28.6.2025 | 09:19
Hugrökk skólabörn
Nemendur við skóla einn skrifuðu lesendabréf sem þeir sendu einnig á rektor sem trúir þeim ekki. Hann neitar að bregðast við eins og lög gera ráð fyrir. Þetta er alvarlegt.
Blaðið setur lesendabréfið á bak við greiðslumúr. Munið að klappa þeim á öxlina. Það kallar á hugrekki að senda svona bréf.
Drengirnir heita Emanuel Aarseth og Simon Tobias Olsen og eru nemendur í Vassenden skólanum í Noregi.
Við sniðgöngum skólann síðustu skóladagana. Af hverju? Af því Vassenden skóli flaggar ,,pride fánanum- sem er ekki hlutlaus gjörningur. Fyrir suma er það tákn viðurkenningar á fjölbreytileika, en upplifun okkar og margra annarra er að við erum útilokuð. Sem kristnir og íhaldssamir nemendur upplifum við að okkur sé vikið til hliðar í skóla sem á að vera fyrir alla.
Rangt að flagga ,,pride fánanum
Við teljum það rangt að opinber skóli sem á að vera hlutlaus gagnvart lífsskoðunum og byggir á kristnum gildum flaggi fyrir ákveðinni pólitískri og hugmyndafræðilegri hreyfingu. ,,Pride snýst ekki aðeins um virðingu fyrir samkynhneigðum og trans-fólki. Það snýst einnig um kynjakenningum, aðgerðasinnum og gildismati sem mörg okkar deila ekki. Þá er einmitt ósanngjarnt að þessi fáni skuli vera á skólahúsinu, án þess að við fáum að mótmæla, án þess að verða stimpluð sem fordómafull eða hatursfull.
Okkur er sagt að fáninn eigi að tákna fjölbreytileikann. En hvers vegna finnst okkur við útskúfuð? Norski fáninn sem sameinar okkur öll er næstum aldrei notaður í skólanum, á meðan ,,pride fáninn fær heilan mánuð.
Þetta snýst ekki um hatur eða fyrirlitningu, við teljum bara að opinber skóli eigi ekki að taka afstöðu í slíkum málum. Börn og ungmenni þurfa öryggi, ekki hugmyndafræðilegan þrýsting og beina nauðung til þátttöku.
Byggður á kristnum gildum
Við vitum vel að norski skólinn var í sínum tíma byggður á kristnum gildum, skólar voru stofnaðir svo að börn gætu lært að lesa Biblíuna. Í dag sjáum við skóla sem virða ekki lengur þessa rætur, heldur öfugt, útskúfar þeim sem halda fast í þær.
Höfundum greinarinnar er refsað með fjarveru frá skóla. Þeir lögðu fram ákveðnar tillögur um hvað skólinn geti gert til að þeir upplifi viðurkenningu í samræmi við kröfur um aðgerðir í menntalögum § 12-4. Við höfum látið vita, að ef skólinn tekur fánann niður komum við aftur í skólann.
Rektor Anne Cecilie er ósammála okkur og telur fánann tilheyra öllum. Þetta er auðvitað ekki satt, og það er áfall að okkur sé ekki trúað - og að rektor fylgi ekki menntlögunum.
Tjáningarfrelsi vikið til hliðar
Við erum stolt af því að vera norsk, en það verður sífellt erfiðara þegar við sjáum að hefðir, trú og tjáningarfrelsi er vikið til hliðar fyrir aðgerðasinna og táknrænar aðgerðir á meðan norski fáninn skemmist í skúffunni.
Þess vegna er það hvatning til allra skóla og stjórnmálamanna: Skilið okkur aftur hlutlausa, örugga og skóla sameiningar skóla þar sem allir nemendur, óháð trú, bakgrunni og gildum, fá raunverulega að finna fyrir því að vera innanborðs.
Við biðjum ekki um að ákveðnir einstaklingar eða samtök stjórni neinu. Við biðjum bara um að skólinn fylgi lögunum og taki upplifun okkar og skoðun á málaflokknum alvarlega.
Með vinsemd
Emanuel Aarseth og Simon Tobias Olsen
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning