Falskar nauðgunarákærur,

um það fjallar mynd sem Indverjar gerðu. Hér má sjá frétt um málið India’s Sons | Tale of False Rape Case Survivors | Delhi Premiere | A Full House (mensdayout.com)

Verður fróðlegt að sjá þessa mynd.


Sorglegt að rétturinn

telji hana seka í þessum málum. Barnabrúðir eru bannaðar í hinum vestræna heimi. Danir eiga að senda slík pör heim án efnislegrar meðferðar, breyta löginum. Þannig verður ekki freistandi að koma til Danmerkur. Sómalar hafa sent stelpurnar sínar í heimsókn heim og gift þær. Danir reyna að sporna við þeim gjörnungi ásamt umskurði stúlkna sem fara í heimsókn til heimalands síns. 

Hún á víða meðbyr. Vonandi flýtur það henni áfram í sinni stefnu í útlendingamálum.


mbl.is Inger Støjberg dæmd í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladagatöl, ruslsöfnun

mannkynsins. Flest það sem kemur í svona dagatölum er drasl sem enginn hefur neitt við að gera. Kannski þau sem borða má úr og drekka. Leið söluaðila til að losa sig við dót sem annars er ekki keypt. Við mennirnir, sem tölum um vanda í loftslagsmálum, látum þetta ekki okkur varða. Sjálfhverfa. Við lærum seint. Síðan er rætt um losun koltvísýrings o.fl. í þeim dúr. Menn sigla stundum hálfan hnöttinn til að koma draslinu til okkar, sem þurfum ekki á því að halda. Kaupa minna. Kaupa vandaðri vörur. Kaupa það sem endist. 


Illa farið með staðreyndir

og spyrja má hver sé tilgangurinn. ,Krafa grunn­skóla­kenn­ara varðandi stytt­ingu vinnu­tíma er að stytta kennslu hvers kenn­ara um eina viku á ári þ.e. úr 37 vik­um í 36 vik­ur." Nei krafa kennara er að stytta kennsluskyldu úr 26 tímum í 25 tíma á viku sem liður í styttingu vinnuvikunnar. Skólaárið mun verða það sama og er nú. Sambandið villir um fyrir lýðnum.

Grunnskólakennarar eru ekki ginkeyptir fyrir að selja kaffi- og matartímann til að mæta styttingu vinnuvikunnar eins og margar stéttir hafa gert. Auðvelt þegar þú vinnur ekki með fólk. Ómögulegt þegar þú vinnur með annað fólk eins og leikskólakennarar, sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar svo eitthvað sé nefnt. Vona að grunnskólakennarar falli ekki í þann gröft að selja frá sér neysluhlé sem forfeður okkar börðust fyrir með kjafti og klóm. Eitthvað rangt við nútíma kjarabaráttu. 


mbl.is Slitu viðræðum og samningurinn að renna út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konurnar sóttar til saka

í Danaveldi. Engin miskunn hjá Mette og félögum í ríkisstjórninni gagnvart ISS- konunum. Í frétt Berlinske tidende hér má sjá fréttina. Um er að ræða þrjár konur, 32, 34 og 37 ára, sem Danir sóttu. Þær eiga 14 börn. Notaðar sem útungunarvélar til að fæða af sér ISS- meðlimi. Með þeirra samþykki, því þær tóku sjálfviljugar af stað. Engin neyddi þær að hverfa frá heimalandi sínu.

Ég er sammála Dönum, rétta á yfir þeim og dæma konurnar. Ein alverstu hryðjuverkasamtök ISS eru enn við lýði. Margar af þeim konum eða stúlkum sem fór til liðs við samtökin vissu hvað þær gerðu. Margar þeirra myndu endurtaka leikinn. Þær trúðu að þeirra byði sæla þegar búið væri að útrýma ,,réttu" fólki.

Auðvitað á að refsa þeim rétt eins og öðrum ISS- liðum.


Við bætist ofbeldið

í garð kennara. Sum sveitarfélög skapa kennurum ekki gott vinnuumhverfi. Þarf að spara. Má ekki eyða of miklu í skólana. Allir saman í bekk, burtséð frá líkamlegu og andlegu atgervi.

Nemendur beita kennara ofbeldi og sá vandi eykst, miðað við tölur frá öðrum Norðurlöndum. Kennarar standa berskjaldaðir gagnvart slíku. Hefur áhrif á andlega heilsu kennara að hafa yfirvofandi vá. 

Taka þarf til í skólakerfinu og sveitarfélögin þurfa að girða sig í brók. Þakkavert að umboðsmaður Alþingis sé komið í málið. Vonandi gerist eitthvað vitrænt.


mbl.is Standi andspænis nánast óleysanlegum vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berjast á gegn Tik Tok

sem leyfir nafnlausar sendingar. Fyrir stuttu aðvöruðu bresku kennarasamtökin nafnlausar myndsendingar á miðlinum. Myndirnar eru af ungum karlkennurum þar sem skrifa var barnaníðungur á myndina. Kennarar hafa misst vinnuna vegna málsins. Nafnlausar sendingar. Hér má sjá um málið, galli á gjöf Njarðar ekki hægt að opna fréttina.

Hér er hægt að lesa málið. Set danska þýðingu úr greininni ,, Min egen prøvelse begyndte, da en senior på min skole ringede til mig til et møde og fortalte mig, at der var blevet postet en "stødende" video om mig. Jeg gik lidt forvirret hjem og åbnede min bærbare computer. Det tog mig omkring 30 sekunder at finde ud af, hvad min kollega talte om. Jeg fandt en mystisk konto på TikTok med et anonymt brugernavn. De havde lagt tre videoer op, hvoraf den ene var kritisk over for min skole. De to andre videoer handlede udelukkende om mig. Den anonyme bruger havde taget billeder fra min professionelle Twitter-konto og overlejret dem med tekst. I en tekst blev jeg omtalt som en "børnemisbruger". En anden sagde, at jeg havde "rørt ved børn" og spurgte: "Hvor mange børn rører du ved? Tusinder, millioner?".

 

Í maí kom fram hjá samtökunum ,,Barnevakten" í Danmörku að nemendur taki mynd af kennurum sínum og senda á miðilinn. Hér má lesa um málið.

Merkilegt enn eru börnin varin með því að þau viti ekki eða átti sig ekki á hvað þau gera. Held að það sé fjarstæða, mikil fræðsla, umfjöllun og umtal hefur verið um myndsendingar án leyfis. Ætti ekki að hafa farið framhjá neinu barni eða ungmenni.


Kennarastéttir kjósa

varaformann þessa dagana. Kosningaþátttaka er mjög dræm, rétt um 14% á hádegi í dag. Hægt að kjósa til hádegis á mánudag.

Verulegt áhyggjuefni ef svo fáir láta sig forystusveit samtakanna varða. Átta gáfu kost á sér. Úr nógu að velja. Mishæfir frambjóðendur eins og gengur og gerist. 

Vona að kennarar hristi hendur fram úr ermi og drífi sig í að kjósa. Rafrænar kosningar og því lítið mál.

Áhyggjuefni hve fáir í samfélaginu láta sig félagsmálin varða. Sólveig Anna var kosin með fáum atkvæðum í formannssæti Eflingar. Ragnar Þór hjá VR sömuleiðis. 

 


Alma Ómarsdóttir varð sér til skammar

þegar hún ræddi við ráðherra í kvöldfréttum. Hún reyndi af öllum mætti að sverta skipun Jóns í embætti og ráðningu Brynjars sem aðstoðarmanns. Máli sínu til stuðnings sagði hún þá hafa stutt svokallaða tálmum og þeir sem henni beittu ættu að fá fangelsisdóm. Alma gerir þarna lítið úr ofbeldi sem tálmunarforeldri beitir barni. Alma Ómarsdóttir ætti að kynna sér betur hvað hugtakið tálmun felur í sér og afleiðingar þeirrar gjörðar á börn. Brynjar stendur henni framar í þeim efnum.

Er ekki kominn tími til að fréttamenn Ruv taki málstað öfgafólksins í kvenfrelsunarmálum af dagskrá. Bjarni benti Ölmu réttilega á að það væri lítill minnihluti sem ræddi þessi mál og væri á hennar skoðun, að mennirnir væru óhæfir. 

Alma Ómarsdóttir fær falleinkunn í fréttamennsku fyrir þessa frétt. Hún gleymir hvað fréttamaður á að gera, vera hlutlaus þegar hún færir fréttir, ekki fullyrða út frá eigin skoðunum. 


Forsætisráðherra gefur til kynna að

hún muni draga taum meintra þolenda í kynferðisbrotum samkvæmt skáskotunum. Getur ráðherra gert slíkt...spyr sá sem ekki veit.

Hélt að Aldís væri skynsamari en svo og þekkti inn á stjórnmálin, hver flokkur ræður sínum ráðherrum og þeir aðstoðarmönnum. Aldís þarf að fræða hópinn sinn um verklag ríkisstjórnar. Stormur í vatnsglasi.

May be an image of Texti þar sem stendur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband