4.9.2024 | 08:24
Ekki skafið utan af því
Stundum koma þrusugóður pistlar í Morgunblaðið. Ef höfundurinn er Stefanía Jónsdóttir má búast við hreinskilum og beittum pistli.
Í pistlinum, hér neðar, gerir hún verk stjórnmálamanna að umtalsefni. Hún beinir orðum sínum til Guðlaugs Þórs sem vill vindmyllur til landsins. Hann virðist ekki fylgjast með því sem gerist út í heimi. Hér er ekki um góðar fjárfestingar að ræða. Fyrir utan sjónmengun. Hins vegar er fámennur hópur manna sem hagnast gífurlega á þessu. Þurfum ekki annað en að rifja upp orð Norðmannanna í Exit III þar sem þeir græddu á tá og fingri vegna heimsku stjórnmálanna. Höfum hugfast þetta var það sem gerðist í raun og veru.
Stefanía fjallar líkar um þær breytingar sem hafa verið á háskólakerfinu. Án mikillar umhugsunar má segja að ,,vókið" hafi yfirtekið nokkrar deildir háskólanna. Þegar vel menntað fólk talar um ,,öll velkomin" ,,flest" í merkingunni flestir og heldur fram að börn geti fæðst í röngum líkama þá er fokið í flest skjól. Tek undir með henni hvað aumingjavæðinguna varðar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.