Óska engum innbrots

eða stuldi á gögnum, en mikið óskaplega er Mannlíf ómerkilegur miðill. Elur á slúðri, kemur með óræðnar fréttir og dregur það versta fram í fólki. Lít ekki á Mannlíf sem fréttamiðil heldur samfélagsmiðil sem tekur færslur frá öðrum. Fátt um raunverulegar fréttir. 


mbl.is Skipti um lása eftir gærdaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt að hann láti

hinn hundleiðinlega Gunnar Birgisson ekki leysa sig af. Einar Örn er mörgum flokkum ofar en Gunnar sem þykist slá um sig með aulahúmor og afskaplega leiðinlegum athugasemdum. Mér er óskiljanlegt að Ruv skuli nota Gunnar í lýsingu leikja. 

Vona að Einar Örn veikist ekki.


mbl.is Lýsir leikjum Íslands úr einangrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan laug og hún dæmd,

sem er sjálfsagt mál. Ljóst að hefndin getur verið sæt en kostað. Því miður gerist þetta í öllum málaflokkum.

,,Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa með röngum framburði hjá lögreglu leitast við að koma því til leiðar að maður sem hún hafði átt í sambandi við yrði dæmdur fyrir húsbrot, líkamsárás og frelsissviptingu."

Lesið hér.


Mikið er þetta ógeðfellt

Ég undrast að nokkur maður skuli leggjast svo lágt. Hann hefur skapað sér nafn í samfélaginu sem einstaklingur sem gerir góða hluti. Hér fer út af sporinu, svo um munar. Málaflokkurinn á ekki að fara í þennan farveg. 


mbl.is Býður fram aðstoð vegna þöggunarsamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannavelta mikil

og það er ókostur. Margir vinna í stuttan tíma á meðan þeir bíða eftir öðru starf, yfirleitt betra launuðu. Reykjavíkurborg hefur ekki tekið á honum stóra sínum hvað launamál þessa starfsmanna varðar. Til skammar. 

Skil fólk vel sem ílengist ekki við þessi störf og þær vinnuaðstæður sem borgin býður upp á. Þeir sem ílengjast eiga hrós skilið. Þörf þjónusta við íbúa borgarinnar. Hefur sýnt sig í faraldrinum, enginn getur án þjónustunnar verið. 

 


mbl.is Staðan á leikskólum borgarinnar sögð „mjög alvarleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur í Félagi kvenna í atvinnulífinu

komnar í hár saman út af tákni á samfélagsmiðlum. Haga sér eins og unglingstúlkur. Taldi þessar konur skynsamari en svo. Hjákátlegt að sjá konur rífa hvor aðra í sig af tilefnislausu. Kannski hluti af valdabaráttu. Ef samfélagsmiðlar skipta þessar konur svo miklu máli er Bleik brugðið. Held þær ættu að eyða kröftum sínum í eitthvað verðugra en þessa baráttu. Leyfið þeim sem á táknið að ákveða hvort hann lætur það við hina eða þessa færsluna. Enginn getur og á ekki að lesa í annarra manna tákn. Þras í konunum.


Þið sækið ekki í hjúkrunarstörfin

ágætu nemendur og hafið ekki undanfarin ár. Ekkert í augnsýn að það batni. ,,Hann gagn­rýn­ir að heil­brigðis­kerfið hafi ekki verið bætt þannig að hægt sé að taka á móti fleiri Covid-sjúk­ling­um á spít­ala en und­an­farna daga hef­ur þeim fjölgað hratt á Land­spít­al­an­um. „Það er eig­in­lega ekk­ert búið að gera þannig að hægt sé að taka á móti fleiri,“ seg­ir Ísak." Þessi ágæti nemandi virðist ekki átta sig á að mönnunarvandinn er vandamálið og hefur verið til fjölda ár. Til viðbótar leggst veiran á heilbrigðisstarfsmenn líka og þeir sendir í sóttkví.

Nemendur eins og Ísak sækjast ekki eftir að mennta sig innan heilbrigðisgeirans. Varla er hægt að töfra fram fólk? Sami vandi víða um heim. Störfin þykja hvorki vel launuð né heillandi. Vaktavinna er ekki á óskalista unga fólksins. Annað og meira er í forgangi hjá unga fólkinu.

Sammála þeim, synd að framhaldsskólaárin hafi farið svona. Vonandi verður það versta sem þau upplifa á ævinni.


mbl.is Bestu árunum eytt fyrir framan skjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa fjöldatakmarkanir

og þannig stjórna álaginu. Engin ástæða til að kaffæra fólk. Kemur í bakið á okkur. Þeir sem vilja að allir leiki lausum hala alls staðar virðast ekki átta sig á álaginu. 

Þegar ákveðinn fjöldi strikamerkja er kominn á að fara yfir á næsta dag. Fólki er engin vorkunn.

Hallmundur Kristinsson orti og birti á bloggsíðu sinni:
 
Stjórnvöld hafa víxlað vopnum
svo vaxi þeirra bit:
Halda stöðum öllum opnum
sem á eru flestöll smit.

mbl.is „Þolum ekki marga svona daga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið hefur farið fyrir umræðunni

um ný lög vegna skipunar á dómurum. Í Kjarnanum má lesa um málið.

Þar segir nýdoktor í lögfræði:

,,Þetta kemur fram í umsögn Hauks Loga um mál­ið. Þar gagn­rýnir hann tvær breyt­ingar sem lagt er til að verði gerðar á lögum og segir þær báðar til þess fallnar að auka um of völd dóm­ara­stétt­ar­innar til þess að hafa áhrif á hverjir verði skip­aðir í emb­ætti, sem aftur sé lík­legt til þess að rýra traust almenn­ings til þess hvernig dóm­arar eru skip­aðir á Íslandi og þar með dóm­stóla."

„Fram hefur komið í opin­berri umræðu að dóm­arar telji sér engu að síður heim­ilt að gegna umfangs­miklum auka­störf­um, en ýmsum þykir sú túlkun ganga í ber­högg við laga­bók­staf­inn. Það er því full ástæða til þess að skerpa á því sem þar stendur í 45. gr. dóm­stóla­laga um auka­störf dóm­ara og til­valið væri að nýta tæki­færið núna þegar verið er að leggja til ýmsar breyt­ingar lög­un­um,“ segir í umsögn Hauks Loga."

 


Viðskiptahugmynd...af hverju ekki!

Segir meira en mörg orð. Til heiðurs kvenfrelsunarráðherranum.

Gæti verið mynd af 1 einstaklingur og texti


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband