Sumarleyfi kennara og endurmenntun

Nú streyma börnin úr grunnskólunum. Skólaslit verða á næstu dögum í flestum skólum. Börnin komin í tæplega 10 vikna sumarfrí. Þau gleðjast og kennarar með.

Þá er komið að endurmenntun margra kennara. Sumir nota hluta sumarsins í endurmenntunina. Ég hvet kennara sem þekkja ekki líffræðina nógu vel að mennta sig betur í henni. Kennara á öllum stigum.

Mennta sig til að miðla líffræðinni til barna í grunnskólanum.

Mennta sig til að segja satt, ekki ljúga að börnunum.

Kennarar kenna nemendum að segja sannleikann, gott og vel. Segja það gott nesti út í lífið. En mikilvægast er, að kennarar sem ástunda lygar í skólastofunni byrji á sjálfum sér. Læri að segja satt.

Hér geta kennarar, og forystusauðir Kennarasambandsins, tekið forskot á sæluna. Rætt er við prófessor í líffræði sem veit sínu viti. Viðtalið er virkilega gott. Áhugavert að hlusta á hvernig hægt er að greina beinin.

Smellið á krækjuna: Trans Ideology vs. Biology | Peter Boghossian & Luana S. Maroja

 ekki kennari


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband