18.5.2025 | 07:35
Vonandi hrökk minni Willums Þórs í gang
Willum Þór fyrrverandi heilbrigðisráðherra var kosinn forseti ÍSÍ, óska honum til hamingju.
Ekki er langt síðan hann niðurlægði konur landsins með því að nota orðið leghafi í stað kona í frumvarpi sem hann lagði fram. Frumvarpið sem um er rætt gat ekki átt við neinn nema konur, því þetta var fóstureyðingafrumvarpið.
Innan ÍSÍ er fjöldinn allur af konum. Nú verða þær að vona að minni Willums Þórs hafi hrokkið í gang og hann muni hvað kona er. Ef ekki þá getur hann horft til Hæstaréttar Bretlands sem kvað upp sinn dóm.
Enginn getur í lagalegum skilningi kallað sig konu aðrar en þær sem eru fæddar slíkar. En auðvitað veit alheimur þetta!
Hafi minni Willums ekki hrokkið í gang gætu konur átt á hættu að þurfa að keppa með eða við kvengervil, karlmaður sem segist vera kona, þvert á úrskurð Hæstaréttar Bretlands. Konur í Bretlandi eru ekki öðruvísi en konur um allan heim og því verður horft til dómsins.
Vonandi eigum við aldrei eftir að sjá neina konu hér á landi lenda í einelti líkt og breska fótboltastúlkan sem gerði ekkert annað en segja sannleikann.
Willum Þór er farinn af hinu háa vók Alþingi Íslendinga, það vonandi hjálpar upp á minni hans um hvað raunveruleg kona er.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.