Ráðist gegn tjáningarfrelsinu

J.K. Rowling hefur tjáð sig um hugmyndafræði trans-hreyfinga og merkilegt nokk eru það sömu skoðanir og bloggari hefur. Skoðanir sem segir ekkert nema sannleikann.

Las áhugaverðan pistil á síðunni norn.is. Í pistlinum stendur ,, Rowling segist ekkert hafa á móti transfólki en að hún hafi áhyggjur af því óheft frelsi til að skilgreina kyn sitt án íhlutunar hins opinbera kunni að verða misnotað og leiða til enn meiri hörmunga fyrir börn með kynáttunarvanda. Hún hefur einnig haldið því fram að til séu tvö líffræðileg kyn, karlkyn og kvenkyn og telur óþarfa nærgætni við transfólk að forðast að nota orðin karl og kona.“

Kennarar hafa sýnt að þeir þora ekki í umræðuna. Mörg hundruð kennara þegja frekar en segja eins og formaður Kennarasambandsins bað þá um. Einn og einn hefur rödd skynseminnar að leiðarljósi og lætur í sér heyra.

Í pistlinum segir líka ,, Ákvörðun Rowling er hárétt. Það er svivirðilegt að verðlaun og viðurkenningar séu notuð til þess að bæla niður frjáls skoðanaskipti og Rowling er jafn mikill velgjörðamaður barna þótt skoðanir hennar á kynjapólitík fari fyrir brjóstið á Kerry Kennedy. Rowling þarf ekki viðurkenningar frá kúgunarsamtökum til að vekja athygli á þeim málefnum sem hún styður og því síður sjálfri sér.“

Fyrir svona konum ber maður virðingu. Barátta fyrir að börn og konur fái að baða sig í friði án trans-konu með lífæri karlmanns er þess virði. Barátta fyrir að stúlkur fái að stunda íþróttir á jafnréttisgrunvelli við aðrar stúlkur, ekki trans-konu sem hafa styrkleik karlmanns, er þess virði.

 


Eru börn örugg í skóla þrátt fyrir ólíkar skoðanir kennara

Ein undarleg færsla birtist hjá kennaranum sem vill láta reka fólk fyrir skoðanir sínar. Grunnhyggni einkennir þessa færslu eins og hinar sem skrifaðar voru við tilfinningaþrunginn pistil kennara.

Bloggara sýnist foreldri vera hér á ferð. Það eitt að kennari og foreldri ræði á þessum nótum er alvarlegur hlutur. Er það hlutverk kennara að sá fræjum um félaga sína í kennarastéttinni. Má velta því upp!

Tinna hjá Heiðu

 

 

 

Skyldi þessi móðir og kennari hugsa til barna sem hafa ólík trúarbrögð sem lífsskoðun og einkennir staðblæ heimilisins. Hvernig er öryggi þeirra tryggt, svo bloggari noti hennar orð, þegar fræðsla um trans-málaflokkinn er á dagskrá, t.d. að barn geti verið fætt í röngum líkama. Víða eru trúarbrögð leiðarljós foreldra og mörgum þeirra hugnast ekki þessi fræðsla og boðskapur. Gengur þvert á lífsskoðun þeirra, t.d. að börn geti breytt um kyn og að heilbrigðisstéttir geti sér til um kyn hvítvoðungsins.

Margir foreldrar þora ekki að láta i sér heyra og hafna trans-fræðslunni fyrir börnin í skólum, halda að þau séu ein um það. Eru þeir foreldrar verri en þessi sem fer mikinn um öryggi barna, NEI. Hvert og eitt foreldri veit hvað barni sínu er fyrir bestu.

Heimili þar sem trúin er leiðarljósið virðast ekki eiga upp á pallborðið hvað þá að þau njóti skilnings þessarar móður og kennarans sem hikar ekki við að beita slaufun.

Færsla móðurinnar er eins og kennarans, án róstuðnings, bara tilfinningar. Það er með öllu ólíðandi að menn tjái sig með tilfinningar að vopni, kemur sjaldan nokkuð gáfulegt úr úr því. Hvað þá að hægt sé að segja það heilbrigða skynsemi.

Til að svara fyrirsögninni, já börn eru örugg þrátt fyrir ólíkar skoðanir kennara. Hér er um fagstétt að ræða sem getur aðskilið tilfinningar og starf þegar kemur að umdeildum málaflokkum. Bloggari telur trúuðu börnin örugg hjá þeim kennara sem finnst sjálfsagt að reka bloggara rétt eins og börn sem glíma við kynama eru örugg í umhverfi bloggara. Allt annað eru gróusögur og atvinnurógur.


Tilfinningarússíbani kennara

Ljóst varð um leið og grein bloggara birtist í Morgunblaðinu, þar sem spurningum um fræðslu trans Samtaka 78 inni í skólakerfinu var velt upp, myndi það leiða til moldviðris. Reyndist rétt.

Í greininni velti bloggari upp þeim spurningum hvort ákveðnar greinar Barnaverndarlaga væru brotnar með tiltekinni fræðslu. Bloggari fékk eitt málnefnalegt svar í tölvupósti þar sem viðkomandi taldi fræðsluna ekki stangast á við lögin, án frekar rökstuðnings.

Einn kennari skrifaði tilfinningaþrunginn pistil á eigin snjáldursíðu stuttu eftir lestur greinarinnar. Gleðilegt að pistillinn þótti áhugaverður og svo margir lásu. Hins vegar fór tilfinningarússíbaninn í gang hjá umræddum kennara, ekki skynsemi, ígrundun eða rökstuðningur af hverju hann var ósammála. Hvað þá að hann reyndi að svara spurningunum, t.d. ef haldið er fram við börn að hormóalyf séu skaðlaus. Hvað þá, af hverju svarar kennarinn því ekki? Þekkingarleysi?

Fleiri kennarar hoppuðu á vagn rússíbanans og létu ýmislegt út úr sér til lýsa vanþóknun sinni á ofur einföldum vangaveltum um fræðslu utanaðkomandi hagsmunarsamtaka í skólakerfinu.

Eins og sjá má á þessum skjáskoti eru engin rök á bak við skrifin, bara reiði og tilfinningar, eitthvað sem fólk ímyndar sér. Af hverju kennarar láti tilfinningar ráða för í stað heilbrigðar skynsemi er bloggara hulin ráðgáta. Hér er sami kennari á ferð og vill láta reka fólk fyrir skoðanir sínar sem falla ekki að hennar. Engin mánefnanleg rök. Almenn vinnubrögð kennara- held ekki, vona ekki.

heiða 2

 

 

 

 

Bloggara er fyrirmunað að skilja af hverju flöggun regnbogafána við skólastofnanir komi fræðsluefni trans Samtaka 78 við. Kannski takmörkun bloggara. Kennarinn sem skrifaði innleggið hér að neðan virðist henda þessu fram sem tortryggni. Dæma á bloggara. Sitt sýnist hverjum um flöggun fánana og það er í góðu lagi. Sumum finnst þetta óviðeigandi, öðrum allt  í lagi og svo er öðrum nákvæmlega sama hvort fáninn hangir uppi eður ei. Engin þessarar skoðana eru réttar eða rangar. Hvað þá að ein sé réttari en hinar. Skólastjóri hefur forræði yfir fánastöngum hvers skóla.

hulda á bloggið

 

 

 

Fékk að láni frá Einari Gauta Steingrímssyni lögmanni, feitletrun er mín:

Smá lögfræðihugvekja

Oft líður fólki illa undan öðrum og talar um að sér hafi verið brotið. Oft er það rétt. Gagnvart lögum er reglan þessi: Við berum ekki ábyrgð á erfiðum tilfinningum annarra þótt við komum þar sjálf við sögu nema í undantekningartilfellum. Slík tilfelli geta verið brot á meiðyrðalöggjöf, einelti, hatursorðræða o.fl. Þótt einhverjum líði illa vegna einhvers annars sannar það ekki að viðkomandi hafi framið lögbrot gagnvart viðkomandi eða bera lagalega ábyrgð á líðaninni. Verum samt góð við hvert annað.

 


Kennari vildi láta svipta annan lífsviðurværi sínu

vegna skrifa og skoðana. Það var vegna skoðana á umdeildum málaflokki í samfélaginu. 

Enginn kennari hefur fundið fordóma eða hatursfull ummæli í skrifum bloggara. ENGINN. Séu þau ummæli að finna væri búið að benda á þau og áminna. Kennari vildi einlæglega láta reka bloggara úr vinnu. Hún skrifaði það við tilfinningaþrunginn pistil frá öðrum kennara á snjáldursíðu. Engin rök, bara tilfinningar. Kennarinn styður að fólk sé svipt viðurværi sínum vegna skoðana. Að mínu mati stórhættuleg skoðun og framferði að óska nokkrum manni þess. 

heiða á blogg

 

 

 

 

 

 

Kennarinn virðist ekki þekkja mun á ígrundun, víðtækri þekkingu, upplýsingaöflun og gagnrýnni hugsun og tilfinningatali. Hún blandar orðum sínum við tilfinningar sem hún sjálf hefur til umdeilds málaflokks. Enda í góðu lagi. Hennar aðferð til að tjá sig. En að óska öðrum atvinnumissi því hún er ekki sammála skrifum bloggarar er langt út fyrir það sem kalla má gott siðferði.

Skrif bloggara hafa gengið út á að upplýsa. Lesendum er bent á að kynin séu tvö, að ekki sé hægt að skipta um líffræðilegt kyn. Konur beri XX litninga og karlar XY litninga. Hormóna-og krosshormónagjafir eiga ekkert erindi til barna í því mæli sem er t.d á Norðurlöndunum og Bretlandi. Enda hafa menn dregið úr notkun þeirra því ljós kom að aukaverkanir af lyfjunum eru mjög alvarlegar. Bloggari hefur bent á að börnum með kynama eigi að veita góða sálfræðimeðferð. Máli sínu til stuðnings hafa krækjur að alls kyns fróðleik verið settar með bloggfærslum frá alls konar fræðimönnum og foreldrum. Hvað fullorðið fólk gerir við líkama sinn kemur hvorki bloggara né öðrum við, rauður þráður í umræðunni á bloggsíðunni.

Bloggari hefur skoðun á fræðslu trans Samtaka 78, að hún eigi að vera valkvæð. Að kenna mannréttindi, lýðræði og jafnréttindi kynjanna þarf ekki að gera á þann hátt sem trans samtökin 78 gera í skólakerfinu. Nóg er af efni um málaflokkana án þess að samtökin komi við sögu. Kennarar eru fullfærir að kenna þessa málaflokka án aðkomu hagsmunasamtaka. Fór illa fyrir brjóstið á sumum, m.a. umræddum kennara. En hvað gerir þessa skoðun bloggara ranga en hennar rétta?

mbl.is

                                                                                                                                                         

 

 

 

 

 

 

Umræddur kennari er ábyggilega ósammála bloggara í þessu öllu miðað við málflutning hennar í tengslum við greinina sem birtist í mogganum í febrúar s.l. Að kennarinn sé ósammála gerir málflutning bloggara ekki að hatri eða fordómafullan. Henni láðist í ummælum sínum að koma með rök og staðreyndir fyrir máli sínu.

Tölum út frá staðreyndum ekki tilfinningum.


Tveir karlar og ein kona á verðlaunapall í kvennaflokki

Tveir karlmenn, sem skilgreina sig sem konu, voru á verðlaunapalli eftir hjólreiðakeppni í kvennakvennaflokki. Þetta gerðist í CycloCross Cup í Chicago. Atkvikið veldur reiði, m.a. einstaka kvennaréttindaforkólfa. Undrast nokkur! Ættu ekki öll kvennasamtök að rísa upp á afturfæturna?

Það er ljóst að trans-konurnar vilja ekki keppa við sinn líkan að styrk. Myndu ekki ná á verðlaunapall. 

Menn eru misánægðir með þátttöku trans-kvenna í kvennakeppninni. Hér segir t.d. einn ,,Ömurlegir, misheppnaðir menn sem eru stoltir af því að vinna verðlaun ætluð konum. Algjör mistök hjá þeim báðum," skrifaði notandinn @crusepat."

Velti fyrir mér hvenær kvennmenn um allan heim standi upp fyrir stúlkum og konum og berjist fyrir að þær fái að keppa á jafnréttisgrundvelli. Þær gátu það áður en lög um kynrænt sjálfræði tók gildi víða um heim, af hverju er ekki hægt að vernda þær gegn karlmönnum af þessu tagi í dag.

Lesa má um málið hér.


Ætlið þið að segja mér að þetta sé í lagi?

Réttindi kvenna molna til þess eins að þóknast réttindum trans-kvenna. Kvennaíþróttir eiga undir högg að sækja og menn virðast bara sáttir við það.

Fjölmargar íþróttakonur féllu úr leik á bardagaíþróttamóti kvenna fyrir stuttu eftir að mótshaldarar neyddu þær til að keppa við trans-konur (karlmenn með líffæri og styrk karla).

Í einni kvennadeildinni voru bara karlar sem kepptu. Eitthvað eðlilegt við að kalla þetta kvennaflokk, NEI! Virðist þróunin. Lesið hér.

Spyr kennara, því margir eru hlynntir trans Samtökunum 78 sem finnst þessi yfirgangur á réttindum kvenna í lagi. Gerðist í útlöndum, hefur gerst hér og mun dreifa sér um allt verði þetta ekki stoppað af íþróttasamböndum og alheims samtökum.


Unglingsstúlku vísað úr skóla...vildi nota kvennaklósettið

Faðir lýsir reiði sinni eftir að ungri dóttur hans var vísað úr skóla fyrir að neita að nota salerni fyrir bæði kynin og hringja í fjölskyldu sína eftir hjálp.

Stúlkunni var sagt af karlkyns kennara að hún mætti ekki nota kvennasalernið. Þetta gerðist í Bretlandi en gæti verið hvar sem er. Hér má lesa um málið.

Unglingsstúlkan neitaði að nota kynhlutlaust salerni og hafði samband við foreldri til að fá aðstoð. Stúlkan, sem gengur í Brune Park Community School, sagði föður sínum að henni væri gefinn kostur á að annað hvort nota kynleysi aðstöðuna eða fá alls ekki að fara á klósettið.

Foreldrar í skólanum virðast ekki meðvitaðir að kynhlutlaus salerni séu í notkun og alls ekki að það sé karlkennari sem stjórni því hvaða klósett hvort kynið notar. Stúlkunni líður illa með að nota þessi salerni og vill nota þau sem ætluð er konum.

Það er engin afsökun fyrir karlkyns kennara sem menntaður er í að vernda börn að neita ungri stúlku um aðgang að kvennasalerni. Málið hefur ekki haft eftirmála fyrir kennarann, þannig að þeir geta gert þetta aftur.

Víða hefur komið upp vandamál með innleiðingu kynlausra salerna í skólum á Bretlandi. Fyrr á þessu ári greindi móðir í Coventry frá því að ráðist hefði verið á 13 ára dóttur hennar á salernum ætluð báðum kynjum í Caludon kastalaskólanum í Wyken. Áhugasamir geta lesið greinina hér.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband