Dönskum kennurum er kennd sama lygin og þeim íslensku

Menn eru ekki alveg af baki dottnir í skólakerfinu, hvorki því danska né íslenska. Danskir kennarar geta nú notað myndaband þar sem logið er að skólabörnum. Eitthvað svipað finnst án efa hér á landi líka, í það minnsta á prenti í skólabókum.

Í þessu myndabandi er talað um að hægt sé að breyta líkamanum með hormónum og skurðaðgerðum í þeim tilgangi að ,,skipta um kyn.“ Helber lygi. Það er ekki hægt að breyta um kyn. Hins vegar er hægt að skaða líkama sinni í þeirri tilraun, sem framkvæmd er af læknum, ,,að breyta um kyn.“ Sem sagt, reyna að framkvæma hið ógerlega.

Það er þyngra en tárum taki að fullorðið fólk skuli halda svona lygi að börnum og að opinber skólayfirvöld styðji lygina.  Kyn er óbreytanlegt. Kynvitund er hins vegar alls konar og getur breyst á æviskeiðinu eins og sagt er frá í danska myndabandinu.

Börn eiga forráðamenn, þeir ættu að hafa hag barna fyrir brjósti í þeim ákvörðunum sem þeir taka. Foreldri sem telur að unglingur geti tekið ákvörðun um að skaða líkama sinn fyrir lífstíð er ekki ábyrgt foreldri.

Foreldrar sem vita um lygina sem haldin er að börnum þeirra í skólakerfinu ættu að lögsækja bæði skóla og kennara sem gera það. Óforsvaranlegt að vel menntaðir sérfræðingar ljúgi að börnum.

Minni enn og aftur á dóm Hæstaréttar Bretlands. Þú ert það kyn sem þú fæðist og því verður ekki breytt, hvorki lagalega né með læknisfræðilegum tilraunum á börnum.

480471107_635610169195602_1360717736129875550_n


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband