11.11.2021 | 18:41
Að sjálfsögðu eiga stjórnarmenn
rétt á öllum upplýsingum. Félagsmenn kjósa stjórn sem starfar í umboði þeirra. Vilji stjórnarmenn koma upplýsingum áfram til félagsmanna þá eiga þeir að gera það. Trúnaðarmál er annað, þeim ber ekki að segja frá. Þá er slíkt merkt sérstaklega. Stjórnarmenn eiga líka að afla upplýsinga óski félagsmaður þess.
Stundum gerist þetta. Formenn og stjórnarmenn verkalýðsfélaga telja sig í glerkúlu og mega gera það sem þeir vilja.
![]() |
Segir félaga í Eflingu eiga rétt á upplýsingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2021 | 10:03
Sleppa framhaldsáföngunum
og láta þá sem vilja í framhaldsnám taka þá þar. Nú ríður á að fjölga hjúkrunarfræðingum á meðan næg aðsókn er í það. Merkilegt að byggja námskeið ekki upp eins og á öðrum Norðurlöndunum, þannig að allir séu jafnir þar. Hjúkrunarfræðingar á Norðurlöndunum er jafn hæfir til starfans.
Margt sem þarf að endurskoða í háskólamenntun Íslendinga.
![]() |
Klínísk kennsla flöskuháls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2021 | 12:22
Nei Hanna Björg
kennarar velja ekki bara konu af því hún er kona. Sé fulltrúinn ekki verðugur eða annar betri í boði, að mati kennara, þá velja þeir hann. Við komum óhæfum konum að með þetta hugarfar. Kona á ekki að sækjast eftir embætti vegna kynferðis heldur hæfileika. Kennarar höfnuðu þínum hæfileikum enda öfgakona mikil. Hægt að sjá það í ræðu og riti. Svoleiðis einstakling þurfa kennarar ekki.
Sem betur fer sáu kennarar það sama. Varaformaðurinn hins vegar hefði verið verðugur fulltrúi stéttarinnar, burstséð frá kyni, en félagsmönnum fannst annar henta betur í þetta sinn.
Heyrði margar kennara lýsa kostum þess formanns sem tekur við, burtséð frá kyni. Hæfileikar Hönnu Bjargar eru ekki metnir á við hans, því fór sem fór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2021 | 18:00
Öfgakonan átti ekki upp
á pallborðið hjá kennurum, sem betur fer. Hinir frambjóðendurnir miklu betri kostur. Ekki hægt að túlka útkomu Hönnu Bjargar á annan hátt en kennarar fylgja henni ekki að máli. Heyrði það í aðdraganda kosningarinnar. Mörgum finnst hún sinna áhugamáli sínum í gegnum kennarasamtökin. Með öllu óliðandi.
Magnús réttkjörinn. Vildi sjá Önnu Maríu í formannssætinu. Nú er að sjá hvað árin 2022-2026 bjóða upp á með Magnús við stýrið. Reyndar skiptir máli hver verður valinn í varaformannsembættið. Topparnir vinna náið saman.
![]() |
Magnús Þór Jónsson kjörinn formaður KÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2021 | 20:59
Rassastrokumál Carmenar kostaði ríkissjóð
þrjár milljónir. Málskostnaður féll á okkur. Hvílíkur dónaskapur. Carmen átti að borga þetta sjálf eða þau hvort um sig.
Hneisa að málið fór fyrir rétt á meðan önnur mikilvægari mál komast ekki að. Vona að slíkt gerist ekki aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2021 | 14:15
Kveikur þarf ekki að útskýra neitt
fyrir áhorfendum sínum. Öfga-ofstækisfólkið hefur nú látið til sín taka. Kannski það hafi mannorðið af Kveiks- fólkinu næst. Þáttastjórnendur þurfa hvorki að útskýra fyrir ofstækisfólkinu né öðrum í landi hvaða efni er tekið fyrir í þáttunum. Alltaf einhverjum sem mislíkar. Til er takki sem slekkur á viðtækinu líki fólki ekki efni þáttarins.
Látið ekki Öfga-ofstækishópinn raska ró ykkar. Hahldið áfram á sömu braut, fjalla um mál af ólíkum toga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2021 | 21:07
Sálfræðingar fá ekki starfsleyfi
sem taka framhaldsnámið í útlöndum, en minnka á kröfur þeirra sem læra hér á landi. Það er eitthvað stórvægilegt að kerfinu, má með sanni segja. Sálfræðingar sem koma hámenntaðir í sálfræði frá útlöndum mæta girðingum í kerfinu. Ráðneytið veit ekki hvað þá vantar og Háskóli Íslands getur ekki sagt hvað vantar.
Á meðan vanar sálfræðinga, alls staðar.
Barna- og unglingasálfræðingur með starfsleyfi í Bandaríkjunum sem tók framhaldsnámið sitt þar fær ekki starfleyfi nema fara í óskilgreint ferli. Enginn getur sagt fyrirfram hvort hún fái leyfið, hvað vanti eða yfirhöfuð nokkurn skapaðan hlut. Svona missum við sálfræðinga úr landi.
Hér má sjá frétt um málið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2021 | 14:31
Þökkum ríkisstjórninni fyrir
að svona er komið á Akranesi. Þeir hafa þrýst á um afléttingu sem um munar. Þeir sem liggja nú veikir með kóvid er ekki skemmt. Hvað þá þeim sem liggja í öndunarvél og geta ekki sagt frá.
Frá því að kóvid kom inn í landið hefur sóttvarnalæknir hamrað á persónulegum sóttvörnum. Hefur það skilað árangri, dæmi hver um sig.
Stjórnvöldum til skammar að herða ekki tökin enn frekar. Því miður eru kosningar yfirstaðnar. Dómsmálaráðherra er ein þeirra sem á að skammast sín.
Formaður félags atvinnuflugmanna sömuleiðis sem krefst afléttingar. Hefur maðurinn rætt við formenn félaga sem standa í framlínunni, sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og náttúrufræðinga sem dæmi. Skyldi ekki vera annað hljóð í skrokknum á þeim bæjum, held það.
![]() |
Enn bætist við smitin á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2021 | 12:24
Sólveig Anna segir starfsfólk
Eflingar hafa það gott, kjaralega og fríðindalega séð. Hún fer með rétt mál. Held að þetta eigi almennt við um starfsmenn verkalýðsfélaga. Launin hærri en fólksins sem unnið er fyrir. Góð aðstaða og vinnutími oft sveigjanlegri en gengur og gerist. Sagt án þess að leggja mat á störf fólks.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2021 | 10:56
Hvað varstu að gera 16 ára á Tinder?
Enn hefur enginn fjölmiðill spurt stúlkuna, sem sakar þóri um barnagirnd, af hverju hún er á Tinder 16 ára gömul. Enginn hefur spurt foreldra hennar af hverju barn þeirra er á Tinder? Enginn hefur spurt forsvarsmenn Tinder af hverju og hvernig einstaklingur undir 18 ára komist inn á Tinder og geti verið þar? Enginn spyr af hverju stúlkurnar sendu nektarmynd? Enginn spyr stúlkurnar af hverju þær settu sig í samband við sér miklu eldri mann, því samkvæmt Þóri komu skilaboðin frá þeim. Við aumingjavæðum stúlkur með því að taka ábyrgðina af þeim, af þeim hluta sem þær eiga sök á. Með þessu réttlæti ég á engan hátt þátt karlmannsins í þessu máli. Svona mál má nota sem forvarnir inn í elstu bekki grunnskólans, hvað ætla börn sér með veru sinni á miðlum ætlað fullorðnum? Stefnumótavefum?
Umræðan er eins og venjulega, einhæf og í anda ofstækis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)