Trans-fólk hafði aldrei þessi réttindi- því var logið að þeim

Akua Reindorf, einn af átta fulltrúum hjá Jafnréttis- og mannréttindaskrifstofunni (EHRC), sagði að trans fólk hefði verið blekkt um réttindi sín og að nú sé tímabært að laga það og viðurkenna rétt kvenna til einkarýma. Trans-fólki (kyngervlar) blekkti sjálft sig mest.

Menn hafa logið að trans-fólki í mörg. Hafa talið þeim trú um að það megi fara inn í rými sem eru aðeins fyrir konur, einkynja rými, að sögn háttsetts meðlims í jafnréttiseftirliti Bretlands. Lögin leyfðu það aldrei.

Trans-fólk kvartar um réttindamissi sem aldrei var til staðar. Upplogið frá upphafi til enda. Menn tóku sér vald í hönd sem þeir höfðu ekki. Eftir úrskurð Hæstaréttar Bretlands gera menn það sem rétt er og hefur verið, útiloka trans-konur, sem eru karlmenn, frá íþróttum, búningsklefum og salernum kvenna.

Akua Reindorf, einn af átta framkvæmdastjórum jafnréttis- og mannréttindanefndarinnar, sagði að transfólk hefði verið blekkt um réttindi sín og það tíma til að viðurkenna rétt kvenna til einkynja rýma.

Reindorf lét þessi ummæli falla í umræðum um úrskurð hæstaréttar um að orðið ,,kyn" í jafnréttislögum vísi aðeins til líffræðilegs kyns, en ekki til kynvitundar einstaklings.

Úrskurðurinn staðfesti að það væri löglegt fyrir þróttaambönd að banna trans-konur í kvennaliðum og að trans-fólki væri meinað að fara á salerni og búningsklefa sem ætlað væri hinu kyninu. Þetta var síðar stutt af bráðabirgðaleiðbeiningum frá EHRC.

Aðspurð af áhorfanda, á viðburði þar sem hún talaði, um áhyggjur af því að úrskurðurinn hafi skert réttindi trans fólks sagði Naomi Cunningham, lögfræðingur og pallborðsþátttakandi í kappræðunum, að trans-fólk ,,verði að víkja" og bætti við: ,,Það er ekki hægt að gera neitt við því." Eins og hún áður sagði, þessi réttindi voru aldrei til staðar.

Reindorf tók næst til máls og sagði: Því miður hefur verið logið að ungu fólki og trans fólki í mörg ár um hver réttindi þeirra eru.

Sjálfsauðkenning ,,aldrei leyfð"

Reindorf, sem einnig er lögfræðingur og tjáir sig persónulega, sagðist telja að sökin lægi hjá trans hagsmunagæslumönnum (aðgerðasinnum og samtökum).

Áður en hæstiréttur úrskurðaði voru lögin almennt misskilin, sagði hún og kenndi þrýstihópum um sem héldu því fram að trans fólk sem skilgreindi sig ætti að fá meðferð í samræmi við þá kynvitund sem það velur sér.

Reindorf bendi á þá staðreynd að trans-fólk hefur verið afvegaleitt um lagaleg réttindi sín. Lögin hefðu aldrei leyft sjálfsauðkennandi fólki að nota einkarými gagnstæða kynsins.

,,Leiðrétting á reglum og starfsháttum um sjálfsauðkenningu mun óhjákvæmilega leið til þess að trans- fólk líði og tali eins og um réttindamissi sér að ræða. Þessi óheppilega staða er yfirgnæfandi afleiðing rangra upplýsinga sem var kerfisbundið dreift á löngum tíma af hagsmunahópum og aðgerðarsinnum."

Í erindi sínu á viðburði, sem skipulagður var af London School of Economics lagadeildinni, sagði Reindorf að áhrif úrskurðar hæstaréttar væru mjög skýr. Hún fordæmdi það sem hún kallaði múgæsingu og hópamyndanir þar sem menn lýsa áhyggjum af að nú hafi trans-fólk engan stað til að fara á salernið.

Endurheimt kvenréttinda

Reindorf naut stuðnings JK Rowling, höfundar Harry Potter. Rowling tísti: ,,Hagsmunahópar trans aðgerðasinna lugu um það sem lögin sögðu. Þeir héldu því fram að karlar, sem skilgreina sig sem konur, ættu rétt á öllu sem konur ættu rétt á, samkvæmt lögum.

,,Þessi rangtúlkun, sem fjarlægði kynbundin réttindi kvenna og stúlkna og veitti trans-konum aukin réttindi, kann að hafa verið þröngvað upp á stóran hluta samfélagsins, en hún var alltaf ólögleg, eins og ótal lögfræðingar og grasrótarsamtök kvenna börðust fyrir og er viðurkennt.“

,,Hæstiréttur endurheimti réttindi kvenna [það] sem þær höfðu tapað í reynd. Kvengervlar töpuðu engu  við úrskurðinn, vegna þess að þeir höfðu aldrei haft þau réttindi sem þeir sögðust hafa. Ekkert hefur verið tekið frá trans fólki nema röng trú og konur hafa einfaldlega endurheimt það sem þær hefðu átt að hafa allan tímann.

Talsmaður EHRC sagði við The Guardian að það sé hlutverk nefndarinnar að framfylgja jafnrétti og mannréttindum samkvæmt jafnréttislögum frá 2010 og tryggja að allir fái sanngjarna meðferð í samræmi við lögin. Ákvarðanir okkar byggjast á sönnunargögnum og lögum.  

Konur eiga að fagna, lausar við karlmenn, sem skilgreina sig sem konur, úr einkynja rýmum og íþróttum. Nú vona konur að þetta breiðist út um gjörvalla heimsbyggðina, í það minnst þann vestræna þar sem réttindi kvenna eru skert vegna rangtúlkana á lögum.

Lesið hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og tuttugu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband