16.6.2025 | 08:48
Amnesty International lítilsvirðir konur
Reindorf úrskýrir af hverju engin réttindi voru tekin af trans-konum (kvengervlum) þegar úrskurður Hæstaréttar Bretlands var kveðinn upp. Logið að trans-fólki (kyngervlum) allan tímann. Hægt að lesa um það hér.
Hæstiréttur endurheimti réttindi kvenna þeim sem þær höfðu í reynd tapað. Kvengervlar töpuðu engu við úrskurðinn, vegna þess að þeir höfðu aldrei þau réttindi sem þeir sögðust hafa. Ekkert hefur verið tekið frá trans fólki nema röng trú og konur hafa einfaldlega endurheimt það sem þær hefðu átt að hafa allan tímann.
Chiara Capraro, yfirmaður jafnréttismála hjá Amnesty International í Bretlandi, gagnrýndi ummæli Reindorf.
Hún sagði: ,,EHRC ber skylda til að halda uppi réttindum allra, þar á meðal allra með verndaða eiginleika. Við höfum áhyggjur af því að það sé ekki gert og sé óhjálplega að tefla réttindum kvenna og trans fólks upp á móti hvort öðru." Lesið hér, um þetta talar Chiara Capraro ekki.
Amnesty International gefur skít í réttindi kvenna með þessum orðum sínum. Kvenréttindi og það sem hún kallar réttindi trans-fólks fer ekki saman þegar síðarnefndi hópurinn notar kvennaaðstöðu og treður sér inn í íþróttir kvenna. Samtökin hafa misst sjónar á baráttumálum sínum.
Trans-fólk hefur öll þau réttindi sem aðrir hafa í gegnum mannréttindakafla hverra þjóðar. Forréttindi eru þeim hins vegar hugleikinn og vilja sem mest af þeim, eins og að ganga á rétt kvenna.
Það á ekki að styðja Amnesty International á nokkurn hátt, sérstaklega konur, með stuðningi ganga konur á eigin rétt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning