Frambjóðandi í stjórn Félags grunnskólakennara

vekur athygli mína. Viðkomandi heitir Sigurður Freyr Sigurðsson, kallaður Bibbi. Hann hefur ásakað verðandi formann, SEM HANN VILL VINNA MEÐ, um að reka einkaklúbb í formi svæðisdeildar Félags grunnskólakennara (BKNE). Hann hefur líka sakað verðandi formann um að neita núverandi formanni inngöngu á trúnaðarmannasíðu viðkomandi svæðafélags. Þrátt fyrir margar útskýringar um að trúnaðarmenn vildu sjálfir hafa þetta form á síðunni hélt hann áfram bullinu og ásökunum á hendur verðandi formanni. Hann hefur tekið þátt í umræðum þar sem fullyrt er að verðandi formaður ætli að selja réttindi í komandi kjarasamningagerð. Enn eitt bullið.  

Sigurður Freyr sagði í færslu, sem hann fjarlægði svo, að skoða ætti hærri laun fyrir karlkennara því þeir næðu betur til stráka en konur. Þetta er eitt af bullinu sem hann setti inn á snjáldursíðu og fjarlægði svo. Til eru mörg skjáskot af málflutning hans. Verðugur stjórnarmaður- NEI.

Brot af því sem Sigurður Bibbi lét út úr sér á snjáldursíðu ,,...ef við viljum fá fleiri karlmenn inn í leik- og grunnskóla þá held ég að það verði að bjóða þeim betri samninga en gengur og gerist almennt því satt best að segja þá hafa þeir fæstir þann undirliggjandi "sjúkdóm" að vilja þjóna æskunni." Sem sagt kvenkennarar eru haldnir sjúkdómi.

Er þetta sem Sigurður Bibbi ætlar að stuðla að inni í stjórn og samninganefnd félagsins?

Honum var vísað út af síðu Kennarafélags Reykjavíkur þar sem hann talaði niðrandi um málflutning félagsmanns sem var þar inni. Formaður KFR, Jón Ingi Gíslason, tók undir með honum og fengu bágt fyrir. Báðir þessir menn eru í kjöri til stjórnar Félags grunnskólakennara. Maður er hugsi ekki hægt að segja annað. 

Í stjórn Fg virðast kynlegir kvistir vilja safnast saman. Tilgangur, það má spyrja sig!


Verulega hugsi yfir framboðum

í stjórn Félags grunnskólakennara, samninganefnd, kjörnefnd og skólamálanefnd. Í þær tvær síðarnefndu náðist ekki nægur fjöldi til að hægt sé að kjósa. Framboðsfrestur lengdur fram á laugardag. Spurning hvort þá náist tilskilinn fjöldi. Grunnskólakennarar virðast ekki hafa mikinn áhuga á setu í skólamálanefnd félagsins. Hverju það sætir er mér hulin ráðgáta. 

Hvað stjórn og samninganefnd varðar og nú þarf ég að draga andann djúpt. Einstaklingar sem hafa skrifað um nýkjörinn formann stéttarinnar, á miður fallegan hátt, gefa nú kost á sér til stjórnarsetu. Vilja sem sagt vinna með formanni sem þeir hafa lagst svo lágt að sverta. Liggur eitthvað annað á bak við, því má velta upp. Sama með samninganefndina. Menn þar inni lögðu fram samning sem var tvífelldur í kosningu félagsmanna. Ætli trú kennara sé mikil á því fólki. Kosningar munu leiða það í ljós.


Skyldu þeir borga hærri laun

en kjarasamningur segir til um. Heyrst hefur að þessi geiri borgi algerlega lágmarkslaun, ekkert umfram það. Vonandi hagnast launþegar á þessari keppni og ber meira úr bítum. 


mbl.is Keppast um fólkið sem er á lausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt að flokkar púkki

undir rassinn á Degi B. Eggertssyni þrátt fyrir tap kosningar eftir kosningar. Virðist sem maður tapi aldrei. Hann virðist ekki lesa í vilja borgarbúa sem hafna Samfylkingunni. Refsa þeim með tveimur borgarfulltrúum. 

Auðvitað á að skoða alla möguleika. Vg skynsamir, ætla ekki í borgarstjórn. Borgarbúa losna við kvenfrelsunina, það er þó nokkuð. Reyndar hefði Heiða samfylkingarkona að fara sömu leið. Verður forvitnilegt að sjá hvernig samningaviðræðurnar í borginni enda.


mbl.is Útilokar ekki meirihlutasamstarf til hægri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunnskólakennarar þurfa að sýna

áhuga á trúnaðarstörfum fyrir félagið. Mikilvægt að kennarahópurinn fái úr mörgum að velja í stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd. Sumar nefndir má yngja upp. Yngri kennarar mega láta að sér kveða. Mest um vert er að það fólk sem treystir sér og hefur áhuga á að vinna með nýjum formanni gefi kost á sér. 

Kennarar geta gefið kost á sér til 18. maí, eftir það hefst kosning.


Ekkert mál að stækka

en hvar ætla menn að fá fagfólk til að sinna öldungunum sem eiga að búa á heimilinu. Nú þegar er mikil mannekla og fátt gert til að fá fólk til að mennta sig innan heilbrigðisgeirans t.d. sjúkraliðann. Sú menntun hentar vel inn á öldrunarheimili. Að lokum er það ófaglærðir útlendingar sem enda í störfunum. Margir hverjir illa talandi á íslensku, hef reynsluna frá Eir, og því vantar töluvert upp á umönnun gamla fólksins. Hluti af umönnuninni er tjáskipti.


mbl.is Hjúkrunarheimilið verður tvöfalt stærra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórn Félags grunnskólakennara,

samninganefnd og skólamálanefnd þarf að kjósa síðustu vikuna í maí. Persónulega vona ég að mikil endurnýjun verði í stjórninni og nefndum. Kennarar eiga fullt af félagsvönu fólki og það kemur maður í manns stað.

Innan stjórnar vinnur fólk sem er hliðhollt fráfarandi formanni og hafa stutt þöggun á einelti. Slíkt getur stjórn ekki leyft sér. Gefi þessi aðilar kost á sér vona ég að kennarar sjái ástæðu til að hundsa þá. Sömu einstaklingar hafa atað núverandi formann, Mjöll, aur og því væri einkennilegt ef þeir gefa kost á sér til að vinna með henni sem formanni félagsins.

Skólamálanefnd félagsins þarf að yngja upp. Því miður hafa safnast í hana konur, enginn karlmaður, um miðjan aldur. Þurfum breytingar og vonandi sjá ungir kennarar, karlar og konur, sér fært að starfa fyrir félagið í þeirri nefnd.

Samninganefnd er stjórn ásamt fleiri kosnum fulltrúum. Vona að þarna gefi öflugur hópur kost á sér sem vill samvinnu, lýðræði og dreifir ábyrgð. Slíku var ekki fyrir að fara í fyrrverandi samninganefnd. 

Spennandi tímar framundan hjá grunnskólakennurum.


Vel að verki staðið kennarar

að kjósa Mjöll sem næsta formann Félags grunnskólakennara. Athyglisvert er að formaður félagsins geldur afhroð í kosningunum. Pétur náði næstum jafn miklu atkvæðamagni og sitjandi formaður. Að mínu mati ætti Pétur að gefa kost á sér í samninganefnd félagsins enda ljóst að kjaramálin eru honum hugleikin.

Til hamingju Mjöll. Verkefnin framundan þegar þú tekur við verða mörg og margvíslega, ekki alltaf auðveld.


mbl.is Mjöll nýr formaður Félags grunnskólakennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varhugavert

að nota hoppukastala. Nú gerast slysin hvað ofan í annað. Alvarleg. Vantar eftirlit með þessum köstulum eða? Börn eru lengi að ná sér, sum hver, eftir svona áfall. 

Köllum eftir meira eftirliti.


mbl.is „Börnin voru auðvitað mikið skelkuð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar í nánd

og ég veit ekki hvaða flokk skal kjósa á Akureyri. Í bæjarmálum vilja allir gera allt fyrir bæjarbúa, spurning um leið.

Ég vil hvorki ókeypis leikskóla eða máltíðir í skólum. Vil hjálpa þeim sem þéna ekki nóg til að sjá fyrir börnum sínum. 

Ég vil betri þjónustu við börn, að þau fái hjálp áður en greining liggur fyrir, snemmtæk íhlutun. Svoleiðis er það ekki í dag. 

Fer á Glerártorg í dag. Þar getur maður kosið utankjörstaðar. Best að gera það, ljúka óvissunni af. Hægt eð gera ullen, dullen doff...segi bara svona!

Njótið dagsins. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband