjunum, þar ríkir iðnaður í málaflokknum. Henni hefur verið meinað að taka þátt í ráðstefnum tali hún gegn ,,kynskiptum barna og unglinga.
Ekki verður þaggað niður í vísindunum. Læknar sem neita að taka tillit til sönnunargagna sem gagnrýnendur leggja fram setja öryggi sjúklinga í hættu segir hún.
Hún er líka í uppnámi vegna þess að læknar og stofnanir vara reglulega bandaríska foreldra við að barn þeirra sé í sjálfsvígshættu standi þau í vegi fyrir ,,kynskiptiaðgerð. Sama söngur er kyrjaður hér á landi af transaðgerðasinnum. Kaltiala bendir á að ,,dauði hvers einasta ungmennis er harmleikur, en nákvæmar rannsóknir sýna að sjálfsvíg eru mjög sjaldgæf. Það er óheiðarlegt og afar siðlaust að kúga foreldrar til að samþykkja kynjameðferð með því að ýkja áhættuna á sjálfsmorði," skrifar hún í The Free Press.
Læknar sem segjast hafa lækningu við öllum sársauka lífsins ætti það að vera viðvörun til okkar allra.
Kaltiala sér sértrúarsöfnuð þar sem heilbrigðisstofnanir byrja skyndilega að trúa því að flókin vandamál ungs fólks hafi alltaf eina og sömu lausnina: ,,kynskiptiaðgerð.
Faraldur hefur ríkt í þessum málum. Á samfélagsmiðlum virðist það hafa verið knúið áfram að trans-aðgerðasinnum og hópþrýstingi að eðlilegur kynþroski og óöryggi með líkama sinn sé eitthvað óeðlilegt. Fái barn að fara í gegnum kynþroskann jafnar unglingurinn sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2024 | 08:51
Í stríði Ísraela og Hamas hefur Houthi-hreyfingin ráðist á alþjóðleg skip á Rauða hafinu
Það er skelfilegt til þess að hugsa að alþjóðlegar skipaferðir og mannskapur sé í hættu vegna árása hryðjuverkasamtaka sem telja sig geta stjórnað allt og öllum. Þessi hryðjuverkasamtök hafa hrakið fólk á flótta og drepið fleiri hundruð þúsund. Berliske tidende gerð stutt yfirlit yfir hvaða lýður er hér á ferð. Menn hrópa upp hér á landi, frelsum Palestínu. En hvað með fólkið í Jemen sem þessi samtök sem styðja Hamas hefur stráfellt. Hefur íslenskur almenningur eitthvað um það að segja?
Nóttina milli fimmtu- og föstudags (í síðustu viku) hafa Bandaríkin og Bretland ráðist á skotmörk sem tengjast Houthi-hreyfinguna í Jemen.
Hver og hvað er Houthi-hreyfingin?
- Houthiarnir er vopnaður hópur sem er undir minnihlutahóp shia múslíma í Jemen.
- Houthi-hreyfingin fékk nafn sitt frá stofnanda hennar, Hussein al Houthi.
- Hópurinn var myndaður í kringum 1990 til að berjast gegn- að þeirra eigin sögn- spillingu þáverandi forseta Ali Abdullah Salehs.
- Frá 2014 hefur Houthi-hreyfingin barist í borgarastyrjöldum gegn Jemenska ríkisvaldinu.
- Samkvæmt FN hafa borgarastyrjaldirnar kostað 377 þúsund mannslíf og valdið að um fjórar miljónir manna er á flótta.
- Houthi-hreyfingin lýsir sé sem andspyrnuhreyfingu undir stjórn Írans gegn Ísrael, USA og Vesturlöndunum í slagtogi með Hamas og Hizbollah
- Íran styður Houthi-hreyfinguna.
Yfirvöld halda því fram að Houthis reyni að ná völdum í landinu til að setja trúarlög byggð á kenningum Zaidi. Hópurinn er einnig grunaður um að vilja endurreisa gömlu Zaidi stjórnina frá því fyrir byltinguna í Jemen. Þetta má lesa um hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2024 | 09:27
Hvern eiga lögin eiginlega að vernda?
Það er þingið í gegnum lagasetningu sem hefur þvingað okkur til að viðurkenna að menn geti verið konur og lesbíur. Ekki af því þeir eru það heldur þeir segja það. Það fær afleiðingar, sérstakleg fyrir stúlkur og konur, segir Tonje Gjevjon.
Það hefur afleiðingar þegar fjölmiðlar skrifa að maður sem hefur drepið konuna sína segist vera kona. Það eru villandi upplýsingar og tilheyrir falsfréttum.
Kynhneigð, tilfinningar, blæti eða sjálfsmynd karla breytir ekki þeirri staðreynd að þeir eru karlmenn. Réttindi stúlkna og kvenna, byggðar á kynjaréttindum er ekki hægt að verja þegar karlmenn eru gerðir að konum í lögum eða teljast til kvenna.
Lög þingsins, um kynvitund, hefur svipt stúlkur og konur þeim verkfærum sem vernda þær gegn ofbeldismönnum- nefnilega að neita ÖLLUM körlum um aðgang að stúlkna- og kvennarými.
Lögreglan og dómsmálaráðherra Emilie Enger Mehl veit að kynferðisafbrotamenn gera allt til að ná í fórnarlamb. Nú geta þessir karlmenn sagst vera konur og notað búningsklefa stúlkna og kvenna. Sama um menn sem með kynferðislegu blæti sínu vilja umgangast ungar stúlkur og konur í búningsklefa kvenna.
Lögreglan í Noregi beitir úrræðum til að afhjúpa þetta í Noregi. Hvernig útskýrir Mehn dómari að með því að taka kynvitund inn í löggjöf hafi ríkisstjórnin opnað dyrnar að búningsklefum stúlkna og kvenna sem eru opnir fyrir barnaníðinga sem hafa nú fullan aðgang að búningsklefum, taka myndir og vera í herbergjum þar sem stúlkur eru naktar?
Hvers vegna situr Barna-og fjölskylduráðherrann Kjersti Toppe svo róleg í bátnum?
Hvern eiga lögin eiginlega að vernda?
Á Íslandi spyrjum við sömu spurninga. Af hverju leyfir þing Íslendinga karlmönnum, með kynfæri sín, að fara í búningsklefa með stúlkum og konum. Hvar er Barnamálaráðherrann Ásmundur Einar Daðason. Skólayfirvöld. Borgarstjórinn. Barnaheill. Foreldrafélög skóla. Kennarar, Kennarsamband Íslands og Félag grunnskólakennara. Kvenréttindafélag Íslands. Landssamband foreldra o.fl. o.fl.
Öll félög og stéttir sem eiga að vernda börn og ungmenni virðast heilum horfin þegar reyndir á vernd barna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reynið að skilja þetta
en það er augljóslega erfitt. Í áratugi hefur straumur múslíma verið staðreynd í dönsku samfélagi. Afleiðingarnar og það sem við þekkjum eru engir smámunir. En, hvers vegna fer það ekki inn hjá dönsku lögreglunni og stjórnmálamönnunum hvað sé í gangi? Jafnaðarmenn (SF) eiga erfitt með að skilja það. ,,Rúmlega 600 múslímar fengu ríkisborgararétt það er stórt fyrir Danmörku hljómaði frá jafnaðarmönnum.
Sex hundruð og fjörutíu manns (640) fengu danskan ríkisborgararétt, ókunnugir múslímar frá Menapt-löndum sem eru Mið-Austurlöndin, Afríka, Afganistan og Tyrkland. Þegar ríkisborgararétturinn mun gilda frá áramótum mun fjöldi ríkisborgara frá þekktum múslimskum Menapt-löndum vera 155.928.
Stórt? Stórt fyrir Danmörku segja jafnaðarmenn. Já m.a. útgjöldin fyrir danska skattgreiðendur til ókunnugra ofan á þá 93 milljarða sem borgaðar eru. Ætli það renni ekki upp fyrir jafnaðarmönnum einn dag hve vantrú Dana er í stigveldinu þegar fjallað er um íslam sem er ekki bara trú heldur stjórnmálalegt kerfi tilbúið að yfirtaka Evrópur fyrir framan nefið á auðtrúa stjórnmálamönnum sem sjá ekki afleiðingarnar.
,,Íslamistarnir taka yfir Evrópu smá saman segir mjög þekktur rithöfundur Boualem Sansal. Þetta er bara byrjunin á hótun sem vestrænir stjórnmálamenn skilja ekki. Hvers vegnar hafa vesturlanda þjóðirnar ekki uppgötvað þessa þróun? Í löndum íslamista er fangelsi og aflífun ef þeir gera ekki eins og lögin segja þeim. Í Evrópu eru þeir teknir í viðtal í sjónvarpi þar sem maður heyrir þá segja að réttarkerfi í vesturlöndunum er byggt á kristinni trú, sem er ást og friður. Svo segja menn ,,Hann hefur drepið fimm manneskjur svo hann hlýtur að vera andlega veikur. Við getum læknað hann. Þetta eru skoðanir sem múslímar notfæra sér segir Sansal. Að sama skapi hafa Evrópubúar veikt samfélögin með Evrópusambandinu eins og birtingarmynd þess er í dag, sjá b.dk frá 9. des.
,,Þetta er brjálæði. Ég á ekki í neinum vanda með að aðstoða fjölskyldur en það fáránlegt að við notum svo mikla peninga. Svona hljómar það frá formanni félagsmálaráðs í Árósum, Anders Winnerskjold (S) eftir að sveitarfélagið gerði upp að frá 2009 hefur það notað 64 milljónir danskra króna í félagsþjónustu til fjölskyldna glæpamanna auk útgjalda til lögreglu og í þágu barna. Þetta kom fram á DR 12.12.
Að sögn stjórnvalda og lögreglu eru það um tíu fjölskyldur af erlendum uppruna sem kosta sveitarfélagið þessa upphæð. Lesið hér.
Asger Aamund segir enga peninga sé að finna til að endurreisa varnir Danmerkur. Eftir áratuga niðurrif í fjármálum hersins liggur hann í rústum. Nýjasta skýrsla NATO um varnir Dana kemur svo illa út að stjórnvöld neita að birta hana. Niðurstaðan er skýr, Danir geta ekki varið sig, ekki einu sinni í nokkra daga þar til NATO kemur til aðstoðar.
,,Hvers vegna hafa stjórnmálamenn ekki getu, eða vilja ekki skilja, hvernig hlutirnir hanga sama? Danmörk hefur fámennasta lögreglulið í Evrópu út frá mannfjöldatölum. Lögreglan er ekki nógu fjölmenn til að framfylgja sömu reglum um fólk frá Mið-Austurlöndum og hún framfylgir gagnvart Dönum. Vinstri öfgamenn líta á það sem helsta verkefni sitt að réttlæta ástand mála og munu alltaf halda fram að flóttamenn frá Mið-Austurlöndum og nágrenni sé ,,refsað vegna kynþáttafordóma. Allt bendir til að þeim verði ekki refsað vegna skorts á fjármunum hjá lögreglu, ákæruvaldinu og fangelsunum.
En sökin liggur ekki hjá flóttafólkinu frá Mið-Austurlöndunum- hún er hjá elítu stjórnmálanna sem láta þetta gerast. (Henrik Dahl, jp.dk)
Make yourself sheep and the wolves will eat you. (Benjamin Franklin)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2024 | 08:23
Foreldrafélög barna í kynáttunarvanda (ónot í eigin skinni)
Í Noregi og Svíþjóð eru starfrækt foreldrafélög barna sem glíma við ónot í eigin skinni. Félögin bera sama nafn Genid. Félögin halda úti upplýsingasíðu, hvort í sínu landi, fyrir foreldra sem eru í sömu stöðu og þau. Hér á landi fellur foreldrafélagið inn í trans- hagsmunasamtökin.
Án íhlutunar hagsmunasamtaka
Foreldrafélögin hafa sérstöðu. Þau tengjast ekki á neinn hátt inn í trans-hugmyndafræðina eða samtökum sem tengjast henni, pólitík eða trúarbrögðum. Þetta eru foreldrar sem vilja börnum sínum allt hið besta og nota til þess gagnreyndar aðferðir og þekkingu. Þau vilja réttar upplýsingar sem sérfræðingar hafa fram að færa, m.a. um lyfjagjöf. Foreldrafélögin voru stofnuð því foreldrum fannst þau vanta hlutlausar upplýsingar og ráðgjöf.
Hvað hafa þau að segja
Foreldrar vilja að börnin fái að taka út kynþroska án aðkomu læknisfræðilegrar íhlutunar. Þau vilja að börnin fái leiðsögn óháðra aðila, ekki hagsmunasamtaka. Þau hafa lagt áherslu á að hlusta á fræðimenn á sviðinu í heimlöndum sínum.
Foreldrarnir benda á að oft eru aðrir andlegir sjúkdómar undirliggjandi hjá barni sem allt í einu glímir við þann vanda að það getur ekki skigreint kyn sitt. Þau nefna sjálfsskaða, ADHD, einhverfu, átraskanir, áföll, o.fl. Allt veikindi sem þarfnast annars konar umönnunar.
Markmið foreldrafélagana er að ungu fólki sem á í vanda með að skilgreina kyn sitt sé mætt með hreinskilni, varúð og að umönnun þeirra, eins og öll önnur umönnun, sé gagnreynd. Við elskum börnin okkar og viljum þeim það alt hið besta segja þau.
Foreldrarnir í Noregi bentu á að rannsóknir sýni að félagsleg umskipti, að skipta um nafn og fornafn, geti orsakað að barn festist í kynjamisræminu og þar með verður erfiðara fyrir barn að viðurkenna líffræðilega kynið sitt.
Orðið fyrir aðkasti
Foreldrafélögin benda á að trans-aðfergasinnar og hagsmunasamtök hafi gagnrýnt þau. Þetta fólk hefur kallað foreldrana fordóma- og hatursfulla. Sænska deildin skrifaði grein í Gautarborgar póstinn, sem er dagblað, til að vekja athygli á þessu.
Þau segja m.a. við höfum lengi velt því fyrir okkur hvers vegna trans-aðgerðasinnar og bandamenn þeirra hafi meiri áhyggjur af því að fordæma samtökin og foreldra í stað þess að svara okkur í málefnalega.
Foreldrarnir spyrja, Hvað segjum við börnunum okkar eftir 10 ár ef við þegjum núna og þau draga okkur til ábyrgðar fyrir þöggunina?
Heimasíða sænska félagsins er Genid.se og bæði félög hafa snjáldursíður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2024 | 09:35
Merkel opnaði dyr Þýskalandi fyrir íslamistum- þegar hommi var drepinn leit hún í hina áttina- nú beinist reiðin að henni
Kvöld eitt í október 2020 gengu tveir menn á götu í þýska bænum Dresden og héldust í hendur.
Múslímskur maður sem hallast að ríkis Íslams sá þá. Hann heitir Abdullah al Haj Hasan og hefur sýrlenskan bakgrunn. Honum fannst augljóslega að þessir menn ættu að deyja af því þeir litu út fyrir að vera hommar. Hann stakk þá báða með hníf. Annar dó, hinn lifði.
Í kjölfarið af þessum óhugnanlega atburði hefur umræða skapast um ástæðu þessarar blóðugu árásar. Það er verið að tala um árás gagnvart samkynhneigðum. En hver er ástæðan?
Hryðjuverk íslamista í landi Merkels- Þýskalandi
Það lítur ekki út fyrir að gerendur séu bara menn sem tilfallandi eru ósáttir við samkynhneigða. Reiði þeirra hangir saman við trú þeirra, Íslam. Fyrir íslamista er það skýrt að þeir viðurkenna ekki samkynhneigð. Fyrir þá marga þýðir að samkynhneigðir eru réttdræpir. Það var tilfellið í Dresden.
Sá sem lifið hefur vill ekki að drápið verði minnst sem ,,hómófóbískt ofbeldi. Hann vill skýra fordæmingu á hryðjuverkum íslamista. Hann krefur stjórnmálamenn að tala skýrt og fordæma íslamista og grimmdarverk þeirra.
Hvar var Merkel?
Margir stjórnmálamenn sem hafa tekið þátt í fordæminu íslamistanna og hryðjuverka. Einn stjórnmálamaður sker sig úr með fjarveru sinni Angela Merkel. Hún er fyrrverandi kanslari og ber ábyrgð á íslam væðingu landsins og afleiðingum. Eftirlifandi og syrgjandi makinn segir ,,Satt að segja fannst mér það dónalegt.
Merkel gaf eftir bæði gagnvart Pútin og íslamistunum.
En í raun og veru snýst þetta ekki um ósvífni. Merkel alltaf átt í erfiðleikum með að setja íslamistum stólinn fyrir dyrnar. Rétt eins og hún hefur átt í erfiðleikum með að koma böndum á alræðisstjórn Pútíns.
Hún ber mikla ábyrgð vegna veikburða og eftirlátssamra tengsla sinna við bæði alræðisstjórn Pútíns og öfl íslamista sem hafa náð banvænni fótfestu í Þýskalandi og Evrópu almennt.
Dómarinn í málinu sagði ,,Hann vildi refsa þeim með lífi þeirra því þeir voru par af sama kyni. Þetta er bara einn angi þeirra ofbeldisverka sem Angela Merkel ruddi brautina fyrir með slakri innflytjendastefnu. Gerandinn kom til Þýskalands sem ,,fylgdarlaust flóttabarn. Foreldrarnir sendu hann af stað svo hann gæti notið betri lífskjara í Þýskalandi.
Hryllileg ábyrgð
Málið hefur haft íþyngjandi áhrif á þann ljóma sem stefna Angela Markel hafði í málum hælisleitenda. Abdullah al Haj Hasan kom til Þýskalands sem fylgdarlaust flóttabarn. Hann var alinn upp með múslímskri ofbeldismenningu og notaði hana í Þýskalandi þegar hann fékk aðgang að þýsku samfélagi.
Merkel brást ekki við þessuari ofbeldisfullu menningu en þau viðbrögð hefðu verið nauðsynleg.
Abdullah al Haj Hassan var íslamisti og hann framkvæmdi viðurstyggilega árás vegna þess að hann var íslamisti. Samkynhneigðu mennirnir tveir áttu að sæta refsingu Allah fyrir að vera samkynhneigðir.
Íslamistar telja lögmætt að drepa homma- og það gerði Abdullah al Haj Hasan- með hníf í hönd. Hann særði annan manninn það mikið að hann féll í jörðin og lést.
Dómarinn í málinu sagði um gerandann: ,,Hann virkar sem róttækur íslamisti. Hann vildi refsa mönnunum með lífinu fyrir að vera hommar.
Markel veikburða og eftirlátssöm bæði gagnvart íslamistum og kommúnistum
Angela Markel átti að vera fremst í flokki og fordæmi þennan óhugnanlega gjörningi. En Merkel hefur aldrei verið til gagns í baráttunni gegn íslamistum. Hún var veikburða og eftirlátssöm gagnvart íslamistum, eins og hún var gagnvart kommúnisma Pútins.
Hún gekk of langt til að friða Pútin- jafnvel smjaðra fyrir honum. Hún gekk of langt með að sýna ,,skilning á þeim íslömsku öflum sem stöðugt breiddist út í Þýskalandi.
Það kom ekki í veg fyrir að hún hefði eigin hvatningakór af réttum sérfræðingum stjórnmálanna- líka í Danmörku. Í dag ættu sérfræðingarnir að horfa á ranga og öfgafulla mat þeirra á mikilvægi Merkel.
Vandræðalegt!
Hún færði íslamistum landið á silfurfati
Nú eru margir Þjóðverjar áhyggjufullir um hvað gerist með landið þeirra. Það er hægt að sjá með auknum stuðningi á hægri væng stjórnmálanna. Enginn hefur átt jafn ríkan þátt í því og Angela Markel að færa íslamistum landið á silfurfati.
Hún hefur ekki hugmynd um hvernig á stoppa það sem hún setti í gang. Markel hefur lagt sitt að mörkum til íslam væða land sitt.
Skaðinn vegna áhrifa Merkels er óbætanlegur
Það er þörf á marktækri stefnubreytingu. Væntanlega mun ástandið batna með þeirri hægri stjórn sem virðist vera á teikniborðinu.
En Þýskaland mun bera þess merki að Merkel var við völd.
Þær afdrifaríku breytingar í samsetningu samfélagsins, hælisleitenda og Þjóðverja, munu móta landið til framtíðar. Skaðinn frá áhrifum Merkel mun sýna að hann er að mestu leyti óafturkræfur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2024 | 08:54
Bera skólastjórar ekki ábyrgð
Hlustaði á áhugavert viðtal við móður sem vill ekki hinsegin fræði fyrir ung börn sín. Hún bað skólastjórann um undanþágu fyrir kennslunni en hann neitaði. Eftir því sem ég hef komist næst er um skóla í Kópavogi að ræða.
Að kennarar, með samþykki skólastjórnenda, skuli troða sínum hugmyndum og eigin trú inn upp á nemendur er fyrir neðan allar hellur. Linda bendir á hvernig kennararnir töluðu við börnin hennar. Hún segir að lög um grunnskóla séu brotin. Þetta fer saman við það sem norska foreldrafélagið segir sem hafnar trans hugmyndafræði inn í skólakerfið.
Ljóst er að foreldrar þurfa að taka höndum saman vilji þeir ekki að börn þeirra sitji undir þessari hugmyndafræði sem nokkrir einstaklingar í samfélaginu boða sem hina einu réttu. Áróðurinn sem fer fram í skólakerfinu, með flöggun trans fána, alls kyns skilaboð inni í kennslustofum og göngum o.s.frv. er á ábyrgð skólastjóra og kennara þeirra sem fara fyrir hugmyndafræðinni.
Sturla Krisjánsson sálfræðingur og fyrrverandi skólastjóri talar um áföll sem börn geta upplifað þegar svona kynjaruglingur á sér stað. Stundað í mörgum skólum. Barn getur aldrei orðið annað en það sem genin segja til um.
Linda segir frá vanda stráks sem hann lenti í eftir að kennari sagði að hann vissi ekki hvort hann væri strákur eða stelpa, hann ætti eftir að ákveða það. Þvættingur, það á enginn eftir að ákveða kyn sitt eftir að hann fæðist.
Ljóst er á máli Lindu að skólastjóri braut lög um grunnskólann gagnvart nemendum, fylgir því ábyrgð?
Sturla segir skóla fara yfir þau mörk sem þeim er ætlað og bendir á að áfall drengsins sé lýsandi dæmi um það. Skólastjórar eiga að endurskoða málaflokkinn. Þetta gengur ekki upp eins og það er.
Sturla bendir á samkvæmt lýsingum Lindu þá er þetta ekki hlutverk skóla að boða hugmyndafræði sem megin þorri manna styður ekki.
Hér má sjá dæmi um áróður úr íslenskum skóla í Kópavogi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2024 | 08:08
Kennari veldur nemanda sínum áhyggjum og svefnlausum nóttum
Það gerir hann með boðun hugmyndafræðinnar (eigin trú eða skoðun) að strákurinn sé ekki fæddur í réttu kyni. Hver ber ábyrgð á slíkri hugmyndafræðikennslu? Kennari eða skólastjóri?
Það kemur fram í þessu viðtali að boðun [eða áróður] hugmyndafræðinnar er brot á grunnskólalögum og barnasáttmálanum. Enginn kennari á að breiða út eigin skoðun eða trú í kennslustofu. Börn eiga að finna til öryggi í skólanum.
Eins kemur fram í viðtalinu, það segja ekki öll börn frá eins og börn þessara kvenna. Skólastjóri hefur ekki mætt foreldrum með skilningi, vammleysi og auðmýkt.
Sammála Sturlu Kristjánsssyn sálfræðingi sem segir í lok viðtalsins að skólayfirvöld verða að endurskoða kennsluhætti slíkra kennara og skoða hvort rétt sé að leggja þetta á börn. Sumt gangi ekki í skólakerfinu.
Geir Ágústsson greindi þetta nokkuð vel hér, m.a. með orðunum ,, Foreldrar ættu líka að vera alsælir. Þeir sjá nú minnkandi varnir gegn því að kennarar geti hreinlega rústað tilfinningalífi barnanna í þeirra umsjón. Kennarar sem láta sér ekki duga að hunsa klámfræðslu ríkisvaldsins og byrja hreinlega að tjá sig opinberlega mega von á miklum vandræðum. Hlutverk kennara er jú ekki að kenna gagnrýna hugsun, að vega og meta, rannsaka og leita sannleikans. Nei, þeirra hlutverk er að mata, heilaþvo og hræða til hlýðni.
Bloggar | Breytt 8.1.2024 kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)