24.12.2024 | 09:57
Gleðileg jól
Þá er aðfangadagur jóla runnin upp. Vonandi tekst flestum að njóta jólanna þó sumum finnist jólin ekki gæðahátíð. Jólin eru ekki allra og hefur ávallt verið þannig.
Jólin eru meira en að borða ákveðinn mat eða fá fjölda pakka. Aðalatriði jólanna er að finna frið með sjálfum sér og vera í návist fólks sé þess kostur. Messur eru víða um land fyrir þá sem þess óska. Friðsæl stund.
Kvennaríkið á stjórnarheimilinu sýnir okkur svo eftir áramót hvers við megum vænta. Byrjunin, þar sem Flokkur fólksins fer þvert á yfirlýsingar Eyjólfs um að Bókun 35 stangist á við stjórnarskránna byrjar ekki vel. Eyjólfur gaf út að hann muni samþykkja Bókun 35, sýnir okkur hve óútreiknanlegir stjórnmálamenn eru þegar ráðherrasæti og seta í ríkisstjórn er annars vegar. Fyrsta afsal þjóðarinnar til ESB. Allt selt þegar völdin eru annars vegar!
Kæru karlar og konur, piltar og stúlkur, sveinar og meyjar, snótir og drengir, langafar og langömmur, afar og ömmur, pabbar og mömmur, systur og bræður, gleðilega hátíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2024 | 09:47
Einelti, hér og þar!
Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu
segir í fyrirsögn á Vísi.is og er mál vararíkissaksóknara til umræðu. Það er þetta með löglega stjórnsýslu! Í skólakerfinu heitir það fagleg forysta. Þegar yfirmenn nota þetta viðgengst oft einelti af því menn horfa fram hjá hegðuninni en kalla það fagleg forysta.
Hversu margir kennarar haldið þið að hafi lent í einelti af hálfu skólastjórnenda, sem kallast fagleg forysta. Nokkuð margir að mati bloggara.
Þegar Helgi mætti til vinnu gerðist þetta ,,Honum var hins vegar ekki úthlutað neinum verkefnum..." Ef kennari lendir í einelti fær hann vissulega verkefni, þau sem hann hafði ekki óskað eftir. Kennari er settur í verkefni sem hann hvorki menntaði sig til eða er hæfastur til að gegna, þannig er faglegri forystur innan skólakerfisins beitt. Möguleiki á yfirvinnu tekin frá kennara og síðan hundsun. Oft taka kennarar skóla þátt í slíku og þá magnast vandinn. Reynt að gera kennaranum ómönuglegt fyrir.
Helgi er maður að meiri að opinbera eineltið sem Sigríður virðist leggja hann í. Kennarar aftur á móti, hrökklast úr starfi, annað hvort með starfslokasamning, veikindarétt eða bara sálar sinnar vegna.
Hér má lesa fréttina á Vísi. Hér má hlusta á Frosta, hann fjallar um málefni ríkissaksóknara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.12.2024 | 10:46
Áhugaverður tími framundan
Það má með sanni segja að komandi mánuðir og kannski ár verði áhugaverð þegar litið er til stjórnar landsins. Við fyrstu sýn virðist Flokkur fólksins fá lítið af sínum slagorðum uppfylltum. En sjáum hvað setur. Fékk á tilfinninguna að Ingu langaði svo í ráðherrastól að hún var næstum tilbúin að gera hvað sem var fyrir hann. Kannski skjátlast bloggara.
Ásta Lóa í menntamálaráðuneytið. Spurning hvort hún haldi áfram á sömu braut og Ásmundur Daði með alla sína farsæld og allt starfsfólkið sem þurfti í málaflokkinn. Ekki varð farsæld bara meiri fyrir vikið. Kerfið bólgnaði. Hún þarf heldur betur að taka á Stuðla-málinu, þar er allt í ólestri. Vantar barna- og unglingasálfræðing á staðinn og fleira eftir því.
Bloggari þarf að lesa sáttmálann en aðild að ESB líst honum illa á. Við eigum ekkert erindi inn í þetta fallandi bandalag sem íþyngir meira en það hjálpar.
![]() |
Lyklaskipti í ráðuneytunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2024 | 09:48
Kannski tapast smáorustur en stríðið vinnst
Þrjú frumvörp sem hafa áhrif á transfólk í Alberta fóru í umræðu á löggjafarþinginu og verða að lögum.
LGBTQ+ hagsmunahópar hafa þegar lofað að mótmæla löggjöfinni fyrir dómstólum og kalla hana mismunun.
Danielle Smith, forsætisráðherra Alberta, segir að frumvörpin séu nauðsynleg til að vernda börn og íþróttakonur, en stjórnarandstaðan NDP segir að þau muni setja þegar viðkvæmt fólk í frekari hættu. Hér er enn ein mýtan frá NDP, viðkvæmt fólk í hættu. Það er verið að tala um börn, börn sem glíma við sjálfsmyndarvanda. Það er með ólíkindum að fullorðið fólk berjist fyrir að börn skemmi líkama sinn áður en kynþroska lýkur. Óskiljanlegt! Skynsama fólkið þarf að láta mótmæli aðgerðasinna sem vind um eyru þjóta, látum lýðinn ekki trufla almenna skynsemi.
Við breytingarnar verður þess krafist að börn yngri en 16 ára hafi samþykki foreldra ef þau vilja breyta nafni sínu eða fornöfnum í skólanum. Hér er um sjálfsagða reglur að ræða. Börn eru undir forsjá foreldra sinna sem eiga að leiðbeina þeim. Börn sem finna fyrir ónotum í eigin líkama eiga að fá rétta þjónustu, þau er ekki að stökkva á trans-vagninn eins og Svíar kalla það.
Eitt frumvarpið mun banna læknum að meðhöndla börn yngri en 16 ára sem óska eftir ,,trans meðferðum, svo sem kynþroskablokkurum og hormónameðferð. Enn og aftur. Að sjálfsögðu. Það er ekki hlutverk lækna að skemma líkama barna, gera þau ófrjó og skaða fyrir lífstíð. Sálgæsla er lykilorðið fyrir þessi börn.
Þriðja frumvarpið mun banna ,,trans íþróttamönnum að keppa í áhugamannaíþróttum kvenna. Loksins, loksins, þetta hefði aldrei átt að leyfa. Karlmenn, sem skilgreina sig sem konur, eiga EKKERT erindi í kvennaíþróttir. Þetta þarf að gerast um alla heim, samstillt átak.
Hér á landi sváfu þingmenn á verðinum þegar lög um kynrænt sjálfræði var samþykkt. Engir fyrirvarar, en þeir eru nauðsynlegir. Þekki engan sem vill að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, og hefur kynfæri karlmanns baði sig við hlið stúlkna í baðklefa.
Lesa má um málið hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2024 | 12:26
Tvöfalt brjóstnám
Nú þegar landlæknir leyfir tilraunalyfjagjafir á börnum sem líður illa í eigin skinni er ekki laust við að bloggari hugsi, hvað næst. Í útlöndum er tvöfalt brjóstnám unglingsstúlkna vel þekkt. Ekki liggja upplýsingar á lausu hér á landi hvort og þá hve margar unglingsstúlkur hafa farið í slíka aðgerð. Vonandi engin.
Stúlkur sem láta fjarlægja bæði brjóstin gera það á meðan andleg vanlíðan er mikil, kvíði, þunglyndi, rétt eftir áföll o.s.frv. Margir hafa barist gegn þessu og ekki haft erindi sem erfiði. Enn finnast læknar sem auglýsa brjóstnám sem lausn til að leysa andlegan vanda stúlknanna sem halda að þær séu í röngum líkama. Auðvitað er það ekki hægt, þú ert í þeim líkama sem þú fæddist í.
Það hefur færst í vöxt að stúlkurnar sjái eftir þessu þegar þær þroskast. Á unglingatryppinu var þetta ,,kúl og flott þegar áróðurinn er hvað mestur. Þarf ekki annað en horfa á samfélagsmiðla þar sem unglingsstúlkur sýna ljót ör yfir brjóstholið.
Að nokkrum lækni detti í hug gera brjóstnám á ungum stúlkum og hvað þá státa sig af svona skemmdarverkum er bloggara huglin ráðgáta. Í sumum löndum er meira að segja leyft að auglýsa þessi skemmdarverk.
Það er von bloggara að Íslendingar vakni upp, fyrr en seinna, og sjái hvert stefnir í málaflokknum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2024 | 12:52
Tilraunir á börnum? Er það ásættanlegt árið 2024?
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill ekki ræða tilraunameðferðir á börnum sem framkvæmdar eru á Íslandi.
Íslendingar eiga ekki von á góðu ef þingmenn vilja þagga niður ágreiningsmál í samfélaginu. Þöggun, þöggun, þöggun virðist vera einkunnarorð Dagbjartar. Þetta kom fram hjá þingmanninum í viðtalsþættinum Dægurmál. Algert hneyksli að þingmaður vilji ekki ræða tilraunir á börnum. Nota má börn sem lyfjatilraunadýr.
Breska þingið hefur bannað notkun hormónablokkara í því skyni að ,,falsa kyn barns, þ.e. að reyna að breyta líffræðilegu kyni barnsins. Að sjálfsögðu er það ekki hægt og ekkert lyf getur það. Allt er þetta í kollinum á börnum, væri nær að ríkið kostaði sálfræðimeðferð fyrir börnin í stað þess að gefa þeim tilraunalyf sem víða eru bönnuð.
Auðvitað á að fara fram gagnrýn umræða fram á þinginu. Draga á fram rannsóknir sem sýna hvaða aukaverkanir börnin glíma við eftir svona tilraun. Það á líka að koma fram í dagsljósið að börnin þurfi lyf til lífstíðar hefji þau þessa tilraunameðferð.
Bloggari vonar að umræðan stoppi ekki hér. Landlæknir, Alma Möller, hafði ekki þor eða getu til að taka á málinu, vonandi gerir nýr landlæknir það. Ef ekki, þá hlýtur það að vera krafa lýðsins að þingið láti til sín taka.
Cass skýrsluna má nálgast hér. Ætti að vera skyldulesning hvers þingmanns. Hér má hlusta á þingmann breska þingsins.
Kannski þurfum við ekki að vera hissa á afstöðu Dagbjartar Samfylkingarþingmanns, hún vildi breyta orðunum, amma og afi, sem meðflutningsmaður á frumvarpi, og nota orðagjálfur trans hreyfinga. Hún vildi að ,,transarar fengju vegabréf einu sinni á ári, á kostnað ríkisins, ef ske kynnu að þeir vilja hoppa á milli kynja. Gáfulegt!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2024 | 08:47
Þakkir til konu
Danska kvenréttindafélagið heyir sömu baráttu og Kvenréttindafélag Íslands, gegn konum, því þær vita ekki hvað kona er. Þær konur sem hafa safnast inn í félögin segja suma karlmenn konur, þó ætla mætti að bæði dómgreind þeirra og menntun segi til um annað. Svo eru það meðvirku sauðirnir.
Á síðu Danska kvenréttindafélagsins birtist vafasöm færsla. Feittletrun er bloggara. Þar segir ,,Vinnan fyrir réttindum kvenna er vinna um mannréttindi, burtséð frá kyni. Jafnréttisbarátta er ekki bara kvennamál - það er mannréttindabaráttu og nauðsynleg fyrir réttlæti framtíðar. Úbs! Vafa mál hvað kona er?
Það kveður við annan tón í kvenréttindabaráttunni þarna ytra, konur ekki sammála skilgreiningu þeirra sem vilja ráða. Við þekkjum sýkinguna í kvennabaráttunni hér á landi. Miðað við sýkinguna hér á landi má spyrja, er ekki í lagi að leggja niður Kvenréttindafélag Íslands úr því að baráttan snýst ekki eingöngu um konur? Karlmenn, sem skilgreina sig sem karla, virðast eiga hug þeirra allra.
Ung kona skrifar athugasemd við færslu Lotte: ,,Finnast í alvöru einhver kvennahreyfingu sem berst fyrir konur? Kvinfo, Dansk Kvindesamfund, Kvinderådet. Getur maður sagt að þær reyni að bæta aðbúnað kvenna í dag, ef þær þurfa alltaf að rannsaka hvernig önnur kyn vilja haga málum? Eftir 10 ár munu þetta tímabil skaða þær.
Einhver kona, með viti að sjálfsögðu, gerði athugasemd við dönsku færsluna segir Lotte Ingerslev því færslan hvarf. Þeirri eða þeim konum sem sáu til þess að færslan var fjarlægð er þakkað. Mynd náðist af færslunni og hana má sjá hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2024 | 08:29
Maður að nafni ,,Olivia" segir kvennærföt skipta höfuðmáli
segir danskur snjáldur vinur minn. Orðin eru látin falla vegna viðtals sem birtist eftir að Gallup könnun Berlinske var birt. Fjórir af hverjum fimm Dönum vilja halda karlmönnum frá kvennaíþróttum, skiljanlega. Karlmenn hafa ekkert að gera í kappleiki með konum.
Neðar má sjá það sem hann sagði bæði í Jyllandsposten og Berlinske. Hann er ósáttur við að svo margir Danir vilja ekki sjá hann og hans líka í kvennaíþróttum. Ekki orð um hvernig stelpunum líður með það. Ekki orð um það hvort það sé réttlætanlegt að hann líffræðilegur karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, keppi við stúlkur.
Hann tekur fram að honum hafi liðið illa innan um karla með kvennanærföt. Ekki orð um að stelpum líði illa innan um karlmann. Eins og snjáldur vinur minn sagði ,,það er afgerandi að hann sé í kvennanærfötum.
Hann segir líka að það sé erfitt að vera í heim þar sem hann heyrir hvergi til, hann langaði svo að spila fótbolta. Jú hann heyrir til með karlmönnum eða opnum flokki í íþróttum. Stelpur vilja ekki hafa hans líka í sínum röðum. Fyrir ,,Oliviu skiptir það engu máli. Hann virðist elska sig meira en svo að hann hugsar hvorki um tilfinningar eða vilja stúlkna og kvenna. Þeim er tamt að gera það sem vilja njóta forréttinda.
Karlmaðurinn ,,Olivia, sem skilgreinir sig sem konu, hugsar ekki um stúlkurnar og konurnar, það er bara ég, ég, ég og aftur ég.
Í athugasemd við færslu Lotte segir karlmaður:
,,Í raun og veru er þetta geðveikt gróft. Dómur hans um smekk, þar sem hann mun ákveða hvað er meira ,,stelpuleg" nærföt en nokkuð annað.
Svona stórkostlegt dekur/athyglisleit verður hvort sem er aldrei fullnægt. Maður getur - því miður - ekki annað en ímyndað sér sífellt meiri ,,hysterískar kröfur til þess kyns sem maður tilheyrir á engan hátt.
Astrid bætir við: ,,Af hverju hefur engin sagt Oliver að hann geti skipt um föt heima, ef hann kærir sig ekki um að liðsfélagar hans sjái hann í kvenundirfötum? Það er alls, alls ekki nauðsynlegt að kalla sig konu og troða sér inn í kvennalið og búningsklefa þeirra, þar sem hann á hvort eð er ekki heima.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2024 | 08:41
Þetta er kynfölsun
Breska deildin innan WDI (Womens Declaration International) sendi þann 5. desember bréf til forsætisráðherrans Keir Starmer og annarra ráðherra þar sem þeir voru hvattir til að afnema alla kynfölsun ("sex falsification")- sem þýðir að orðin ,,kynskipti og ,,kynvitund verði fjarlægð úr öllum lögum, reglum og að afnema eigi lögin um kynrænt sjálfræði ,,The Gender Recognition Act"- því kynfölsun ÓGNAR KONUM, BÖRNUM OG ÖÐRUM MINNIHLUTAHÓPUM. Þetta skrifar Lotte Ingerslev á snáldursíðuna.
Svo, danskir stjórnmálamenn, og bloggari ávarpar þá íslensku, nú er kominn tími til að afnema lögin um kynrænt sjálfræði- með hraði.
Leyfði mér að endurtaka mig:
Ef við ætlum að vinna baráttuna er algjört lykilatriði að við hættum að nota skrautleg tungumálatöfrabrögð trans aktívista.
Engin manneskja er ,,trans. Trans finnst ekki nema orð. Þetta fólk er kynjahermur. Og við verðum að segja það upphátt.
Margir þeirra hafa auðvitað verið leiddir til þess af fjölmiðlum, læknum og stjórnmálamönnum. En nú verður aðlögun SAMFÉLAGSINS að kynjaeftirlíkingu þeirra að STOPPA. Það sviptir annað fólk réttindum þar á meðal málfrelsi og hugsunarfrelsi, öryggi og friðhelgi einkalífs stúlkna og kvenna og það eyðileggur líkama og líf barna og unglinga.
Lögin um kynrænt sjálfræði ber að afnema- nokkuð hratt. Einnig ber að fjarlægja á orðin kynvitun úr öllum dönsku lögum. Tel að sama eigi við um Ísland.
,,Transfólk", ,,kynsegin" og ,,kynvitund" eru ósannanlegar fullyrðingar um innri reynslu sem eiga ekki heima í löggjöf sem flokkar og fólki er deilt í - og úthluta fólki réttindum eftir því - og svipta aðra réttindum fyrir vikið.
Hér má lesa færslu Lotte og fyrir neðan má sjá bréfið sem ráðherrar fengu. Vildi óska að þessi umrædda deild sendi íslenskum stjórnmálamönnum slíkt bréf.
Kynfölsun í sinni skýrustu mynd, lesið hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2024 | 10:32
Svona ! Skýrara verður það ekki
Kærar þakkir til Mille Sørensen og Berlingske fyrir að vekja athygli á réttlætinu, fótboltastelpum og öryggi kvenna segir Katrine.
Rökin um að það ,,séu svo fáir sjálfskilgreinandi sem þetta fjallar um heldur ekki vatni af mörgum ástæðum. Þetta hafa verið helstu rök þeirra DBU manna til að koma körlum í kennafótboltann.
Fyrir það fyrsta mun einn drengur eða maður í stúlkna- eða kvennaliði, sem mætir 10 -20 öðrum liðum í keppni, verða fyrir áhrifum, allt í einu eiga þær að geta það sem karlmannslíkaminn getur, ekki hvað kvenlíkaminn getur.
Í öðru lagi mun ofsafengin tækling frá manni gegn minni konu geta valdið óásættanlegum skaða. Á Jótlandi hafa þeir leyst þetta vel, herraliðin eru opin fyrir alla. Enginn ætti að veera útundan, sem eru önnur rök DBU manna fyrir körlum í kvennabolta.
Og nei, það er ekki trans-fóbía að vekja athygli á réttlæti og öryggi stúlkna og kvenna í íþróttum. Það er umhyggja.
Ný Gallup skoðanakönnun: Danir segja þvert nei við að líffræðilegir karlmenn séu í kvennaíþróttum.
Fjórir af hverjum fimm Dönum eru andstæðingar þegar kemur að karlmönnum í kvennaíþróttum, sem skilgreina sig sem konu. Sem, eins og sérfræðingur segir, að í íþróttum er það ,,líffræðilegir líkamar, ekki sjálfsvitund sem keppa.
Samkvæmt einum sérfræðingi ,,höfum við djúpa tilfinningu og innsæi fyrir því að munur sé á kynjunum í íþróttum og það séu ,,mikilvægar breytur.
Líffræðilegir karlmenn eiga að keppa á móti öðrum karlmönnum í íþróttum og líffræðilegar konur eiga einar að keppa á móti konum.
Svarið er afgerandi hjá Dönum þegar kemur að spurningunni um kyn og sjálfvitundin í íþróttum.
Svarið kom í nýrri Gallup könnun sem gerð var af Verian fyrir Berlinske.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)