NCAA meistaramóti mínu var stolið

Ég var fyrsta háskólakonan sem fékk að vita að sigur minn væri minna virði en tilfinningar karlmanns.

Það eru þrjú ár síðan sundkonan Lia Thomas (fædd William) vann gullverðlaun í 500 metra skriðsundi á NCAA Division I Women's Championship. Það var ekki fyrr en tilskipun Trump forseta frá 5. Febrúar, um að halda körlum frá kvennaíþróttum, var gefin út að bandarísk stjórnvöld settu skýra stefnu til að vernda réttindi kvennaíþrótta.

Þetta skref, þó það sé kærkomið, er ekki nóg. Opinber úrslit fyrri keppna ætti að leiðrétta til að vera nær raunveruleikanum. Fjarlægja ætti karlkyns keppendur og hækka stöðu kvenna sem verða fyrir áhrifum í samræmi við það.

Þetta er persónulegt

Árið 2019, þegar ég var á öðru ári í East Texas A&M háskólanum, var mér úthlutað öðru sæti í úrslitum NCAA Division II 400 metra hindrunarhlaups kvenna. Myndbandið frá þeim viðburði sýnir mig keppa á áttundu braut. Á braut 4 er CeCé Telfer frá Franklin Pierce háskólanum - sem keppti fyrir karlalið þess skóla 2016 og 2017. Craig Telfer var í 390. sæti yfir NCAA deild II karla. CeCé Telfer eyðilagði kvennakeppnina og fór yfir marklínuna næstum tveimur sekúndum á undan mér og varð þar með fyrsti þekkti trans-íþróttamaðurinn til að vinna NCAA titil.

Það gerði mig að fyrstu háskólakonunni sem var sagt að sigur hennar væri minna virði en tilfinningar karlmanns. Ég grét mikið þennan dag – ekki vegna þess að ég tapaði, heldur vegna þess hvernig ég tapaði. Ég vissi líka að ég var ekki eina fórnarlambið. Í hvert skipti sem karlkyns íþróttamaður tekur þátt í kvennakeppni er kona skorin út af listanum til að búa til pláss.

Yfirburðir og áreiti

Karlar hafa gríðarlega íþróttalega yfirburði yfir konur og þess vegna eru hindranir kvenna 9 tommum styttri en karla. Tími til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í 400 metra hindrunarhlaupi karla er um fimm sekúndum hraðari en hjá konum. Það er munur upp á um 10% - heil eilífð í svona íþrótt.

Ég þóknast fólki og líkar illa að styggja það – staðalímynd kvenkyns eiginleika sem trans aðgerðasinnar nýta sér oft til að bæla niður andóf. Það tók mig ár áður en ég fann kjark til að segja frá tilfinningum mínum um hlaupið á Instagram. Þegar Cecé Telfer gerði stuðningsmönnum viðvart um færsluna var ég fordæmd og sögð með ,,transfóbíu" og að ég væri rasisti, ég fékk hótanir og varð fyrir áreitni.

Cecé Telfer hélt áfram að skrifa bók og fjallað var um ,,hana" í tímaritinu New York Times í langri grein sem bar titilinn ,,For My People': A Transgender Woman Succeeds an Olympic Dream." Sá draumur hrundi árið 2021 þegar hann féll á testósterónprófi.

Mun ekki njóta sannmælis

Ég býst ekki við að ég verði nokkurn tímann sýnd í Fawing tímaritsgrein. En ég afrekaði eitt sem mun alltaf vera mjög stolt af: Árið 2019 var ég fljótasta kvenkyns 400 metra hindrunarhlaupari í öllum NCAA skóladeildum II.

Það eru fimm ár síðan þessum heiðri var stolið frá mér. Ég vil heiðurinn til baka.

Heimild.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og tuttugu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband