Nýja slagorð trans hreyfingarinnar- verið hrædd við okkur-

JK Rowling tjáði sig um nýtt slagorð sem Trans Rights Activist (TRA) hreyfingin hefur tekið upp og gefið í skyn að það sé hannað til að gera ,,konur hræddar."

Hún birti svar við myndbandi  Söruh Jane Baker, kvengervil (trans-konu), sem afplánar lífstíðardóm fyrir að ræna og pynta bróður stjúpmóður sinnar og tilraun til að myrða annan fanga.

Baker, 55 ára, lést næstum því eftir að hafa skorið af sér eigin eistu með rakvélablaði á bak við lás og slá árið 2017. Í myndbandinu stendur hann topplaus í miðri Whitehall, hindrar umferð og er umkringdur öðrum topplausum kvengervlum, þar sem hann öskrar ,,JK Rowling, vertu hrædd við okkur. Kellie-Jay Keen, vertu hrædd. Keir Starmer, vertu hræddur."

Rithöfundurinn svaraði: ,,Nýja slagorðið trans- aðgerðasinna ,,Vertu hræddur" er einfaldlega heiðarlegasta slagorð þeirra til þessa. Þeir hafa óskað þess að konur séu hræddar og þess vegna hótað þeim reglulega líkamsmeiðingum.

Áhugaverðara er, hvers vegna finnst ofbeldisfullum fyrrverandi fanga hann vera svo ósnertanlegur að hann geti gert þetta á almannafæri?"

Myndbandið birti X-notandinn Gerry Keogh, sem lýst er í ævisögu sinni sem ,,Glasgow strák í Brum." Hann sagði: ,,Vertu hræddur“ er hrollvekjandi ný mantra trans-samfélagsins."

Rowling sagði einnig: ,,Mig grunar að þeir telji að lögreglan taki ofbeldishótanir gegn konum ekki alvarlega. Þeir telja að lögreglunni þyki hótanir í garð kvenna ekki mikilvægar, jafnvel verðskuldaðar. Þeir telja að lögreglan sé með þeim í liði. Og þó að mér finnist lítið gaman að segja það, þá held ég að þeir hafi rétt fyrir sér."

Svo bætti hún háðslega við: ,,Svo viðkvæm. Svo kúguð. Svo jaðarsett."

Heimild


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og einum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband