Konurnar þurftu vernd á fundinum

Í miðborg Melbourne, laugardaginn 26. apríl 2025, þurfti hindranir og 200 lögreglumenn frá Viktoríuríki, þar á meðal óeirðasveitina, til að vernda um 80 konur á Women Will Speak fundinum.

Hinu megin víggirðinganna voru um 450 róttækir trans-aðgerðasinnar, margir grímuklæddir. Notaðar voru horn og trommur til að trufla viðburð kvennanna. Þeir voru fleiri en fundarmenn, sungu, brenndu ástralska fánann og lokuðu götum í þeim tilgangi að stöðva fundinn.

Þrátt fyrir að konurnar hinum megin víggirðingarinnar voru eldri vinstrisinnaðir femínistar, verkalýðsleiðtogar, hjúkrunarfræðingar, kennarar, lesbíur og foreldrar barna sem líður illa í eigin skinni sungu trans-aðgerðasinnar um ,,hægrisinnaða fasista.“

Lögreglan leyfði fundi kvennanna í klukkustund. Vegna óláta í trans-aðgerðasinnum sem köstuðu eldflöskum í átt að konunum, og lentu í átökum við lögreglu, var óskað eftir að konurnar styttu fundinn.

Róttækur trans-aktívismi og þöggun kvenna

Róttækir trans-aðgerðasinnar reyna að þagga niður í konum á götum úti, í dómssölum og í fjölmiðlum.

Sambærilegur kvennafundur Let Women Speak var haldinn á tröppum þinghússins árið 2023, en sá fundur ógnaði ferli Moira Deeming, þingmanni frjálslyndra í Viktoríuríki og kostaði ástralska blaðamanninn Julie Szego starf sitt hjá The Age.

Fjölmiðlaumfjöllun af viðburðinum 2023 var einhliða. ABC og vinstrisinnaðir miðlar sögðu þingmanninn vera ,,anti-trans“ og stimpluðu ræðumennina Kellie-Jay Keen og Moira Deeming sem ,,stuðningsmenn nýnasista.“

Stjórnmálaleiðtogar Viktoríuríkis Johan Pesuttor (Frjálslyndum) og Dan Andrews (Verkamannaflokknum) rægðu og skömmuðu Moira og í framhaldi af því allar konurnar sem mættu á fundinn.

Umfjöllunin varð áströlskum konum áþreifanleg viðvörun; Segðu frá skerðingu á kynbundnum réttindum kvenna og þú hættir starfi þínu og orðspori. (Minnir á Ísland og viðbrögð kennara á Akureyri)

Það þurfti hugrekki til að mæta á fundinn í ár og horfast í augu við illsku trans-aðgerðasinna.

Heimild   

átralskar löggur- mynd

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sjö?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband