Hanna Björg Vilhjálmsdóttir misnotar

Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands til að koma hugðarefnum sínum á framfæri. Meðal þess er hún óhæf í formannsstól KÍ. Kom í ljós á kynningarfundinum að hún á ekkert erindi í formannsstólinn. Smá útidúr.

Jafnréttisnefnd KÍ, sem bara er skipuð konum, boðar til umræðufunda um jafnrétti í skólum. Það sem vekur athygli mína, enginn karlmaður er á mælendaskrá. JAFNRÉTTISMÁL. Þeir sem eru á mælendaskrá eru samstarfsmenn og hluti hjarðar Hönnu Bjargar um kynbundið ofbeldi. Kolbrún í Jafnréttiskóla RVK-borgar sem varð sér til skammar í viðtali um landsliðsmenn. Dæmdi þá alla sem einn, rétt eins og Hanna Björg hefur gert. Strákar eru víst forréttindahópur í augum þessara kvenna.

Hér má sjá dagskránna sem er langt í frá að vera umræða um jafnréttismál.


Kolbrún óhæf

hún hefur lýst skoðun sinni á hegðun fótboltalandsmanna í heild. Ekki einstaka leikmönnum. Allir dæmdir af henni. Gerir hana óhæft að KSÍ á að losa sig við hana í hvelli. Reyndar er hún skoðana sinna óhæf í mörgum málum þegar kemur að nánum samskiptum kynjanna. Starfsmaður KSÍ á að vera hlutlaus, það er hún ekki og mun ekki.

Sigurður geri þetta að umtalsefni hér.


Auðvitað á Erna að fara á þing

í stað Birgis. Hann blekkti fólk vísvitandi. Hann hefði aldrei komist á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ef þetta er hægt er um ákveðið fordæmi að ræða sem við ættum ekki og reyndar aldrei að gefa. Kjósendur kusa annað. Hann sveik kjósendur og sér ekki sóma sinn í að koma sér frá sjálfur.


mbl.is Kæra borist kjörbréfanefnd vegna Birgis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju taka fjölmiðlar ekki ábyrgð á birtingu klámmynda?

Detta ekki allir dauðar lýs úr höfði mínu. Silfrið ræddi stöðu drengja í dag. Kynferðismálin og myndbirtingar á dagskrá. Klámáhorfið. Drengir fá líka beiðni um að myndsendingar eins og stúlkur. Lögfræðingur Ríkislögreglustjóra sagði lögguna fara inn í alla 8. bekki til að ræða myndsendingar á samfélagsmiðlum.
 
Dagblöðin eru full af klámmyndum, oftast konum. Frásögnum af alls konar kynlífi. Sölu af kynferðislegum myndum, o.s.frv. Mikinn hagnað af kynferðislegum myndum og athöfnum. Hvar er þeirra ábyrgð? Enginn talar um það.
Það er alveg sama hve mikil fræðsla fer fram í skólunum, heimilið skiptir höfuðmáli. Hitt hjálpar. Foreldrar eiga ekki að leyfa börnum sínum að vera á samfélagsmiðlum fyrr en þau hafa aldur til. Foreldrar eiga að fræða börn sín, tala um þetta, fylgjast með símanum og hvað annað sem foreldrar hafa leyfi til að gera. Ræða þarf við stúlkur- ekki senda myndir. Látið ekki taka upp af ykkur. Sama með drengina- ræðið við þá um að biðja ekki um myndir af stúlku og sendið ekki myndir af ykkur. Foreldrar, foreldrar, foreldrar...þið hafið valdið. Af hverju þarf barn að vera nettengt allan sólarhringinn, af því símafyrirtæki býður símapakka?
 
Danir lögstóttu um1000 manns, bæði börn og ungmenni, fyrir slíka myndsendingar sem segja að hafi virkað vel sem forvörn. ,,Netop deling af krænkende fotos er i centrum i et stort verserende sagskompleks mod flere end 1000 mennesker, som alle skal have delt en samlejevideo med to 15-årige."
,,En kvinde på 19 år sendte på Facebook et foto til en pige, som gik på samme skole som offeret. Hun er straffet med ti dages betinget fængsel." Stúlka, 19 ára, sendi á Snjáldursíðuna mynd af stúlku sem var í sama skóla. Stúlkan fékk skilorðisbundin dóm."
Lesa má margar fréttir af slíkum dómum í Danaveldi. Vonandi, áður en langt um líður, falla dómar hér.

Við eigum sjálf að kalla

sendiherra okkar heim frá Tyrklandi. Ísland á að sýna hinum Norðurlandaþjóðunum stuðning. Við eigum ekki að sætta okkur við stjórnunarhætti Tyrklandsforseta. Okkur er enginn sómi af að vera eina Norðurlandið sem hefur ekki fordæmt gæsluvarðhaldið. 


mbl.is Rekur alla sendiherra Norðurlandanna úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara úrræðaleysi vegna barna með sérþarfir

heldur og allra barna. Dugleg börn sem mæta í skólann til að læra fá ekki frið. Agaleysi er mikið. Meðvirkni foreldra er of algeng. Margir nemendur telja sig koma í skólann til að hafa uppistand. Ekki einn tíma heldur langflestar kennslustundir. Úrræði til að fjarlægja þann nemanda, þó engar sérþarfir hafi, eru fá ef nokkur. Slíka nemendur er víða að finna, bráðgáfaða en nenna ekki að sinna starfi sínu í grunnskólanum.

Grunnskólakerfið virðist laskað. Peningar eiga þar sök. Ekki má ráða það fagfólk sem grunnskólinn þarf á að halda. Í stað grunnskólakennara eru stuðningsfulltrúar ráðnir sem hafa ekki sömu menntun og starfssvið og grunnskólakennarar.

Betur má ef duga skal. Minni á rannsóknina sem var til umfjöllunar um kulnunarástand grunnskólakennara.


mbl.is Ráðlagt að kæra innilokun barns í skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vafamál skrárri kostur en lögbrot

eins og gerðist í talningu í NV-kjördæmi. Karl Gauti fyrrverandi sýslumaður hefur gefið greinagóða lýsingu á hvernig lögleg talning fer fram. Kjörstjórn í NV-kjördæmi virðist hafa hundsað lög. Gerst brotlegir við kosningalög. Slíkt getur Alþingi Íslendinga ekki samþykkt. Dómsmálaráðuneytið á heldur ekki að sætta sig við lögbrot í tengslum við kosningar í landinu.

Nú þegar vitað er að vafamál gætu komið upp, þá vanda menn sig betur við undirbúning.


mbl.is Vafamál gætu risið við uppkosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klámáhrof drengja

hefur verið til umræðu á undanförnum árum. Vissulega eitthvað sem þarft er að taka á.

Hins vegar ef við fylgjumst með blöðum landsins, á netinu, má sjá hvers konar klámvæðingu. Á Dv í dag eru konur í alls konar klámfengum stellingum. Í því samhengi er bent á Instagram. Ógeðfelldar klámmyndir.

Rætt um þrjá saman og fleiri í kynlífi, sem virðist daglegt brauð í fjölmiðlum landsins. Mært eins og ekkert sé betra.

Auðvitað hefur þetta eitt og sér ekki áhrif, en skilaboðin sem við sendum unga fólkinu, drengjum, með þessum myndum og eilífri umfjöllun um kynlíf, því fleiri því betra hefur sitt að segja. Því meiri hagnaður að kynferðislegum athöfum því betra. Taka upp og selja. Dropinn holar steininn.

Sakna að Öfgar láti ekki til sín taka þarna sem og kynjafræðingurinn Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og aðrir henni líkir. Stígamót o,fl. af sama sauðahúsi.


Nóg er af draslinu samt

þó ákveðnar vörur vanti. Held það landinn hafi gott af því að fá ekki allt sem hann langar í á þeirri stundu sem hann langar í það.

Við þurfum að endurskilgreina hugtakið ,,vöruskortur" upp að nýju. Kalla það ekki skort þó vöruna vanti í einhvern tímann hjá ákveðnum aðila, hann fæst þá hjá öðrum. 

Við erum svo góðu vön.


mbl.is „Sjáum fram á áframhaldandi erfiðleika“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur hafa völdin segir hin danska

Heidi Asbjørn Freke sem fór í viðtal á BT.

Fjölmiðillinn vildi heyra viðhorf hennar til jafnréttis kynjanna.

Danskar konur hafa völdin!

Blaðmaðurinn bar upp mjög afmarkaða spurningu, sem Heidi vildi tjá sig um og gerði á snjáldursíðu sinni. Spurningin var ,,Telur þú ekki að valdahlutföll kynjanna sé vandi í Danmörku nú þegar karlmenn hafa völdin?“

Svar mitt var nokkur veginn á þá leið, ,,Halló nei.“

Danskar konur hafa völdin!

Hvar hafa þær ekki völd?

Við getum einhliða eignast börn, bæði sem við borgum fyrir og ríkið niðurgreiðir.

Við tröllríðum háskólunum, erum sjálfstæðar og sjáum um okkur sjálfar.

Við erum með stórt og mikið félagslegt net og notum tilfinningar til að skapa sambönd innan- sem utanlands og vináttu.

Við erum heilbrigðar, þjálfum, þróum okkur og eigum yndislegt líf sem sólómæður og einar.

Dönskum konum finnst fínt að lifa án karlmanna, við höfum ekki annað not af þeim en sem sæðisgjafa i huglægu lífi.

Verðum við graðar finnum við víbratorinn fram eða hittum karlmann sem fer með okkur í rússíbanaferð.

Við konur náum alltaf í karl!

Það er alltaf einhver kjáni sem vill skaka með konu burtséð frá útliti okkar, þar eru menn ekki eins heppnir.

Ljótur maður er sjaldan heppinn og er meira utanvelta en ljót kona.

Alveg sama hvernig ég velti hverjum steini þá eru danskar konur með öll völd og fæstir uppgötva það.

Vald er stjórntæki fyrir eigið líf og það höfum við. Á mun fleiri sviðum en danskir menn.

Danskir karlmenn eru frekar einmanna en konur.

Það eru líka karlmenn sem verða síður foreldri.

Konur sjá ekki þá staðreynd að við getum fjölfaldað okkur án þess að stunda kynlíf. Þannig höfum við öll völdin!

Við þurfum ekki allt þetta röfl, með pabba sem vill réttindi!

Við höfum meira að segja pólitískt bakland í gegnum kynjakvóta og styrki til styrkja stöðu okkar í gegnum ríkiskassann.

Sólómamma hefur alla heimsins styrki.

Svo sitja menn í toppstöðum. Mjá, þeir eru þar sennilega vegna þess að færri eignast fjölskyldur, þegar konur hafa svo mikið að gera við að fróa sér sjálfar.

Eeeeen kynjakvótarnir koma öllu vanhæfu konunum inn, frekar en að vinna sig upp í stöðu með færni, tíma og án barneignaorlofs. Bátnum verður sennilega ruggað- svolítið eins og við sjáum hjá þeim róttæku.

Svo hvar hafa karlmenn völdin?

Og hvar í andskotanum vilja konur fá meiri völd?

Þýðing er höfundar.

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband