4.2.2024 | 11:00
Nú er í auknum mæli hægt að kalla WHO Woke Health Organization
Deild WHO (Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunni) sem hefur með Dei (Diversity, Equity, Inclusion) að gera býr til nýjar leiðbeingar. Þar er lögð áherslu á fimm þætti: framboð á kynstaðfestandi meðferð, þar með talin hormón; menntun og þjálfun heilbrigðisstarfsmanna til að veita meðferð án aðgreiningar vegna kyns, að veita trans og kynfjölbreyttu fólki heilbrigðisþjónustu sem hefur orðið fyrir ofbeldi í mannlegum samskiptum út frá þörfum sínum; heilbrigðisstefnur sem styðja við meðferð án aðgreiningar kyns og lagalega viðurkenningu á sjálfsákvarðaðri kynvitund. Þetta skrifar líffræðingurinn Kåre Fog á snjáldursíðuna Kønsdebat.
Áhersla þeirra er aðallega á ,,kynstaðfestandi meðferð" (það er í reynd kynbreytandi meðferð) með hormónum og skurðaðgerðum. Leiðbeiningarnar munu hafa áhrif á lækna og hjúkrunarfræðinga o.fl. um allan heim.
Ég vek sérstaka athygli á því að í leiðbeiningum WHO, segir Kåre, verður því haldið fram að löggjöfin eigi að viðurkenna sjálfákvarðaða kynvitund. Þetta þýðir að það verður að vera bundið í lög að öllum sé frjálst að skilgreina hvaða kyni hann eða hún tilheyrir. Að mínu mati er þetta brjálæði segir á síðunni.
Það er nú í auknum mæli hægt að kalla WHO Woke Health Organization segir á síðunni Kønsdebat.
Í þessari grein segir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) eigi undir högg að sækja fyrir að velja hóp trans aðgerðasinna til að þróa fyrstu alþjóðlegu leiðarvísi sinn um ,,kynstaðfesta umönnun." Aðaláhyggjunefnið er tilnefning einstaklings sem vill stöðva kynþroska barna með tilheyrandi afleiðinum. Florence Ashley, kanadískur ,,transfemíninskur, fræðimaður og drusla" sem hefur talað fyrir ,,takmarkalausum félagslegum umskiptum" ásamt ,,greiðum aðgangi að kynþroskablokkandi lyfjum" sem á að vera ,,sjálfgefinn valkostur" innan heilbrigðiskerfa.
Það vita það allir sem vilja að kynþroskablokkarar gelda börn. Með vali um slíka geldingu vegna andlegra veikinda verða samfélögin veik, sérstaklega þau sem hampa þessu. Samfélög múslíma og Íslamista sem hafna svona aðgerðum mun fjölga sér nái þessi stefna fram að ganga. Tímabært fyrir Íslendinga að skella í lás þegar kemur að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Redduxx skrifaði um málið.
Reddux hefur skrifað um sama efni:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2024 | 12:10
Karlar sem gefa sig út fyrir að vera konur
Trans-konur eru ekki konur. Góð vísa er aldrei of oft kveðin í þeim efnum. Þeir eru ákveðin tegund af karlmanni. Fæddir með xy- litninga, typpi og pung. Litningunum er ekki hægt að breyta en vissulega má fjarlægja ytri líffræði. Innri líffærin breytast ekki.
Redduxx heldur úti snjáldursíðu þar sem upplýst er um þessa ákveðnu tegund karlmanna. Margt fróðlegt má lesa þar.
Trans-aðgerðasinni á Nýja Sjálandi, sem hefur mjög áberandi í baráttu sinni fyrir að karlmenn sem upplifa sig sem konu fái aðgang að kvenna íþróttum og einkarýmum þeirra varð uppvís af að dreifa óviðeigandi myndum og sumar þeirra af börnum. Hann segist vera lesbía. Já öllu má nafn gefa. Sjá hér.
Trans-kona sem er karlmaður og barnaníðingur var aftur dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Hann notar nafnið Abigail Wallar og í réttinum var persónufornafnið ,,hún notuð um hann. Árið 2021, meðan hann var í fangelsi, byrjaði Waller að skilgreina sig sem ,,konu" og nota nafnið Abigail eða "Abi". Hann krafðist þess að starfsfólk fangelsisins vísaði til hans með því að nota ,,hún" fornafnið.
Konur eiga að spyrja sig, sættum við okkur við það að karlmenn geti misnotað kyn okkar svona heiftarlega. Er ekki tímabært að konur rísi upp og mótmæli þessari tegund karlmanna sem þykjast vera eins og við, konur! Sjá hér.
Hér má lesa dæmi frá Skotlandi þar sem trans-kona er yfirmaður kvennaathvarfs og vildi reka hvern þann sem aðhylltist ekki trans-hugmyndafræðinni sagði vitni fyrir dómstólum.
Kvennaathvörf eru nú í hættu en J.K. Rowling hefur bent á þessa hættu. Fyrir vikið uppskar hún skítkast, vægt til orða tekið.
Kanada, trans-kona, kynferðisafbrotamaður, barnaklám og langvarandi löngun til barna. Sjá hér.
Er veröldin ekki dásamleg þegar karlmenn geta breytt skilgreiningu á konu sér í hag. Samfélögin þurfa að vakna og breyta lögum um kynrænt sjálfræði. Ákvörðun ríkja að setja þessi lög hefur kostað börn og konur mikið.
Það er ekkert litróf konu til. Annað tveggja ertu fædd kona eða ekki. Háhælaðir skór, farði eða kvenleg föt gerir menn ekki að konu!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.2.2024 | 11:07
Múslímar taka stórt skref í átt að meiri völdum í Evrópu, flokkur Erdogan er í fæðingu í Þýskalandi
Hann vill meiri völd í Þýskalandi og nú er flokkur hans í fæðingu. Þannig hljómar fyrirsögn í þýska blaðinu BILD.
Í dag búa 2.5 milljónir múslíma í Þýskalandi með vegabréf og kosningarétt. Sú tala getur tvöfaldast í apríl þegar ný lög um ríkisborgararétt verða samþykkt. Það þýðir, að það munu vera um fimm miljónir múslíma með vegabréf og kosningarétt. Margir af þeim Tyrkir segir í BILD:
Þau atkvæði vill íslamski forsetinn Erdogan gjarna setja fingurna í. Það gæti hann mögulega fengið við valið á Evrópusambands-þinginu þann 9. júní. Hann vinnur að því að fá tyrkneskt stjórnmálaafl til að bjóða sig fram í Þýskalandi.
Það er tyrkneska aflið DAVA sem býður fram á þingi Evrópusambandsins 9, júní. Tyrkneski forsetinn Erdogan sendir eigið stjórnmálaafl sem hann kalla ,,DAVA á hlaupabrautin fyrir valið á Evrópuþinginu. Það skrifar þýska blaðið BILD.
Dagblaðið Bild kynnir fjóra frambjóðendur stjórnmálaaflsins
Mustafa Yoldas (53) læknir í Hamborg hefur verið gagnrýndur af innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna fyrir að ,,styðja Hamas og tengd samtök." Hann stýrði Alþjóðlegu mannúðarsamtökunum þar til þau voru bönnuð árið 2010.
Læknirinn Ali Ihsan Ünlü kemur frá Bad Eilsen (Neðra-Saxlandi). Hann er embættismaður tyrknesku samtakanna DITIB sem fellur undir stjórn trúarmála forsætisnefndar ríkisins sem heyrir beint undir Erdogan.
Fatih Zingal (42) er lögfræðingur frá Solingen. Vegna reiði sinnar gagnvart Thilo Sarrazin (Þýskaland afnemur sjálft sig), hann yfirgaf SPD árið 2000 og gerðist aðgerðasinni fyrir þrýstihóp AKP í Evrópu. Hann efast um þjóðarmorð á Armenum og leggur PKK og Gülen hreyfingunni lið.
Sjálfskipaði mannréttindafrömuðurinn Teyfik Özcan (42) er nýskipaður flokksleiðtogi ,,DAVA." Hann er einnig fyrrverandi meðlimur SPD og er nú í góðum tengslum við Erdogan. Hann sagði BamS að kosningabaráttan yrði fjármögnuð ,,alfarið með félagsgjöldum og styrktaraðilum frá Þýskalandi."
Borgaralegi flokkurinn CDU varar við
Meðlimir ,,DAVA" laða kjósendur að stjórnmálaaflinu með einföldum slagorðum eins og að innflytjendum sé mismunað og að landamærin verði opnuð fyrir innflytjendum
Christoph de Vries (49) hjá CDU sér skýra stefnu hjá flokki Erdogans: ,,að sýna múslima sem fórnarlömb kynþáttahaturs meirihlutasamfélags og að þeir starfi sem fulltrúar til að gæta hagsmuna þeirra.
Sambandsstjórnin ætti ,,ekki undir neinum kringumstæðum að taka þessari flokksmyndun létt," ráðleggur de Vries.
Fyrrverandi ráðherra í borgaraflokknum CDU Jens Spahn aðvarar líka við þessu á samfélagsmiðlinum X. ,,Erdogan-AKP afsprengi í Þýskalandi yrði annar öfgafullur flokkur í landinu."
Jens Spahn vill stöðva útvíkkun laganna um ríkisborgararétt. Að auki verður að stöðva erlenda fjármögnun fyrir moskur í landinu. Ef þetta gerist ekki þá munu áhrif róttækra afla aukast, skrifar hann.
Pia Kærsgaard, stjórnmálamaður í Danaveldi, hefur varað við fjölgun múslínum. Hér segir hún að Danmörk sé óþekkjanleg. Þróunin í löndunum sem stoppa ekki innrás múslíma til Vesturlanda.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2024 | 14:14
Danmörk þarf ekki að taka við mæðrum frá kúrdískum fangabúðum- þær eru ekki danskar
Eystri Landsréttur staðfesti þetta í vikunni og samsinnir Utanríkisráðuneytinu um málið. Danmörk er ekki skyldug til að taka við konum sem eru ekki með danskan ríkisborgarrétt úr fangabúðum, bara börnum þeirra. Takið eftir bara ef börnin þeirra eru með danskan ríkisborgarrétt.
Málið snýst um tvær mæður með þrjú börn sem voru í kúrdisku al-Roj fangabúðunum í norðvestur hluta Sýrlands.
Voru sviptar ríkisborgararéttinum
Áður en konurnar fóru til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamskt ríki voru þær með danskan ríkisborgararétt og frá heimalöndum sínum Marokkó og Sómalíu. Af sömu ástæðu brýtur það ekki í bága við samninginn um ríkisfangslausa að svipta þær ríkisborgarrétti sínum í Danmörku vegna fylgis við Íslamska ríkið.
Hafa boðist til að taka börnin
Utanríkisráðuneytið hefur frá því í maí 2021 boðist til að flytja börnin á brott með mæðrum síðan en aðeins ef þær eru danskir ríkisborgarar. Frá því í maí 2021 hefur utanríkisráðuneytið boðið að dönsku börnin í flóttamannabúðunum í Sýrlandi verði flutt á brott ásamt mæðrum sínum en aðeins ef mæðurnar eru danskir ríkisborgarar og án mæðranna ef þær eru ekki danskir ríkisborgarar.
Eins og þú veist er Danmörk aðeins skuldbundin eigin ríkisborgurum.
Tvö af börnunum eru komin til Danmerkur
Málið snerist upphaflega um brottflutning þriggja danskra barna og mæðra þeirra sem eru ekki danskir ríkisborgarar.
Málið var höfðað gegn Utanríkisráðuneytinu af samtökunum ,,Senda börnin heim (Foreningen Repatriate The Children) í Danmörku. Áður en Hæstiréttur kvað upp úrskurð voru tvö af börnunum og marokkósk móðir þeirra flutt til Danmerkur vegna þrýstings frá stjórnmálamönnum.
Þau lentu á flugvellinum í Kaupmannahöfn 22. júní í fyrra þar sem móðirin var handtekin og fangelsuð fyrir að hafa aðstoðað og hjálpað hryðjuverkasamtökum.
Sómalíska konan
Þetta mál varðar sómalísku konuna. Hún neitar að bjarga barni sínu úr fangabúðunum nema hún fái að koma með. Nauðungarflutningur, sem væri réttlætanlegur, er ekki möguleiki vegna löggjafar á svæði Kúrda. Sómalska konan var með dómi svipt dönskum ríkisborgararétti sem kveðinn var upp vorið 2023. Dómnum um danskan ríkisborgararétt hefur verið áfrýjað til Eystri Landsréttar sem hefur ekki afgreitt málið.
Hér má lesa dóminn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2024 | 14:05
Lögreglan tekur svona símtal alvarlega ef lögin ná fram að ganga
Í nánustu framtíð kemur 11 ára strákur heim og segist vera stelpa. Hann klæðir sig til að fara út með vinum sínum í bólstraðan brjóstahaldara, örpils og vel farðaður. Þegar foreldrar hans segja honum að hann geti ekki farið svona út segir hann að þetta sé hans leið til að tjá kynvitund sína og hótar að hringja í lögregluna.
Í heilbrigðu landi myndi ekkert meira gerast, fyrir utan kannski stutt skapofsakast. Ef drengurinn býr hins vegar í Skotlandi, ef nýjar tillögur verða samþykktar, gæti sagan einn daginn endað allt öðruvísi.
Í Skotlandi tekur lögreglan símtalið alvarlega. Þegar löggan kemur að húsinu eru foreldrarnir handteknir og hótað allt að sjö ára fangelsi fyrir að staðfesta ekki kynvitund barnsins.
Þetta hljómar fáránlega, en Skoski þjóðarflokkurinn virðist vinna hörðum höndum að þetta verði veruleika. Flokkurinn hefur lagt til ný lög sem gætu gert refsingu foreldra að lögum fyrir að neita að staðfesta barn sitt trans í einu og öllu.
Meðal aðgerða sem gætu verið refsiverðar er að koma í veg fyrir að einhver ,,klæði sig þannig að það endurspegli kynhneigð eða kynvitund" jafnvel þótt sú ákvörðun yrði tekin af foreldri sem reynir að vernda barn sitt gegn kynjahugmyndafræðinni.
Þessi viðurstyggilegu lög eru búin til í nafni þess að stöðva ,,umbreytingarmeðferð", þó hún sé ekkert í þá veru. Ég ætti að þekkja muninn segir Jane Rober. Árið 2014 þegar Jane rannsakaði bók um menningu lesbía og homma fór hún í dulargervi til kristins trúarmeðferðarfræðings í Bandaríkjunum.
Í vikunni sem fylgdi í kjölfarið var Jane sagt að hún væri brotin, ill og óelskuleg þrátt fyrir ahafa tileinkað sér falska persónu. Ástríkt foreldri, sem hefur áhyggjur af áhrifum kynjahugmyndafræðinnar og er umhugað um velferð barnsins síns er allt annað mál.
Þegar öllu er á botninn hvolft hafa þeir góða ástæðu til að hafa áhyggjur. Síðastliðinn áratug hefur fjöldi barna sem segjast vera trans aukist gífurlega og fjöldi þeirra sem leita á kynjastofur.
Staðreyndirnar eru átakanlegar.
Hátt hlutfall barna sem sækja í kynjabreytingu er með einhverfu; Kynþroskablokkar leiða næstum alltaf unga manneskju á óafturkræf krosskynhormón þegar þau ná 18 ára aldri. Oft er litið framhjá alvarlegum geðheilbrigðisvandamálum og áföllum sem barnið glímir við í þágu þess að staðfesta (merkja) þau sem trans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margir af þeim sem hafa sótt um ,,kynskiptimeðferð á meðferðarstofunni Nasjonal, en þeir finna fyrir ónotum í eigin líkama, hófu meðferð utan þjónustunar sem ríkið veitir. Ákafir meðferðaraðilar í einkageiranum standa í röðum eftir að gefa unglingsstúlkum hormóna og hormónablokkandi lyf vegna upplifun þeirra á ónotum í eigin líkama.
Tökum dæmi um tilbúna sjúklinga. ,,Erik er 16 ára þegar hann kom á sjúkrahúsið í síðustu viku með skeggstubba á hökunni og dimma rödd, hrjúfa rödd, þrátt fyrir að hafa fæðst með eggjastokka og leg. Meðferðina hóf stofa sem hefur lág viðmið og býður unglingum meðferð sem upplifa að þeir séu ,,fæddir í röngu kyni.
,,Casper, er 12 ára og mætti í fyrsta viðtalið með sprautumerki á maganum eftir að hafa fengið, í langan tíma, mánaðarlega sprautur af hormónastoppandi lyfjum uppáskrifað af norskum kynfræðingi. Nú hefur mamma ekki lengur efni á þessari dýru meðferð og því sækir hann til stofnunarinnar Nasjonale til að fá löglegan lyfseðil.
Sprenging í fjölda
Þetta er staðreynd: Undanfarin á hefur orðið sprenging í fjölda þeirra barna og unglinga sem óska eftir kynstaðfestingu. Sömu sögu er að segja um allan heim. Á síðasta ári (2021) óskuð um 200 börn undir 18 ára aldri aðstoðar. Aukningin er mörg hundruð prósent á hverju ári frá 2012.
Nýtt, tveir af hverjum þremur eru líffræðilegar stúlkur
Við erum að tala um unglingsstúlkur sem nokkrum árum eftir kynþroskann segjast allt í einu vera strákur. Tvær af hverjum þremur hafa að auki glímt við andlega kvilla, alvarlegt þunglyndi, kvíða, sjálfsskaða, áföll, einhverfu, ofskynjanir og hugsanir að taka eigið líf.
Er þetta skammvinn löngun?
Við vitum ekki af hverju þessi aukning er meðal stúlknanna. Það getur verð viðbragð við opnari umræðum sem sýr að kyni í samfélaginu. Eða er þetta viðbragð á utanaðkomandi álagi eða kannski tímabundið val? Um víða veröld ræða menn um þessa gífurlegu fjölgun af stúlkum sem vilja hjálp eftir kynþroskann. Umræðan kallar á varkárni en það hefur engin urmæða til staðar í Noregi.
Til lengri tíma litið er ekki vitað hve margir af unglingunum munu upplifa viðvarandi reynslu af að vera hitt kynið.
Í bland við aðra andlega sjúkdóma
Fjölmiðlar og þáttaröðun ,,Fæddur í röngum líkama hafa á undaförnum árum fjallað um að vera trans frá barnæsku. Flestum gengur vel. Það eru þessi börn, þegar þau eldast, sem rannsóknir beinast að. Þau upplifa góð áhrif af meðferðinni sem er til og er sniðin að þessum hópi.
Aftur á móti er lítil þekking á unglingum sem upplifa misræmi milli sjálfsmyndar og kyns eftir að kynþroskinn er hafinn. Hvetja á til varúðar með þessa einstaklinga þar sem þekking er lítil sem engin og oftar en ekki eru aðrir geðrænir kvillar undir. Ekki er vitað hve mörg ungmennin munu upplifa viðvarandi reynslu af að vera hitt kynið. Frekari rannsóknir eru því nauðsynlegt.
Þróunin veldur áhyggjum
Við sem vinnum á Nasjonale meðferðarstofnuninni eru upptekin af að veita góða meðferð með alþjóðlegri þekkingu. Við höldum okkur við rannsóknir og veitum meðhöndlun til þeirra sem rannsóknir sýna að hafa gagn af meðferð. Samhliða berum við mikla ábyrgð á að sýna varúð þegar upp kemur nýr hópur unglinga sem vill meðhöndlun.
Við erum því verulega áhyggjufull af þeim vaxandi hópi kynfræðinga og öðrum meðferðaraðilum sem eru utan Nasjonale meðferðarþjónustunnar í landinu og byrja meðhöndlun með litlar sem engar kröfur.
Þeir reka virk fyrirtæki sem þrýstihópur
Þeir segjast taka mið af óskum og þörfum unglinganna og vilja með þeim prófa hver sé besta meðferðin fyrir þennan einstakling. Sem dæmi hormónar, líka til barna undir 16 ára aldri, og hormónablokkandi lyf eiga aðeins sérfræðingar í innkirtlafræðum fyrir börn að gefa. Þeir reka fyrirtæki og eru í leið virkur þrýstihópur á stjórnmálmenn. Sagan segir að þeir hafa tengsl sig inn í Fri-ungmennahópinn (systursamtök Samtaka 78), en sá hópur er viðkvæmur og á að mæta með virðingu. En, samtímis og einmitt af því við höfum með viðkvæman hóp að gera verður erfitt að fá áheyrn og stuðning með hversu nauðsynlegt það er að fara varlega.
Ráðherra, það er engar rannsóknir
Heilbrigðisráðherra Bent Høie sagði við norska ríkissjónvarpið árið 2015 ,,Það er frábært að þú sér sá sem þú ert. Það ætti að vera í höndum hvers og eins, ekki ríkisins, að ákveða hvaða kyni þeir tilheyra. En Bent, það finnast engar rannsóknir á þessum nýja hópi af unglingsstúlkum sem vilja skipta um kyn. Við getum gengið svo langt að segja að hér sé um tilraunameðferðir að ræða.
Þegar þessir unglingar í dag, þrátt fyrir Nasjonal meðferðarþjónustuna, eru elt af meðhöndlunaróðum kynfræðingum og þeim boðin hormónameðferð þrátt fyrir ólöglega aldur, samkvæmt heilbrigðislögum, er nauðsynlegt að vara við þessi meðferðartilboði.
Áhugasamir kynfræðingar
Sumir sjúklingar þurfa meðferð fljótt. Það er óhjákvæmilegt. En miðað við þá gífurlegu aukningu sem við sjáum í dag er krafan að við fagfólkið, með alþjóðlegum kollegum, notum góðar aðferðir til að meta hvort meðferð til lengri tíma litið virkar. Ekki blanda sama góðvild minnihlutahópa og faglegri baráttu.
Kæri ráðherra; Haltu í taumana á meðferðarglöðum kynfræðingum, þeir dreifa hárvexti og djúpri rödd til dætra þjóðarinnar, á móti fáum við glataða frjósemi og óvissa framtíð.
Til að mæta þeirri sprengingu sem hefur orðið meðal unga fólksins, að gera tilraunir með eigið kyn, ætti að mæta með þjóðarvígbúnaði í öllu til að tryggja gæði í greiningu en ekki staðfestingarþjónustu frá kynfræðingum landsins.
Höfundar greinarinnar eru læknarnir; Anne Wæhre og Kim Alexander Tønseth, báðir starfandi í Noregi. Þýðing er bloggara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2024 | 08:42
Múslímskur læknir stóð fyrir herferð gegn gyðingum í frítíma sínum- yfirvöld fengu nóg
Wahid Asif Shaida hefur starfað sem læknir í Harrow í Bretlandi í 20 ár.
Í október fór illa. Hann var afhjúpaður undir nafninu Abdul Wahid sem leiðtogi í bókstafstrúarsamtökunum Hizb ut Tahrir í Bretlandi. Í gegnum samtökin stuðlaði hann að andúð í garð gyðinga og viðhorfum gegn þeim.
Í mótmælum hefur hann fagnað að hryðjuverkum Hamas sem drap 1400 gyðinga, menn, konur og börn þann 7. október. Hann hefur líka tekið þátt í að hvetja til ,,jihad í mótmælunum.
Sjúklingar hans eru í áfalli og höfðu ekki hugmynd um að læknirinn þeirra lifði tvöföldu lífi en hann er vel máli farið og er menntaður læknir úr einkaskóla, segir DailyMail.
Samtökin Hizb-ut-Tahrir
Samtökin vöktu gremju því félagsmenn stóðu og hrópuðu ,,jihad í mótmælunum fyrir framan egypska og tyrkneska sendiráðin í London og hvöttu ,,múslíma heri til að ráðast á Ísrael.
Samkvæmt blaðinu sagði Wahid við mótmælin ,,Sigurinn er á leiðinni og allir eiga að taka afstöðu. Hvoru megin ert þú?
Eftir mótmælin fór Wahid aftur til vinnu á heilsugæslunnu þar sem hann vinnur, það olli áhyggjum hjá hluta sjúklinga hans.
En þetta er yfirstaðið. Wahid Asif Shaida var rekinn úr vinnu. Búið er að banna samtökin Hizb ut-Tahrir er í Bretlandi. En af hverju voru bresk stjórnvöld svona lengi um að taka ákvörðunina? Svarið er sennilega: Stjórnvöld í Bretlandi skríða fyrir rótækum múslímum af hræðslu við að vera sakaðir um ,,fóbíu fyrir íslam.
Hizb ut-Tahrir er ekki bannað í Danmörku.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2024 | 10:15
Styðja kennarar hryðjuverk Hamas í Ísrael
í gegnum ályktun Kennarasambands Íslands og annarra launþegahreyfinga? Segja má að stéttarfélög og regnhlífasamtök séu komin LANGT úr fyrir verksvið sitt þegar þeir senda svona ályktun í nafni félagsmanna um pólitískt málefni. Innan samtaka eins og KÍ eiga allar skoðanir að rúmast, trúarbrögð og ólík afstaða til pólitískra málefna.
Engin ályktun kom þegar hryðjuverkasamtökin HAMAS réðist á Ísrael og myrti þar með köldu blóði, konur, karla og börn, 1400 manns. ENGIN! Hverju sætir það. Get ekki túlkað það öðruvísi en að KÍ samþykki það blóðbað sem má lesa um hér. Engin álykt kemur vegna árása Húta á skip í Rauða hafinu. Engin ályktun kom þegar Hútar stráfelldu fólk í Jemen vegna stjórnmálalegra átaka, o.s.frv. KÍ velur sér gæluverkefni.
Bloggari frábiður sér, sem félagi í Félagi grunnskólakennara og þar með KÍ, svona ályktanir og málflutning. Haldið ykkur við það sem þið eigið að gera. Hef heyrt í mörgum kennurum sem eru sama sinnis, stéttarfélag á ekki að ganga erinda aðgerðasinna eða stjórnmálamanna.
Þeir Palestínumenn sem héngu á Austurvelli sýndu það og sönnuðu að þeir hyggjast ekki breyta sér, gyðingar réttdræpir og það styðja kennarasamtökin. Hatrið í garð gyðinga fer ekki fram hjá neinum. Kennarasamband íslands hefur stillt sér upp með þeim málflutning, annað er ekki hægt að lesa út úr ályktuninni sem sambandið lét frá sér fara.
Víða um heim sæta gyðingar ofsóknum vegna stríðsins, múslímar og Palestínumenn eru þar að verki. Hér er dæmi, tekið út þessu bloggi: ,, Mótmælendur voru með palestínska fána og slagorð. Þeir voru á svæði þar sem aðallega Gyðingar búa. Í stað þess að færa mótmælin á annan stað gerði lögreglan hið gagnstæða og gaf út yfirlýsingu ,,Með tilliti við almanna reglu verður Avenue Road Bridge lokuð. Aðgangur að svæðinu verður opinn í gegnum Highway 401. Lögreglan er á staðnum til að hindra aðgang og tryggja öryggi mótmælenda og umferðarinnar.
Ekki nóg með það: vingjarnleg framkoma lögreglunnar sýndi að það eru engin takmörk á góðmennsku lögreglunnar sem sótti kaffi fyrir mótmælendur, sem stuðlaði að enn meiri ótta og óöryggi gyðinga í hverfinu. Augljóst er á staðsetning mótmælanna er ógn við gyðinga. Tímasetningin er líka ógn sem er laugardagur og hátíð gyðinga fór ekki fram hjá neinum. Múslímskt spakmæli segir að eftir laugardaginn komi sunnudagur sem vísar í eyðingu Gyðinga fyrst og síðan kristinna.
Hafi formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson áhuga á pólitískri þátttöku á hann að vera annars staðar en í formannstól KÍ. Sama með hina formennina sem sitja í stjórn KÍ og lögðu blessun sína yfir þessa pólitísku afgreiðslu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2024 | 09:48
Slagorðið ,,Frjáls Palestína" eyðum Ísrael af landakortinu!
Þetta átti að vera falleg og hátíðarleg guðsþjónusta fyrir nýja konungsparið í Danmörku, en var misnotuð fyrir pólitískan áróður fyrir Palestínu.
Nýja konungsparið í Danmörku, Friðrik konungur og Mary drottning, var fagnað s.l. sunnudag með hátíðarguðsþjónustu í dómkirkjunni í Árósum. Það var allt í samræmi við hefðirnar sem Danir þekkja. Margir hlökkuð til athafnarinnar með konungshjónin í aðalhlutverki.
En því miður var svartur blettur settur á athöfnina.
Athöfnin var ekki aðeins til heiðurs konungshjónunum heldur líka þeim grunngildum sem danskt samfélag og danska konungsfjölskyldan byggir á.
Tveimur imams (maður sem leiðir guðþjónustu í mosku) var boðin þátttaka. Sennilega gert vegna hugmynda konungshjónanna eða annarra skipuleggjenda um að viðburðurinn ætti að vera merki um hreinskilni og fjölbreytileika.
Séð með augum stjórnmálanna virðist rétt að bjóða þeim, en það er ekki sérstaklega augljóst af hverju múslímskum imamum ætti að vera boðið til athafnar fyrir dönsku konungshjónin. Þessi góði ásetningur um hreinskilni og fjölbreytileika skilaði vægast sagt ekki góðum gjörningi og alls ekki í samræmi við danska hefð.
Á mynd hér neðar má sjá imans frá þessari hátíðlegu stund. Hann misnotaði hátíðlegan atburð til að flytja áróður í formi skilaboða, sérstaklega flutt af íslömskum hópum, sem vilja þurrka Ísrael af landakortinu. Þessi maður heitir Siad Dahir Ali var með trefil sem á stóð ,,Frjáls Palestína.
Boðskapurinn er almennt slagorð meðal múslíma sem eru andvígir Ísraelum í Mið-austurlöndum. Sérstaklega núna þegar ástandið er svona. Slagorðið ,,Frjáls Palestína, er víðfeðmt en segir samt hvaða pólitísku kröfur maður sendir.
Fyrir hvern þann sem fylgist með þróuninni í Mið-austurlöndum er enginn í vafa um hvað boðskapurinn þýðir. Í athöfninni misnotaði múslímskur gestur hana fyrir áróður í pólitísku máli sem er mjög umdeilt.
Útrýma á Ísraela frá landakortinu
,,Frjáls Palestína er sami boðskaður og ,,Frá ánni til sjávar. Það þýðir að útrýma eigi Ísrael frá landakortinu.
Textinn á tefli imamens tók afstöðu með pólitísku afli sem vinnur fyrir múslímsk öfl og átakanna við Ísrael. Maður ætti frekar að segja: Hvernig dettur honum í hug að ræna fallegri danskri athöfn til að sýna þessa pólitísku afstöðu?
Jim Lyngvis er einn þeirra sem sá misnotkun mannsins. Hann vakti athygli á því að imamen söng heldur ekki með í þeim sálmum sem sungnir voru við hátíðar guðþjónustuna þar sem hann var gestur. Það hefði hann átt að gera eins og allir aðrir. Virðingavottur við konungshjónin.
Danir létu í sér heyra á samfélagsmiðlum um málið, allt í sömu átt. Við skrifum þetta sem fólk sem hefur miklar áhyggjur af því hvernig eigi að koma á friði í Miðausturlöndum. Við höfum tekið þátt í pólitískum umræðum um málið. Okkur finnst það algjörlega óviðeigandi að fulltrúi róttækra íslam ræni hátíðarathöfn fyrir dönsku konungshjónin í pólitískum tilgangi.
Skipuleggjendur hefðu átt að átta sig á vandanum. Þetta var viðburður þar sem menn áttu að tryggja að svona pólitísk misnotkun í þágu Palestínu geti ekki átt sér stað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2024 | 07:35
Orðsending til kennara, á við marga innan þeirra stéttar.
KALDLYNDI Í BOÐI VÓKISMANS
Síðustu árin hef ég fylgst grannt með starfi í skólum á Íslandi og víst hef ég skrifað margt um skólamál. Nokkrir starfsmenn skóla hafa bókstaflega sagt mér samskiptasögur og rauði þráðurinn í þeim sögum er ekki sú fegurð sem ætla mætti að skólastarfið státaði af. Menn hafa sagt mér sögur af slaufun og hreinni útskúfun þeirra sem ekki falla inn í tiltekinn ramma. Nýlegustu dæmin eru verri en ég gat gert ráð fyrir. Sum dæmin eru þess eðlis að sem foreldri myndi ég helst ekki vilja hafa börn mín í skólum á Íslandi. Ég hreinlega vorkenni kennarastéttinni eins og hún leggur sig. Þar líðst það að setja samstarfsfólk til hliðar ef það fer ekki í einu og öllu að pólitískri rétthugsun. Vopnin snúast í höndum þeirra sem hafa tómhyggju rétttrúnaðar að verja og í skjóli vókisma eru kennarar málsvarar og löghlýðnir umbjóðendur þeirra sem til dæmis leggja áherslu á transvæðingu barna. Kennarar sem láta ekki í sér heyra þegar þeir skynja skelfilega þróun eru sekir. Skólayfirvöld sem aðstoða við að skapa óreiðu í hugarheimi barna eru að stunda glæpsamlegt athæfi. Kennarar sem taka þátt í þjónkun við öfugþróunina eru með óbragð í munni þegar þeir loksins þora að tjá sig.
Okkur er sagt að til sé eitthvað sem heitir kynáttunarvandi eða kynami. Þetta ku eiga sér þá rót að ungmenni geti átt erfitt með að velja sér kyn eða átta sig á kyni sínu. Vandinn er oft undirstrikaður með þeim hætti að í boði sé fjöldi kynja. Þessi fjöldi kynja leynist þá í líkama sem einungis getur valið á milli þess að vera karlkyns eða kvenkyns. Hér er skapaður fjölbreytileiki til þess að hægt sé að standa frammi fyrir lúxusvanda að velja sér hið eina rétta kyn.
Í starfsskýrslu Samtakanna ´78 fyrir árið 2009 er kynáttunarvandi eða kynami ekki nefndur sem ástæða fyrir komu ungmenna í ráðgjöf. Nú er svo komið að kynami er daglegt brauð í skólum landsins. Skilgreiningin er að vísu enn á gráu svæði. Okkur ber þó að þakka kynningarstarfi Samtakanna ´78, ríki, borg og skólayfirvöldum allan þann vanda sem núna blasir við. Aldrei hafa fleiri börn verið ráðvillt gagnvart því að ákveða eigið kyn. Þetta er grátbroslegt og engu líkara en kaldhæðni örlaganna sé að sturta yfir okkur ömurlegu myrkri. Áróðurinn er ekki nein tilviljun, þetta er allt útpælt. Þetta er allt skipulögð glæpastarfsemi í boði yfirvalda um leið og siðvit kennara og skólayfirvalda er lagt til hliðar. Allt góða fólkið sem á að vernda börnin, allt góða fólkið sem veit af vandanum, allt þetta góða fólk kýs að þegja þunnu hljóði.
Í dag er svo komið að kynami er ekki skilgreindur sem geðsjúkdómur, kynami er í dag skilgreindur sem auðlind, frábær viðskiptahugmynd og gróðavon fyrir lyfjafyrirtæki, læknamafíur og aðra heilbrigðisstarfsmenn. Þetta er allt hægt vegna þess að kennarar á Íslandi eru svo lánsamir að hafa Samtökin ´78 sem kenna börnum að þau geti valið sér kyn. Þetta fúsk er stutt af kynleysisfræðingum og sjálfskipuðum gúrúum sem eru settir á stall innan stjórnsýslunnar, dyggilega studdir af ríkisreknum málsvörum vókismans. Orðræðu skal breyta í þágu kynleysis, til þess eins að leggja áherslu á hversu erfitt það getur verið að velja sér kyn. Gerum börnin ráðþrota, þau verða hvort eð er ráðþrota þegar þau eldast. Ætlunin er að skapa ótta, gera glundroðann að féþúfu og skjótfengnum gróða.
Hér eru yfirvöld, íslenska ríkið og Reykjavíkurborg í broddi fylkingar líkt og um glæpaklíkur sé að ræða. Þeir sem benda á tilbúinn vandann, þeir sem ekki vilja bjóða hættunni heim, þeir eru settir út í kuldann og látnir dúsa í myrkri. Þeir sem virkilega vilja vernda börnin og segja skilið við áróður sem víðast hvar er rekinn af öflugu peningaveldi, þeir eru stimplaðir sem vont fólk og eru sagðir merkisberar ófögnuðar og öfgahyggju. Þeir hljóta stimplun sem málpípur hatursorðræðu.
Margt fólk sér ljósið í pólitískri rétthugsun þar er þó að finna hið dýpsta myrkur mannsandans.
Í svörtu myrkri margur deyr,
þótt menn það vita kunni
að inn í ljósið leita þeir
sem lifa í blekkingunni.
Kristján Hreinsson skrifaði færsluna á snjáldursíðuna sína. Feitletrun er bloggara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)