13.12.2024 | 12:36
Brjóstagjafir karlmanna
Mikið gengur á íslensku samfélagi. Samkynhneigður karlmaður sætir rannsókn lögreglu vegna ummæla sem hann lét falla um brjóstagjöf útlendings sem tekur hormón til að framkalla einhvers konar vökva til að gefa barni. Útlendingurinn leggur síðan barnið á brjóst og lætur það sjúga geirvörtuna. Hann er ekki sá eini heldur fer þeim fjölgandi sem uppfylla hvatir sínar á þennan hátt.
Víða um heim
Það er ekki bara hér á landi sem menn hafa orð á því hve ónáttúrulegt þetta er. Nokkrir karlmenn hafa státað sig af að gefa barn brjóst og birta myndir af sér á samfélagsmiðlum, með hvítvoðung á brjósti. Væri barnið aðeins eldra myndu menn sennilega tala um kynferðislegt ofbeldi gegn barni.
Karlmaður hefur ekki líffræðina til að hafa barn á brjósti og því ætti heimurinn að hafna þessu. Vissulega má undrast læknana sem láta hafa sig af fíflum og gefa karlmönnum, með einkennilegar hvatir, hormón í þessum tilgangi. Það er eitthvað verulega mikið að þegar læknar eru komnir út á þessa braut. Kannski eru peningar hvatinn.
Réttur barns
Samtökin 78, Kvenréttindafélag Íslands, Barnaheill, Trans Ísland, Stígamót, Geðhjálp og UNICEF hafa ekki látið heyra frá sér um málið. Þessi samtök vilja þagga niður tjáningarfrelsið, það gerðu þau með ályktun í aðdraganda kosninganna. Svo má undrast að Barnaheill, Geðhjálp og UNICEF séu þarna á meðal. Allt eru þetta félagssamtök á ríkisspenanum.
Reyndar þögðu Samtökin 78 ekki, þau ákváðu að kæra Íslending fyrir að segja það sem flest okkar hugsa. Þetta er misnotkun á barni. Ómálga barn er þarna notað til að upplifa fantasíu um hvernig er að hafa barn á brjósti. Konur vita að þegar barn er á brjósti dregst leg þeirra saman, það er annar tilgangur með þessu en fóðra barnið. Hvaða tilfinningu fær karlmaður við sog barns á geirvörtu?
Myndir þú kona góð vilja að barnið þitt væri notað á þennan hátt?
Lögreglan
Vissulega er lögreglan komin út á hálan ís þegar hún er farin að rannsaka tjáningarfrelsið. Hvar mun löggan draga línurnar? Hvað má segja og hvað ekki. Hver móðgast og hver ekki? Í Danaveldi, segja mér Danir, yrði svona kærum vísað frá ,,med det samme því tími lögreglu er verðmætari en svo að þeir fari í tittlingatog um hvað móðgar hvern, hvernig og hvenær.
Bloggari sendi bæði Mannlíf og Vísi þennan greinarstúf. Hvorugt blaðið birti. Hvað segir það okkur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2024 | 09:47
Húrra stelpur, sigur!
Stjórnmálamaðurinn Moira Deeming, sem berst fyrir réttindum barna og kvenna, vann dómsmálið í Ástralíu. Hún lagði formann sinn John Pesutto, hann fleygði henni út úr flokknum og gerði lítið úr henni með ummælum um að hún hefði svert flokkinn. Ástæðan var að hún tók þátt í einum af fundum Kellie-Jay-Keens ,,Let Women Speak" í Melbourne, þar sem hópur nýnasista birtist allt í einu.
Pesutto hélt fram í réttinum, að Moira Deeming hefði átt að hlaupa burt um leið og hún sá nýnasistana.
John Pesutto sverti ekki bara flokksmann sinn heldur líka Kellie-Jay Keen með ógeðfeldum ummælum m.a. að hún væri í slagtogi með nýnasistum2. Ummælin voru þess eðlis að Kellie hótaði honum málsókn. Hann baðst síðar opinberlega afsökunar á ummælunum á heimasíðu sinni.
Við skulum vona að stjórnmálaferli Johns sé lokið. Hann hefur ekki viðurkennt konur sem konur heldur eitthvað félagslegt fyrirbæri. Konur sætta sig ekki við það.Hann viðurkennir heldur ekki þær skelfilegu afleiðingar sem hormónalyfjagjafir hafa á börn. Svona stjórnmálamenn eiga ekki að sjást eða heyrast í. Lítitllækkan konur. Hér á landi finnast slíkir stjórnmálamenn.
Einstaka orustur tapast en sigurinn verður okkar stúlkna og kvenna að lokum.
Hér má lesa og hlusta á hana.
Hún sendi frá sér yfirlýsingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2024 | 10:36
Lögum um kynrænt sjálfræði þarf að breyta eða fella úr gildi
Margir láta í sér heyra og tala um kyn sem eitthvað huglægt. Að við getum valið kyn allt eftir hvernig okkur líður. Það er ekki rétt. Kyn er ekki valkvætt. Kyn er líffræðilegt og óbreytanlegt, segir í steigan.no.
Hvernig komumst við, í alvöru, á þann stað að huglægur skilningur á raunveruleikanum yfirgnæfir náttúruvísindin, og segir okkur að hægt sé að skipta um kyn?
Jæja, við erum með ríki sem hefur ákveðið að það sé huglægur skilningur á raunveruleikanum sem eigi við, að konur geti verið með getnaðarlim og að karlar geti fætt barn. Þegar þetta er nú í fararbroddi í leikskólum og skólum, er maður ekki hissa sá sem ,,gúgglar þetta og fær upp sem,,staðreynd" að karlar geti farið á blæðingar skal engan undra, en það er bein afleiðing af lagabreytingum um kynrænt sjálfræði.
Það var áhugavert að heyra þingmanninn sem datt úr af þingi, vegna þess að fólk fékk nóg af ,,vókinu sem Píratar og Vinstri grænir hafa boðið undanfarin ár, að halda fram að jafnrétti hinsegin fólks væri í hættu. Þórhildur Sunna talaði ekki orð um réttindamissi stúlkna og kvenna, einkarými þeirra. Hinsegin fólk hefur nákvæmlega sömu réttindi og aðrir.
Í Noregi hafa foreldrar risið upp gegn klámvæðingu í bókum ætlað börnum. Hér má lesa færslu um að skólabókasöfn hafa fjarlægt ákveðna bók, of mikil klámvæðing fyrir börn. Þessi sama bók var þýdd hér á landi, íslenskir foreldrar hvar eru þið? Fræðslustjórinn sem fékk málið í sínar hendur var sammála foreldrum sem kvörtuðu. Börnin í fyrirrúmi þarna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2024 | 11:36
Engin trygging þó skilgreiningin sé kona
Rannsóknir sýna að ,,trans konur (það vil segja, karlmaður sem segist vera kona) eru ekki síður hættulegir konum en aðrir menn- heldur ekki, þegar þeir hafa látið fjarlægja typpið-kannski þvert á móti segir Lotte Ingerslev.
Í nýju færslunni minni, segir Lotte, færðu gögnin fyrir:
- Hversu margar ,,trans konur" hafa framið ofbeldisglæpi (þar á meðal kynferðisglæpi) eftir að limur þeirra var fjarlægður
- Hversu margar ,,trans konur" eru með lim öfugt við það sem flestir gætu haldið
- Hversu oft ,,trans konur" fremja ofbeldis- og kynferðisglæpi samanborið við aðra karla
- Hvaða glæpi eru ,,trans konurnar" sem sitja í fangelsi venjulega dæmdar fyrir
Hér má lesa, og í blogginu er að finna krækjur á heimildirnar sem hún bendir á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2024 | 11:30
Gluggaði í bókin Saga Reykjavíkurskóla
Á bls. 265 stendur, undirstrikun og feitletrun er bloggara: ,,Stundum hefur skólanum verið fundið það til foráttu að hann leggi ekki nógu mikla áherzlu á að móta skapgerð nemenda, fegra hana og bæta. Einkum hafa þessar aðfinnslur verið háværari á síðari tímum. Vel má vera, að eitthvað kunni að vera til í þessu. En því er til að svara, að síðan heimavistir hurfu úr skólanum eru nemendur og kennarar ekki samvistum nema brot úr degi í 8-9 mánuði. Eru það því aðrir aðilar en kennarar, sem hafa tækifæri til að hafa áhrif á skapgerð nemenda. En hitt er óhætt að fullyrða, að kennarar hafa yfirleitt haft hinn bezta vilja til þess að hafa góð áhrif á nemendur sína. Kennarar haf ekki haft aðra leið til þess að móta skapgerð þeirra en með því að veita þeim kunnáttu og þekkingu til þess að greina gott og illt og vekja hjá þeim vinnugleði og virðingu fyrir því sem satt er og rétt. Vissulega taka allir kennara undir ályktunarorð Sveinbjarnar Egilssonar í setningarræðu hans 1. október 1946: ,,Það er því mín áminning, mín upphvatning og bón til yðar, að þér helgið þetta hús með iðni og ástundun með spöku, rósömu og siðsömu líferni.
Kunnátta og þekking er eitthvað sem finnst ekki í Aðalnámskrá grunnskóla síðan Katrín Jakobsdóttir þáverandi menntamálaráðherra breytti henni. Þáverandi menntayfirvöldum fannst mikilvægara að meta hæfni og færni. En maður getur velt fyrir sér ef þekking og kunnátta er ekki metin hvernig skal meta hvort nemandi hafi hæfni eða færni, þekking og kunnátta hlýtur ávallt að vera undirstaða undir hæfni og færni.
Í skólakerfinu í dag búum við ekki til gagnrýna nemendur. Þeir eru mataðir á upplýsingum sem námsgagnahöfundum og kennurum finnst mikilvægt, burtséð frá hvort það sé satt og rétt, gott eða illt. Enginn þarf að undrast hnignum skólakerfisins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2024 | 17:38
Hvernig voga þeir sér?
Það er áhugavert að lesa um og hlusta á stúlkuna, Ahnaleigh. Hún er í íþróttakona. Hlaupari. Hefur náð nokkuð langt. Fyrir stuttu tapaði hún fyrir karlmanni, sem skilgreinir sig sem konu, og nú segir hún frá líðan sinni og óréttlætinu við þetta.
Hún kallar eftir fullorðna fólkinu, til að vernda stúlkur í íþróttunum. Hún 14 ára sér að þetta gengur ekki svona. Henni var sagt að hún ásamt þeim sem tala gegn karlmönnum í kvenníþróttum beri ábyrgð ef trans-íþróttamaður tekur eigið líf. Hún er sökuð um transfóbíu, kunnugleg stef!
Hvernig vogar fólk sér að tala svona við barn, hvernig? Auðvitað ber hún enga ábyrgð á tilfinningum og hegðun annarra. Í upphafi átti strákurinn, sem skilgreinir sig sem stelpu, ekki að keppa. Hann hefur yfirburði í líkamsvexti og styrk og það veit hann.
Enn og aftur, burt með karlmenn, sem skilgreina sig sem konu, úr íþróttum kvenna. Trump lofaði að fjarlægja karlana, hann lætur verða að því segja menn. Vonandi. Við þurfum að loka á þá alls staðar. Mikil ólga er í Danska knattspyrnusambandinu. Þar á bæ vilja menn leyfa strákum að spila með stúlkunum. Sem betur fer hefur sú ákvörðun mætt andstöðu, samt ekki nógu mikilli. Þarf miklu fleiri. Sýnum stelpum virðingu, karlmenn út úr kvennaíþróttum.
Í greininni má hlusta á stúlkuna en hún hélt tölu á samkomu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2024 | 12:50
Fæðandi persóna á stofu 7
Það er fæðandi leghafi á stofu 7 hjá okkur skrifar einstaklingurinn sem tekur á móti börnum, punghafinn ákvað að vera hjá persónunni þar til fæðing er yfirstaðin. Staðan á leghafanum er góð, útvíkkun á blússandi siglinu og barnið gæti fæðst á næstu klukkustund.
Punghafinn fékk allar leiðbeiningar um hvernig staðið er að þessu. Leghafinn er grátgjarn og finnur til, þess vegna þarf punghafinn að halda ró sinni.
Gerðist hratt, leghafinn fæddi barnið og punghafinn viðstaddur. Barninu verður ekki úthlutað kyni, því það finnur sjálft upp á hvort kynið það ætlar að vera síðar meir. Leg- og punghafinn horfðu á okkur þegar við sögum það. Þið eignuðust kynlaust barn!
Heimsókn foreldri foreldris
Foreldri foreldris og foreldri foreldris mættu til að líta kynlausa barnið augum. Stórforeldri punghafans fékk stól til að sitja á, enda kominn til ára sinna. Gat samt ekki beðið með að sjá barnið.
Þegar stórforeldrið spurði hvort kynið barnið væri sögðum við eins og eins og aðgerðarinnar segja, barnið er kynlaust. Við úthlutum ekki kyninu að þessu sinni, stundum drögum við upp úr hatti hvort kynið barnið á að vera, en ekki að þessu sinni. Stórforeldrið horfði með forundran á okkur. Þetta er ekki hægt sagði það (megum ekki nota hann og hún), þetta gengur ekki.
Strákur var það heillin
Langafi föðurins tók ekki í mál þessi eyðilegging á tungumálinu. Hann sagði ljósmóðurinni (sem er dásamlegt orð) til syndanna og vildi fá að vita kyn barnsins. Er það drengur heillin sagði sá gamli. Já þú hefur eignast langafastrák. Hvernig líður móðurinni eftir fæðinguna spyr móðuramman. Vel er svarið, allt gekk vel og pabbinn er enn hjá henni. Faðir drengsins fékk að klippa naflastrenginn sem tengdi móður og son saman.
Móður- og föðurömmurnar felldu tár og afarnir tóku utan um þær. Hvílík gleði hjá einni fjölskyldu sem saman stendur og kven- og karlkyni, því kynin eru bara tvö.
Spyrnum á móti þessum breytingum
Mörgum stekkur án efa bros á vör við lesturinn en þetta er fúlasta alvara. Svona gerist í útlöndum og vísir að þessum ósóma er kominn hér á landi. Börnum allt niður í leikskólaaldri er sagt að foreldrar þeirra hafi getið sér til um kyn þeirra en síðar munu þau finna út kynið. Endemis þvæla.
Á íslenska þinginu virðast menn leynt og ljóst ætla að breyta málfarinu þannig að það verði kynhlutlaust. Við því verður að sporna. Líffræðilegt kyn og málfræðilegt kyn er ekki eitt og það sama.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2024 | 08:55
Í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur er kennari sem þekkir ekki líffræðilegu kynin, eða hún er ,,vókisti
Rakel Linda Kristjánsdóttir kennari og stjórnarmaður í Kennarafélagi Reykjavíkur (KRF) opinberar vanþekkingu sína sem kennari á líffræði mannsins. Þessari sömu konu treysta foreldrar henni fyrir börnum sínum, að hún miðli þeim vísindalegri þekkingu og staðreyndum. Vonandi er hún skynsamari en svo að ræða fáfræðina í kennslustofunni. Hún skrifar grein sem ber heitið ,,Það er ekki nóg að vera klár stelpa/strákur/stálp. Hvað hún á við með ,,stálp má guð einn vita eða aðgerðasinnar. Eitt veit bloggari, það er ekkert slíkt til í líffræðinni, þar er talað um annað tveggja konu og karl, stúlku og dreng. Ekkert hvorugkyn, nema orðið barn, eða tvö kyn í einum líkama. Finnst ekki, hefur ekki gert og mun aldrei gera.
Rakel Linda, sem kennari, eltist við orðaforða trans-hugmyndafræðinnar. Hugmyndafræði ekki staðreyndir. Hún virðist setja trans skör hærra en almenna skynsemi. Ef ,,stálp er í huga Rakelar stúlka þá ætti hún bara að nota það orð. Líffræðin býður okkur ekki upp á annað. Ef Rakel eltist við hugsanir fólks og langanir gæti listinn orðið langur af alls konar orðleysu.
Gefi bloggari sér að Rakel Linda sé að tala um stelpur sem ,,stálp þá hlýtur sá einstaklegur að hafa leg, eggjastokka og XX litninga, sem gerir kvenkynið að því sem það er. Því verður vandséð að kennari sem notar ekki orðið stúlka um slíkan einstakling gerir lítið úr orðinu kona/stúlka, kvenkyninu. Og að mati bloggara barni líka. Ekkert barn óskar að hafa viðurnefni, þeir fullorðnu hafa búið þetta til.
Noti Rakel Linda svona hugmyndafræðilegt orðatak í störfum sínum í grunnskóla má með sanni segja að það sé hluti af innrætingu í skólakerfinu, kenna börnum málgalla. Við þurfum að taka höndum saman og vekja athygli á þeim kennurum sem stunda innrætingu hinsegin málefna og orðaforða þeirra í leik- og grunnskólum.
Vil benda Rakel Lindu og öðrum kennurum sem falla fyrir orðaforða aðgerðasinnum að lesa þessa skýrslu, held að Rakel myndi læra mikið á því um hinsegin hugmyndafræðina og hvernig ber að meðhöndla börn sem líður illa í eigin skinni. Af fræðingum er talið að félagsleg umskipti eigi ekki að nota um börn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2024 | 10:10
Skátahreyfing á villgötum
Allir sem lesa þetta vita um einhvern sem eitt sinn var skáti eitt sinn hluti af æskulýðshreyfingunni um allan heim.
Í Bretlandi er skátafélag Bretlands stærstu samtök skáta í Evrópu. Það var stofnað árið 1910 og rekur starfsemi fyrir börn frá fjögurra ára aldri, hjálpar þeim að læra og þroskast á meðan þau komast í gegnum mótunarárin.
Í ár eru um 400,000 börn í skátahreyfingunni. Að forsetar skáta séu prinsessan af Wales og hertoginn af Kent segir þér hversu mikinn slagkraft þessi samtök hafa.
En þó að skátar tali mikið um að setja ,,öryggi og velferð ungs fólks í fyrsta sæti" er ég hræddur að segja frá því, að eins og mörg önnur samtök í þjóðlífi okkar hefur skátahreyfingin algjörlega villst af leið.
Með því að lúta afturhaldssamri kynjahugmyndafræði eru skátarnir nú ógn við öryggi og velferð barna.
Fyrir nokkrum vikum hafði skátaforingi samband við mig. Hann bað um að fá að vera nafnlaus af ótta við hefndaraðgerðir ef hann væri opinberaður.
Undanfarin ár hefur hann orðið meira var við hvernig hreyfingin aðhyllist róttæka trans hugmyndafræði. Honum fannst hann einfaldlega verða að tjá sig.
Hér er það sem hann sagði mér:
,,Sem leiðtogi í skátahópnum okkar er ég hneykslaður og áhyggjufullur yfir því að skátasamtökin hafi kosið að nota forréttindastöðu sína til að troða róttækri kynjahugmyndafræði upp á börn, í skjóli þátttöku. Börn sækja hina ýmsu hópa innan skátahreyfingarinnar til að öðlast og beita gagnlegri hagnýtri þekkingu, til að þróa félagsfærni sína og sjálfstraust og til að upplifa tækifæri sem annars gætu verið ófáanleg. Það eralgerlega viðeigandi að kenna samúð og umburðarlyndi, en að ýta undir þá óvísindalegu trú að þú getir fæðst í röngum líkama og geti skipt um kyn er mjög hættulegt og jafngildir verndaráhættu. Börn ættu ekki að vera þvinguð til að nota æskileg fornöfn, né verða fyrir ruglingskvíða sem óhjákvæmilega stafar af þessari starfsemi, til að friðþægja örhóp í samfélaginu. Ég óttast að skátasamtökin séu að missa sjónar á því sem þau voru sett á laggirnar til að gera."
Hvíslarinn deildi með mér ýmsum stefnuskjölum og aðgerðum til að undirstrika vaxandi áhyggjur sínar af því sem skátar gera börnum.
Eftir að hafa skoðað þær allar verð ég að vara foreldra sem lesa þessa grein við því að ef þú sendir börnin þín í skátastarfið eru miklar líkur á að þeim verði innrætt eitt og annað.
Hugmyndafræðilega yfirtöku skáta má sjá á undirliggjandi stefnuskjölum þeirra, sem stjórna öllu sem þeir gera. Til dæmis, þó að þeir segist vera hlynntir vernd, segja reglur þeirra skátaleiðtogum að hafa leyndarmál fyrir foreldrum, þar á meðal ef barn segist vera ,,trans".
Auðvitað er það andstæða öryggi barna að hafa leyndarmál fyrir mömmu og pabba.
Skátar réttlæta þessa afstöðu, hlægilega, á grundvelli ,,gagnaverndar". Hvíslarinn minn segir mér að þessi stefna stangist algjörlega á við þá öryggisþjálfun sem hann fékk fyrst þegar hann gekk til liðs við samtökin segir Matt Godvin.
Hér má lesa um málið, en greinin er mun lengri. Í greininni má m.a. finna tengil að þessari grein.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2024 | 08:16
Auðvitað á innræting sér stað í skólum
Eitt af því sem Þórhildur Sunna fussaði yfir var að ekki væri stunduð innræting í skólakerfinu í einum þættinum sem formenn stjórnmálaflokka mættu í fyrir kosningar. Hún fylgist lítið með úr því hún lætur það út úr sér. Svandís Svavarsdóttir gerir lítið út sér, í sama þætti, með þessu svipuðu tali og Þórhildur. Svandís talaði um málefni sem hún segir að flokkur hennar sé umhugað um, kvenréttindi. Sér hver er nú þversögnin þegar stúlkur búa við mannréttindaskerðingu vegna einkarýma sinna. Sama um marga í Samfylkingunni og hvað þá Viðreisn.
Innræting í skólakerfinu sér stað.
- Með breytingu á tungumálinu, í pólitískum tilgangi, stunda sumir kennarar innrætingu.
- Með flöggun transfána stunda sumir skólastjórnendur innrætingu.
- Með lygum um að kynin séu fleiri en tvö er stunduð innræting í skólum.
- Með lygum um að barn geti fæðst í röngum líkama þá stunda sumir kennarar innrætingu.
- Það er innræting þegar sumir kennarar segja að barn eigir eftir að velja sér kyn þegar þú stækkar.
- Með því að baða börn upp úr rangfærslum, láta þau vinna verkefni um þær og sýna myndbönd um efnið má alveg kalla innrætingu.
Kennarar, sem betur fer ekki allir, stunda bullandi innrætingu, hvað sem Þórhildur Sunna segir fyrir og eftir kosningar. Hvernig er hægt að uppræta innrætingu skólakerfisins á börnin?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)