31.7.2025 | 07:57
Skömm Íslands- karlmaður sem keppti í kvennaflokki í frisbígolfi
Það hlaut að koma að því, Íslendingar taka þátt í að niðurlægja stúlkur og kvennaíþróttir.
Íþróttasamband Íslands hefur ekki takið af skarið og bannað fæddum karlmönnum að keppa í kvennaflokki. Væri það bann við líði hefði þetta ekki gerst.
Fyrir vikið hirti karlmaður, sem segist kona, efsta sætið í frisbígolfi hér á landi og hafði ekki bara sigur af stelpu heldur ferð á heimsmeistaramótið.
Karlmaðurinn sem skilgreinir sig sem konu, og notar nafnið María Eldey Kristínardóttir komst í fréttirnar erlendis og ég vona að stelpurnar, sem hann hirti sæti af valdi usla. Þetta á ekki að viðgangast. Hann á ekkert annað skilið en missa sæti sitt í réttar hendur, til stúlku.
Konur hafi barist til að verja réttindi kvenna byggð á kyni, rými, tækifærum og íþróttum, á meðan hafa flestir karlar haldið að sér höndum.
Er ekki tímabært ágætu karlmenn að þið hoppið upp á vagninn með konum, eiginkvenna, dætra og kvenfólki í ættinni ykkar vegna.
Ýtið á myndina, hún verður skýrari.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning