21.6.2022 | 21:50
Hið eina rétta að gera,
mikill vöðvastyrksmunur er á karl- og kvenmönnum og því ósanngjarnt að sá sem áður var karl spili gegn konum. Man eftir handboltakonu frá Ástralíu sem var frekar tröllvaxin miðað við hinar, var transkona. Hinar höfðu ekki roð í styrk hennar. Enginn jafnréttisgrundvöllur.
Nú geysast menn fram á ritvöllinn og tala um hatursumræðu, fordóma og ,,fóbíu." Þó við hoppum ekki öll á þann vagn, að karl sem varð kona keppi við konur, þá hefur það ekkert með fordóma eða ,,fóbíu" að gera, hvað þá hatursumræðu. Maður þarf ekki annað en lesa líffræði til að sjá líkamlegan mun á kynjunum.
![]() |
Banna trans konum að taka þátt í kvennalandsleikjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2022 | 08:35
Dýraníð að henda kanínu
út í náttúruna. Fólk heldur að það geri þeim gott en svo er ekki. DÝRANÍÐ af verstu tegund. Kanínur eru ekki villt dýr heldur heimilisdýr. Þegar heimilisfólk nennir ekki að eiga dýrið lengur fer það með kanínuna í Elliðaárdalinn. Þar hittir kanínan fyrir aðrar kanínur og svo fjölga þær sér. Innræktun með skelfilegum afleiðingum. Kanínur veikjast og enginn hjálpar þeim.
Látið frekar lóga kanínum í stað þess að sleppa þeim lausum. Versta sem þú getur gert við dýrið. Siðferði fólks þegar það fær sér gæludýr er afar misjafnt. Alltof margir eru samviskulausir gagnvart kanínunni sinni og sleppir henni út í slæmt líf og jafnvel sársaukafullan dauða. Jafnvel fleiri en einni.
![]() |
Kanínurnar í Elliðaárdal leita sér að nýju heimili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2022 | 21:12
Alls ekki sammála
að ákvörðun sé byggð á fordómum. Það er mismunun að karlar sem breyta sér í konu og hafa öðlast meiri vöðvastyrk en konur almennt keppi með þeim. Alþjóða sundsambandið tók þessa ákvörðun og því eðlilegt að við fetum í sömu fótspor. Horfa verður á líffræðilegu þættina og ekki síður þá líkamlegu. Annað er ekki sanngjarnt.
![]() |
Ákvörðun sundsambandsins byggð á fávísi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2022 | 07:11
Eðlilegt og sanngjarnt
í alla staði. Hefðu átt að gera þetta fyrir löngu. Þeir sem fæðast karlmenn en sætta sig ekki við það, vilja vera kona, eru með annars konar líkamsbyggingu og vöðvakraft en konur. Ekkert sanngjarnt að karlmenn keppi við kvenkynið sem þeir telja sig vera. Kona sem vill vera karl eða finnur ekki hvort kynið hún vill vera myndi aldrei keppa í karlaflokki, af líffræðilegum ástæðum. Vel gert að opna blandaðan flokk fyrir þá sem finna sig ekki í eigin líkama.
![]() |
Trans konum verður bannað að synda í kvennaflokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2022 | 08:35
Ósamþykktar íbúðir rándýrar
Á fasteignavefnum má finna nokkrar ósamþykktar íbúðir, rándýrar. Þar má nefna listastofu og bílskúr sem dæmi. Fólk hefur innréttað þau rými sem íbúð og nú á að græða. Að sjálfsögðu fær fasteignasalinn sinn skerf, gleymum því ekki. Þessar litlu og ósamþykktu íbúðir seljast á tugi milljóna króna. Vonandi gefið upp, hjá öllum fasteignasölum, að íbúðin sé ekki samþykkt sem slík, annars getur kaupandi lent í verulegu basli. Venjulega bera fasteignasalar enga ábyrgð eftir á.
,,Þær íbúðir sem uppfylla ekki skilyrði sem sett eru fram í lögum og reglugerðum samkvæmt mati byggingafulltrúa eru skilgreindar sem ósamþykktar."
Sumar lánastofnanir lána ekki þegar ósamþykkt íbúð er keypt. Menn þurfa að kynna sér það áður en farið er út í kaup á húsnæðinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2022 | 08:43
Lítið umburðarlyndi vilji maður
ekki nota orðið ,,hán." Kom fram í þætti á Ruv í gær. Selma, sem er kennari, er ekki sátt við skilgreininguna að kynin sé fleiri en tvö- líffræðilega sé það rétt. Hins vegar eru tilfinningar fólks margs konar. Selma, sem var góður kennari að sögn annarra foreldra, var rekin því hún neitaði að nota orðið ,,hán" yfir dreng í bekknum. Bauðst til að nota fornafn hans. Önnur börn liðu fyrir frekju foreldra drengsins. Sem sagt fjöldanum fórnað fyrir einn.
Selma er trúuð kona og allt varðandi ,,hán" stingur í stúf við trú hennar, sem sagt andstæðir pólar hittast og ber okkur ekki að taka tillit til beggja eða!
Í þættinum hér sest Selma á rökstóla með karlmanni sem finnst hann vera kona. Áhugavert, ég fylgi Selmu að máli. Líffræðilega eru til tvö kyn, kona sem leggur til egg og karl sem leggur til sæði þegar búa á til afkvæmi. Tilfinningar fólks geta síðan verið alla vega. Þeim mótmælir maður ekki. Umburðarlyndi gagnvart þeim sem hoppa ekki á fjölkynjavagninn er afar lítið að mínu mati.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2022 | 17:50
Skemmdavargar á ferð
og ljóst að þau hafa gaman af þessu. Ná þarf í skottið á þeim, láta þau borga nýjan bekk og setja upp. Meðvirkir foreldrar gætu komið í veg fyrir það. Þeir foreldrar sem vilja kennara börnum sínum að sýna ábyrgð fara hina leiðina. Hvet þá sem þekkja unglingana að segja til þeirra.
Hér má sjá unglingana skemma bekkinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2022 | 14:48
Þeir sem eiga ekki
foreldra til að búa hjá, hvað gera þeir. Sló inn greiðslumati fyrir sjálfa mig, er grunnskólakennari. Ég má kaupa fyrir innan við 15 milljónir miðað við áætlað greiðslumat. Fæ ekki klósettskúr fyrir það verð.
Unga fólkið sem kemur úr námi, hefur búið í stúdentaíbúðum lenda í verulegum vanda. Það er eitthvað stórvægilegt að á íslenska húnsæðismarkaðnum. Fólk, sem er ógift eða ekki með maka, og meðaltekjur, borgar 55-60% af tekjum sínum í leigu og getur ekki keypt. Greiðslumatið er þannig hannað.
Seðlabankastjóri hefði átt að grípa inn í hækkun húsnæðisverðs fyrir lifandis löngu. Fasteignasalar hugsa um eigin rass og því meira sem fæst fyrir eignina rennur meira í þeirra vasa. Aldrei taka þeir ábyrgð. Stétt sem ekki er í miklum metum hjá mér.
![]() |
Gætu þurft að búa lengur í foreldrahúsum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2022 | 17:08
Tanja Vigdisdottir með
eina af verstu hatursumræðu sem ég hef séð. Að mínu mati á svona kona bágt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2022 | 20:03
Bera ábyrgð á sér,
það hlýtur að vera lágmarkskrafa sem samfélagið gerir til fullorðinna ferðamanna. Samfélagið hefur gert skyldu sína, sett upp skilti til að aðvara um hætturnar, ferðamanna að vega og meta. Hættum að ergja okkur yfir að ekki sé nóg gert. Það er og verður alltaf til fólk sem telur sig vita meira og er tilbúið að taka áhættuna. Látum fólk bera ábyrgð á sér. Hvernig í heiminum finnum við staði þar sem fólk getur ekki farið sér að voða hundsi það aðvörunarskiltin.
![]() |
Óð út í sjóinn við Reynisfjöru í sundskýlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)