30.5.2025 | 08:06
Þúsundir barna svikin
Þúsundir aðgerða á börnum mistókust. Þetta kemur fram í Cass skýrslunni sem jafnframt bendir á skort á vísindalegum sönnunargögnum þegar læknisfræðileg aðgerðum er beitt á börn sem líður illa í eigin skinni.
Þúsundir barna voru svikin. Kynleiðréttingameðferðir barna og unglingar hafa ótrúlega veikar vísindalegar sannanir. Raunveruleikinn er sá að við höfum engar góðar sannanir fyrir langtímaáhrifum meðferðarinnar.
Þetta er dómurinn um núverandi meðferða barna og ungmenna sem kom út í 388 bls. skýrslu sem byggir á fjögurra ára starfi segir Dorte Toft blaðamaður.
,,Það eru fá önnur svið þar sem fagmenn eru eins hræddir við að ræða opinskátt um sjónarmið sín og níðst er á fólki í svo miklum mæli á samfélagsmiðlum og það verður fyrir einelti segir í Cass skýrslunni.
Kannski það sé ástæða þöggunar heilbrigðisstarfsmanna á Íslandi. Börn eru frekar sett í tilraunameðferðir í stað þess að tala um sannleikann og afleiðingar af því sem þeir gera börnunum.
Hvar eru íslenskir blaðamenn, af hverju leggjast þeir ekki í rannsóknarblaðamennsku líkt og sá danski til að bera sannleik á borð fyrir þjóðina.
Í Bandaríkjunum kom út samsvarandi skýrsla á dögunum. Til að forða höfundum frá áreiti, morðhótunum, hótun um ofbeldi o.s.frv. var ákveðið að gefa ekki upp nöfn höfunda. Menn hafa lært af reynslunni frá Bretlandi.
Bandaríksa skýrslan og niðurstöður
Aðalniðurstöður var munur á geðröskunum, sérstaklega þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugsunum, líkamsröskun og vímuefnaneyslu, meðal trans einstaklinga eftir aðgerð.
Af rúmlega 100 þúsund sjúklingum sýndu niðurstöður að þeir sem gengust undir skurðaðgerð voru í marktækt meiri hættu á þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugsunum og vímuefnaneyslu en þeir sem fóru ekki í skurðaðgerð.
Karlar sem fóru í skurðaðgerð sýndu hærra algengi þunglyndis (25.4% á móti 11.5%, RR 2.203, P < 0.0001) og kvíða (12.8% á móti 2.6%, RR 4.882, P < 0.0001). Konur sýndu svipaða þróun, með hækkað þunglyndi (22.9% á móti 14.6%, RR 1.563, P < 0.0001) og kvíða (10.5% á móti 7.1%, RR 1.478, P < 0.0001). Kvenkyns einstaklingar sýndu sérstaklega mikla hættu á þunglyndi (RR 1.783, P = 0.0298) og vímuefnaneyslu (RR 1.284, P < 0.0001).
Hér má sjá, að leynt og ljóst er verið að svíkja þúsundir einstaklinga með gervi hugmyndafræði og ýta þeim út í eitthvað í von og óvon um að afleiðingarnar verði ekki slæmar.
Hvatning til blaðamanna
Eina sem íslenska þjóðin getur gert er að vona að blaðamaður eða menn sjái alvarleika í þessum gervivísindum sem beitt eru á börn, þau sett í tilraunarmeðferðir með samþykki stjórnmálamanna.
Nægar forsendur er að skrifa um hið rétta bæði með Cass-skýrslunni og nú þeirra Bandarísku. Að auki má finna fullt af fræðigreinum sem benda á hversu rangt við meðhöndlum börn.
Alvöru rannsóknarblaðamaður lætur svona tækifæri ekki fram hjá sér fara! Eða?
Heimildir má finna hér og hér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning