18.5.2024 | 08:22
Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi
Það var ánægjulegt að heyra að Arnar Þór gæfi kost á sér til embætti forseta Íslands. Hann ætti að fá verðskuldaða athygli í fjölmiðlum og meðal lýðsins vegna þeirra málaflokka sem hann talar um. Hann er verðugur forseti. Hjónin myndu sóma sér vel með barnaskarann á Bessastöðum.
Það sem hefur vakið athygli bloggara er hvað fjölmiðlar hafa sýnt framboði hans lítinn áhuga, miðað við sum önnur. Á bloggara virkar það eins og fjölmiðlar sammæli sig um að fjalla sem minnst um framboð Arnars Þórs meðan aðrir frambjóðendur fá alls konar athygli. Rætt við þá um önnur mál en tengjast ekki forsetaframboði. Er það til að vekja athygli á framboði þeirra, umfram annarra? Er það til að breyta ásýnd annarra frambjóðenda? Er það góð fréttamennska að draga taum eins frekar en annars?
Arnar Þór hefur allt sem prýða á góðan forseta. Takið eftir honum og þeim málefnum sem hann fjallar um.
Arnar Þór heldur úti bloggsíðu og hefur gert lengi. Margt áhugavert sem hann skrifar um, m.a. tjáningarfrelsið.
Athugasemdir
Ég tek undir hvert einasta orð í þessum frábæra pistli, Helga Dögg.....
Jóhann Elíasson, 18.5.2024 kl. 09:50
Eg er líka sammála nöfnu minni um leið og ég fagna vel skrifuðum pistli.
Helga Kristjánsdóttir, 18.5.2024 kl. 14:50
Tek undir allt hér að ofan.
Sigurður Kristján Hjaltested, 19.5.2024 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.