28.3.2022 | 17:54
Sænskur kennari, Selma, var rekinn
en það gladdi mig verulega að skólinn sem hún vann hjá mátti ekki þvinga hana til að nota orðið ,,hán um dreng. Gekk gegn hennar eigin gildum. Foreldrar drengsins, sem var 7 ára, vildu og fóru fram á að hún notaði ,,hán." í stað hann. Eftir samningaviðræður í nokkra mánuði var hún leyst frá störfum í viku, umþóttunartími. Foreldrarnir voru ekki sátt við að hún notaði skírnarnafnið hans, vildu þvinga hana til að nota ,,hán. Að umþóttunartímanum liðnum hafði hún ekki breytt lífsgildum sínum og þá var henni sagt upp.
Skólinn mátti ekki þvingað hana til að kalla drenginn ,,hán og því voru hennar dæmdar bætur, 150 þúsund sænskar krónur (um 2 milljónir). Skólanefndin leyfði henni ekki að kveðja nemendur né samstarfsfólkið sitt.
Mér þykir stúlkan tala af mikill skynsemi um málefni ,,trans fólks út frá eigin lífsgildum og þá kröfu hópsins að allir virði skoðanir og vilja þeirra en það er ekki gagnkvæmt. Allir þvingaðir inn á sömu skoðun. Því miður eru of margir sem láta sig fljóta með og gera ýmislegt gegn lífsgildum sínum til að þóknast öðrum.
Takk hatt minn ofan fyrir þessum unga kennara. Hér má hlusta á viðtalið sem er á sænsku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2022 | 10:09
Áhorf minnkar á þessa prjálsýningu
og er það vel. Leggja má þessa skrautsýningu niður og nota peningana í eitthvað þarfara. Vona að áhorfið dvíni þannig að þeir leggi sýninguna niður í þeirri mynd sem hún er.
Hef aldrei skilið af hverju leikarar fá svona mikla athygli fyrir að sinna vinnu sinni. Launin, við skulum ekki tala um það.
![]() |
Sigurvegari og skúrkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2022 | 19:49
Aldeilis gott,
ganga þarf harðar fram í sameiningu sveitarfélaga. Mörg hver eru ekki fær um að sinna skyldu sinni við borgarana. Mörg þurfa að kaupa þjónustu frá öðrum. Kostnaður við yfirstjórn myndi minnka og mörg sveitarfélög þurfa á því að halda. Ekkert sveitarfélag ætti að telja færri en 5000 íbúa, jafnvel fleiri.
Eyjafjörður sem dæmi ætti að vera eitt sveitarfélag með um 25 þús. íbúða. Í dag eru bæjarstjóri, nokkuð margir sveitastjóra og hellingur af sveitarstjórnarfólki. Færri gefa kost á sér til slíkra starfa og því myndi fækkun sveitarfélaga vera að hluta til svar við því.
Skólar eru misvel reknir og stoðþjónusta stopul vegna fjármags og fagfólks. Ráða þarf bót á því með stækkun sveitarfélaga.
![]() |
Langanesbyggð og Svalbarðshreppur sameinast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2022 | 11:01
Vitleysan með trans-réttindin er komin
út fyrir öll skynsamleg mörk. Ríkisstjórn sem hleypur eftir tilfinningum 0.002% þjóðarinnar á kostnað hinna er ekki traustsins verð. Hér má sjá góða umfjöllun um málið Morgunblaðið - Textaútgáfa - Innskráning (mbl.is)
Hér kemur grein Írisar:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2022 | 10:08
Hvað með börnin
sem hafa gaman af þessu og vilja taka þátt. Látum við þeirra óskir til hliðar. Látum umboðsmann barna stjórna námskrá, fögum og hvernig kennslu er háttað. Virðist þróunin í íslenskum skólum. Miðað við fjölda grunnskólabarna hef ég grun um að við séum ekki að tala um mikinn fjölda.
Má líkja þessu við að barn sem truflar tíma og eyðileggur hann fyrir hinum nemendunum er ekki vísað út úr tíma. Bannað samkvæmt umboðsmanni. Hvað með rétt hinna barnanna? Eiga fá börn að stjórna heildinni, maður spyr.
Vissulega á að vera valfrjálst að taka þátt í svona ,,streituvaldandi" æfingum í skólanum. Bannað þau, nei alls ekki.
![]() |
Vill láta banna píp-próf í grunnskólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.3.2022 | 10:17
Byltingin er komin út fyrir
öll mörk að margra mati. Hildur Eir Bolladóttir talar um það hér.
Hún segir réttilega að aðferðarfræðin sé vafasöm í marga staði. ,,Aðferðarfræðin sem hún gagnrýnir fyrst og fremst er sú að verið sé að birta samskipti úr nánum samböndum á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Með því séu allir aðilar máls á svo miklum berangri að þeir séu í raun naktir á sviði samfélagsins. Þegar athygli samfélagsins er síðan komin annað stendur fólkið eftir nakið."
Mikið er ánægjulegt að sjá viti bornar konur tala á þessum nótum. Alltof margar sem sýna karlhatur og stunda nornaveiðar. Blessaðir fótboltadrengirnir lentu í kjaftinum á tveimur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2022 | 21:25
Fara eftir umferðarlögum!
![]() |
Dönsk lögregla í hart við Íslending |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2022 | 14:44
Litli maðurinn Gísli Marteinn
lítur stórt á sig og tísti (réttnefni, það gerir hann) um prófkjör Sjálfstæðismanna. Vona svo sannarlega að Helgi Áss komist inn í borgastjórn. Gísli Marteinn er ,,fífl" það finnst ekkert annað orð yfir þann mann sem telur sig í miklum metum en í reynd er hvorki á hann horfandi né hlustandi á. Gísli Marteinn sem telur sig hafinn yfir Helga Áss er þó miklu minni maður en Helgi, í orði og gjörðum. ,,Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fór fram um helgina og voru úrslit ljós aðfaranótt sunnudags. Helgi Áss var meðal nýrra andlita í prófkjörinu og gæti vel farið svo að hann verði á meðal borgarfulltrúa flokksins að loknum kosningunum þann 14. maí."
Fréttina má les hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2022 | 14:41
Hugmyndin góð
en þóknast sennilega hvorki ráðherrum né þingmönnum. Nefni ekki ofurlaunatökumennina. Hef lengi sagt og segi enn, 75% skattur á tekju yfir 3 milljónum á að vera regla. Enginn hefur þörf fyrir svo há laun. Arðgreiðslur á að skattleggja sem laun, því þetta er ekkert annað. Feluleikur með rétt kjör.
Verður fróðlegt að sjá undirtektir ráðamanna við skrifum formanns ASÍ.
![]() |
Leggur til að skilyrða hæstu laun við lægstu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2022 | 08:29
Kemur ekki á óvart að fleiri andlát
verði þegar samfélagið er eins og opið og raun ber vitni. Gamla fólkinu var pakkað í bómull sem og þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Bómullin tekinn með þessum afleiðingum. Held að flestir hafi vitað það. Landinn kærulausari en áður. Frelsinu feginn. Eftir situr þessi hópur sem hefur ekkert val. Börn og barnabörn koma í heimsókn og smitar sitt fólk, margir án þess að vita af því.
![]() |
Dauðsföllum fjölgar vegna Covid |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)