Hjúkrunarfræðingarnir höfðu sigur

Átta hjúkrunarfræðingar fóru í hart við vinnuveitenda sinn vegna einkynja rýma. Þær stofnuðu eigin stéttarfélag til að vinna í málinu. Félag hjúkrunarfræðinga studdi þær ekki frekar en Sandie Peggie sem er í málaferlum við vinnuveitanda sinn og kvengervil. Hún ætlar sér í mál við Félag hjúkrunarfræðinga.

Stefna kyngervla (trans-fólks) stefnir þeim í hættu, sviptir þær reisn og brýtur gegn mannréttinum þeirra segja hjúkrunarfræðingarnir.

Konurnar sögður frá að líffræðilegur karlmaður sem skilgreindi sig sem konu, að nafni Rose, starði á brjóst þeirra þegar þær afklæddust og dvaldi lengi í búningsklefanum. Einn hjúkrunarfræðingurinn fékk kvíðakast eftir að karlmaðurinn Rose spurði ítrekað þegar þau voru ein: ,,Ertu að skipta um föt?“

Ráðherra greip fyrst inn nú

Nú, þegar mál þeirra er á leið fyrir dómstóla, hefur heilbrigðisráðherrann Wes Streeting gripið inn í og skipað Darlington Memorial sjúkrahúsinu að hafa einkynja rými. Konurnar eiga að fá sitt.

Ein þeirra, Bethany Hutchison, sagðist kunna að meta aðgerðirnar ,,til að endurheimta öryggi okkar og reisn á vinnustaðnum í samræmi við lög." Og hún sagði að hjúkrunarfræðingarnir myndu ekki ,,hætta fyrr en þessi aðgerð gildi um alla kvenkyns starfsmanna á starfsstöðum NHS án óþarfa tafa".

Hjúkrunarfræðingarnir í Darlington kærðu NHS fyrir ári síðan og fengu yfirgnæfandi stuðning um allt land. ,,Milljónir kvenna standa með þeim," sagði J.K. Rowling.

Sigur þeirra kemur í kjölfar þess að í síðustu viku neyddust yfirmenn NHS að breyta leiðbeiningum sínum um kyngervla eftir úrskurð Hæstaréttar Bretlands. Konur eru kvenkyns einstaklingar, ekki karlar sem segjast vera konur. Yfirmenn NHS benda á að kyngervlar ættu að fá eigin salerni og búningsklefa.

Embættismaður mætir á staðinn

Háttsettur embættismaður NHS heimsótti Darlington Memorial sjúkrahúsið fyrirvaralaust í síðustu viku og lýsti búningsaðstöðu fyrir kvenkyns starfsmenn sem ,,ófullnægjandi".

Embættismaðurinn bað einn hjúkrunarfræðinginn í Darlington afsökunar og lofaði að bregðast við ,,með hraði." Það ætti að gera með því að útvega karla-, kvenna- og kynhlutlausa búningsklefa og bætti við: ,,Við viljum að þér líði vel og þú sért örugg."

Á síðasta ári, eftir að hjúkrunarfræðingarnir vöktu máls á þessu, var þeim sagt af yfirmönnum stofnunarinnar að þær þyrftu að ,,endurmennta sig", ,,gera málamiðlanir" og ,,samlagast betur.“

Kröfurnar birtar, þær fluttar

Eftir að hjúkrunarfræðingarnir birtu kröfu sína gaf County Durham og Darlington NHS Foundation Trust þeim ,,tímabundin" rými til að skipta um föt, fara í vinnufötin. Stuðningsmenn hjúkrunarfræðinganna sögðu hins vegar að rýmið væri skápalaust og opið út á almenningsgang, sem leiddi til þess að konurnar stimpluðu aðstöðuna sem ,,ómannúðlega" og ,,niðurlægjandi."

Þegar í ljós koma að stéttarfélagið þeirra var tregt til að styðja þær stofnuðu hjúkrunarfræðingarnir átta sitt eigið félag, Darlington Nursing Union, og lögðu tillögur sínar um leið fram til herra Streeting.

Leiðbeiningar þeirra veittu ,,sanngjarna og viðráðanlega leið til að vernda örugg einkynja rými fyrir allt starfsfólk NHS í samræmi við jafnréttislögin." Að auki virtu kröfurnar réttindi þeirra sem skilgreindu sig annað kyn en þeir eru.  

Nutu stuðnings

Kemi Badenoch, leiðtogi Íhaldsflokksins, studdi hjúkrunarfræðingana og sagði: ,,Það ætti aldrei að neyða konu til að afklæðast í návist karlmanns. Mál hjúkrunarfræðinganna í Darlington er enn eitt dæmið um konur sem eru skrímslavæddar og niðurlægðar fyrir að vekja athygli á réttmætum áhyggjum vegna einkynja rýma.“  

Streeting neyddist til að bíða þar til eftir úrskurð hæstaréttar í apríl, um að orðið kyn í jafnréttislögum þýði líffræðilegt kyn áður, en hann skipti sér af.

Í síðasta mánuði kom í ljós, að jafnvel áður en hæstiréttur úrskurðaði hafði Royal College of Nursing skrifað Darlington og sagt að hegðun þeirra væri ólögleg. Í bréfinu var Darlington skipað að útvega einkynja búningsklefa ,,án tafar".

Andrea Williams, framkvæmdastjóri Christian Legal Centre, sagði: ,,Andrúmsloft ótta hefur gegnsýrt kerfið og margir frá toppi til botns hafa verið hræddir til þöggunar og aðgerðaleysis. Jafnréttis- og fjölbreytileikastefnur hafa verið notaðar sem vopn til að þagga niður í andófi og koma í veg fyrir að öryggi og reisn kvenna sé verndað á vinnustöðum.

,,Við erum þakklátar fyrir aðgerðir Wes Streeting og NHS England í þessu máli og biðjum þess að þeir fylgi þess fast og fljótt eftir svo hjúkrunarfræðingarnir geti snúið aftur í búningsklefa kvenna án tafar."

Heimild


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband