30.4.2021 | 11:19
Víða leynist græðgin
Samherjamenn eru ekki einir um að vera gráðugir. Þáttur Kveiks svipti hulunni af gráðugum eigendum Init. Hundruð milljónir dugðu þeim ekki. Gráðugur vill meira. Leiðir til að græða meira fundnar. Fyrirtæki og dótturfyrirtæki. Þeir fóru þó ekki í þriðja ættlið eins og Samherji. Lífeyrissjóðir vissu af hluta þessa. Báðu menn að hætta- meðvirkir. Taka þarf á svona græðgi af festu. Lífeyrissjóðir verða að gæta fjarmuna fólks. Þeir hafa ekki gert það. Brugðust trausti manna. Einfalda þarf lífeyriskerfið. Galið að hér reki lítið land á annan tug lífeyrissjóða með tilheyrandi kostnaði.
![]() |
Mjög sláandi umfjöllun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2021 | 13:43
Strákar í Borgarholtsskóla forréttindakarlar
Hlustaði á karlkyns nemendur tala um kynjafræði sem er skylduáfangi í Borgarholtsskóla. Einn þeirra hafði á orði að þeir væru hvítir karlmenn og það væru forréttindi. Það er ekkert annað. Er gott að koma því inn hjá strákum að þeir séu forréttindahópur í samfélaginu.
Berjum þessu inn í hausinn á þeim, þeir haga sér þá vonandi öðruvísi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2021 | 17:24
Slær sig til riddara...sáir vantrausti
Að sjálfsögðu verða nýir starfsmenn ekki á lægri launum. Stéttarfélögin sjá til þess. Ásthildur sem fer fyrir atvinnurekanda sem treystir ekki fólkinu sínu slær sig til riddara með þessum orðum. Klént hjá henni.
Akureyrarbær fer fram á að kennarar stimpli sig út þegar þeir fara í covid sprautu. Þegar þeir mæta á vinnustað aftur stimpla þeir sig inn. Mega bakfæra fjarveruna með orðunum ,,launað leyfi/covid sprauta." Mikið traust sem bæjaryfirvöld, með Áshildi í fararbroddi, sýnir kennurum.
Fátt aðlaðandi við að vinna hjá bænum. Vona að heilbrigðisstarfsmenn á öldrunarheimilunum fái betri vinnuveitenda. Kemur í ljós með tímanum.
![]() |
Nýir starfsmenn hjúkrunarheimila ódýrari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2021 | 20:30
Hjól ekki heldur
Hjólreiðar á að banna á göngustígum sem eru ekki malbikaðir. Hjólin skilja eftir sig för sem eyðileggja göngustíga, frekar bið ég um hestaför en hjólför. Þegar rignir og jarðvegur mjúkur eru hjólin eitur á ómalbikaða göngustíga. Mikil hjólaumferð um slíka stíga mynda V í þá og ógjörningur að ganga á þeim. Svo hjólreiðamenn henda steinum úr glerhúsi fussi þeir yfir að hestar eyðileggi göngustíga. Glögg má sjá eyðilegginguna eftir hjólin í Heiðmörk og Kjaraskógi við Akureyri.
![]() |
Umferð ríðandi á ekki heima á göngustígum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2021 | 09:35
Lágkúran
heldur áfram af hendi Samherja, sem hefur kvóta almennings til ráðstöfunar gegn mjög vægu gjaldi. Þegar ég opnaði mbl.is í morgun blasir við auglýsing þar sem auglýsing Samherja. Ádeila á Ruv. Í stað þess að svara málefnalega af hverju þeir nota dóttur- og skúffufyrirtæki víða um heim ráðast þeir að fólki og stofnunum. Sorgleg athöfn og hefur þær afleiðingar að fyrirtækið er komið í skítaflokk vegna framkomu.
Nafn Færeyinga á vel við þá bæði hvað fjármagn og hefnd varðar: Hinir óseðjandi.
Vona að næsta ríkisstjórn hafi dug í sér til að innkalla kvóta til að selja afnotaréttinn af honum á réttlátu verði fyrir almenning. Samherjamenn hafa sýnt og sannað að þeir eru ekki traustsins verðir að hafa kvótann okkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2021 | 11:51
Kynvönun tungumálsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2021 | 11:12
Anna Þórey Arnardóttir dæmd- kvenlegur ,,aktivísti"
Huginn þór var svívirtur og bornar á hann lygar í opinberum miuðlum í tengslum við forsjármál. Barnsmóðir hans á um að sá fræjum aðrir létu lygafræin dafna. Huginn segir á snjáldursíðu: ,,Sérstaka athygli vekur að Anna bað Maariu Paivinen að koma sem vitni fyrir sig en sú síðarnefnda neitaði því skv. því sem kom fram í dómssal. Maaria sem sagt vildi ekki bera vitni um það sama og hún bar hér út um allt á sínum tíma."
Huginn segir auk þess, ,,Í dómsmálinu kom fram í máli Önnu Þóreyjar að barnsmóðir mín hefði staðið upp í húsi Kvennahreyfinga á Hallveigarstíg og talað yfir ,,aktívistum" sem þar hittust." Er þetta ekki eitraður félagsskapur- sýnist það á öllu.
Hér er um dæmigerðan ofstopa að ræða. Kona í forsjármáli svertir barnsföður sinn til að fá forsjánna og kvenlegir ,,aktivístar" bera út óhróðurinn. Vona að Anna Þórey fái dóminn skráðan á sakavottorðið sitt. Hún segir væntanlega frá dómnum á síðunni sinni þannig að fjölskylda og vinir viti hve ómerkileg aðför hennar að Huginn var.
Huginn þó hefur lagt þrjár konur í dómsmáli. Þær fóru með rangt mál og bjuggu til ýmsilegt um hann. Konurnar hafa endurspeglað umræðuna um baráttu feðra fyrir rétti barna sinna að umgangast báða foreldra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2021 | 17:00
Pólverjar sleppa í gegn
um landamæri hérna, kannski bólusettir með þessu ranga efni. Ná þarf í skottið á svona svikamyllu. Kemur engum á óvart að svik af þessum toga kemur upp. Þjóðverjar hafa keypt ferðir til Rússland til að láta bólusetja sig með Spútnik 5. Allar klær úti.
![]() |
Eftirlíkingar af Pfizer í umferð erlendis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2021 | 16:20
Ferðapassi fyrir útlendinga
Nú er lag að innheimta komugjöld til landsins fyrir þá sem hafa ekki lögheimili á Íslandi. Enginn ráðamaður þorði en nú þegar endurvekja á ferðaþjónustuna ber að rukka gjald. Mörg lönd rukka slík gjöld og við verðum. Horfa má til USA sem rukkar 14 dollar á mann sem sækir um komuleyfi til landsins.
![]() |
Starfshópur um uppbyggingu eldgossvæðisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2021 | 20:40
Vonandi deyr enginn
af hans völdum. ,,Sóttkvíarbrjóturinn kom til landsins frá Póllandi í lok mars." Líkja má þessari hegðun við ölvun undir akstri. Vogun vinnur, vogun tapar! Varla verður hægt að sækja einstaklinginn til saka yfirgefi einhver jarðvistina sökum smitsins.
![]() |
Smitrakning nær óvenjulangt aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)