10.6.2025 | 08:39
Mega lögsækja þá sem framkvæma tilraunir á börnum
Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley kynnti frumvarp sem veitir fólki sem hefur farið í gegnum kynleiðréttingarferli/aðgerðir (stopphormóna, krosshormóna, skurðaðgerð), sem ólögráða barn, heimild til að lögsækja þá sem sáu um inngripið. Frestur til að höfða mál er 30 ár eftir að börnin hafa náð 18 ára aldrei. Frumvarpið bannar enn fremur alríkisfjármögnun á kynleiðréttingaraðferðum barna.
Í grófum dráttum eru þetta aðalatriðin
Ef frumvarpið verður samþykkt í þinginu leyfir það fólki sem hefur orðið fyrir líkamlegum eða andlegum skaða af kynleiðréttingaraðgerðum, sem gerðar voru á þeim sem ólögráða börnum, að lögsækja einstaklinga og aðila sem tóku þátt í aðgerðunum.
Eftirfarandi aðilar bera ábyrgð í slíkri aðgerð:
- Kynleiðréttingarstofur barna, þar sem aðgerðin var framkvæmd
- Læknarnir sem framkvæmdu aðgerðina eða störfuðu á heilsugæslustöðinni
- Háskólar og/eða sjúkrahús sem tengjast heilsugæslustöðinni.
Ríkið hættir þátttöku
Að auki bannar frumvarpið að alríkisfé sé notað til að fjármagna:
- Kynleiðréttingarstofur fyrir börn
- Háskóla og sjúkrahús sem tengjast kynleiðréttingarstofu barna
- kynleiðréttingaraðgerðir framkvæmdar á ólögráða börnum
Ef lagafrumvarpið verður samþykkt munu lögin gilda um allt ofangreint, auk þess að gilda þau um tilraunameðferðir fyrir og eftir að lögin tóku gildi.
Foreldrar sleppa
Ekkert kemur fram um ábyrgð foreldra í lagafrumvarpinu. Þau eru oft meðvirk með barni og að barn fari í þessar tilraunameðferðir sem margar læknastofur og sjúkrahús bjóða upp á.
Engar rannsóknir sýna eða sanna að svona tilraunir á börnum geri þeim gott eða bæti þá sálrænu kreppu sem þau eru í. Hér má hlusta á fræðimann rökstyðja málið.
Líffræðilega kynið breytist aldrei þrátt fyrir þessa pyntingu barna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning