Sjö þúsund konur hafa orðið fyrir kynferðilegu ofbeldi í Þýskalandi

Den korte avis segir frá og vitnar til NZZ (Neue Zürcher Zeitung) ,,að minnst 7000 konur hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu innflytjenda frá 2015.“

Blaðið hefur undir höndum gögn frá lögreglunni. Samtímis birtir blaðið pistil frá fræðimanni í innflytjendamálum, Ruud Koopmans.

Ruud kemur með athyglisverða aðvörun um afleiðingar af nánast óheftum straumi innflytjenda til Þýskalands. Straumurinn bitnar aðallega á konum og stúlkum í formi kynferðis ofbeldis. 

Frá því að straumur af innflytjendum frá Mið-Austurlöndum og Afríku til Þýskalands varð að veruleika hefur um 7000 konum og stúlkum verið nauðgað, hópnauðgað eða þær orðið fyrir annars konar kynferðislegu ofbeldi. Þetta sýna tölur frá lögreglunni segir í þýska blaðinu. 

 

Tölur frá lögreglunni

Frá 2015 til 2022 voru tilkynningar um nauðganir, kynferðisofbeldi og kynferðisofbeldi af hálfu innflytjenda 8.590. Lögreglan (BKA) notar orðið innflytjendur yfir þá sem komu til Þýskalands í gegnum hælisleitendakerfið. Rúmlega 90% af þolendum kynferðisofbeldis eru konur. Flestar Þjóðverjar segir þýska blaðið.

Það ríkir ákveðin óvissa um búsetu gerenda. Það hefur hins vegar ekki áhrif á þann mikla fjölda fórnarlamba kynferðisofbeldis.  

Greining lögreglunnar (BKA), sem innanríkisráðuneytið óskaði eftir, sýnir samkvæmt NZZ, að frá 2017 hafa rúmlega 1000 konur upplifað kynferðislegt ofbeldi af hálfu innflytjenda á hverju ári. Út frá þeim tölum má gera ráð fyrir að minnsta kosti 7000 konur séu þolendur frá 2015 segir blaðið.

Aðvörun Ruud Koopmans

Ruud skrifar í pistli sínum að á árunum 2017-2020 voru 3000 konur fórnarlömb nauðgana sem ýmist einn eða fleiri innflytjendur voru þátttakendur í. Flest fórnarlömbin þýskir ríkisborgarar.

Frá 2015 eru um 70% af hælisleitendunum karlmenn. Oft ungir menn. Ungir menn með innflytjendabakgrunn skora hátt í tölfræðinni um kynferðisofbeldi.

Í greininni á NZZ segir Ruud Koopmans að mannlegur fórnarkostnaður er mikll undir banvænni hælisleitendastefnu Evrópu. Hann segir brýna þörf sé á umbótum í málefnum hælisleitenda. Núverandi stefna orsakar mörg dauðsföll á Miðjaðarhafinu og í Sahara. Að auki er óheftur straumur innflytjenda hættulegur fyrir Evrópubúa segir hann.  

Lögreglan: Það á að vísa þeim úr landi

Talsmaður stéttarfélags lögreglumanna segir að vísa eigi innflytjendum sem gerast sekir um kynferðisafbrot úr landi, þó það orsaki vanda fyrir þá í heimalandinu.

,,Þeir sem fremja kynferðisglæpi eiga ekki að fá leyfi til að vera í Þýskalandi segir Manuel Ostermann til NZZ og heldur áfram ,,Við upplifum frelsisskerðingu í Þýskalandi, sérstaklega konur“

Christoph de Vries, Evrópuþingmaður, fyrir borgarlega flokkinn CDU, telur að takmarka eigi straum innflytjenda frá arabísku löndunum. ,,Það er augljóst að hættan á nauðgun og öðrum kynferðisafbrotum í Þýskalandi eykst með innflytjendum frá arabísku löndunum,“ segir hann. Þar að auki á að vísa afbrotamönnum úr landi- m.a. til Sýrlands og Afganistan þar sem margir þeirra koma frá. Verndun kvenna á að forgangsraða hærra en verndun kynferðislegra rándýra og annarra glæpamanna,“ segir þingmaðurinn.

Stór hluti Þjóðverja eru mjög ósáttir með stjórnmálamennina sem vilja ekki stoppa straum innflytjenda. Það kemur helst niður á Jafnaðarmannflokknum, SPD, sem er leiðandi í ríkisstjórn. Þetta sýna nýjar mælingar frá Sachen.

Þetta er stórt sveitarfélag með rúmlega 3 milljónir íbúa en landamæri þess liggur að Póllandi. Í könnuninni fær SPD 3% og er samkvæmt spánni horfin út af þingi Sachen. Í kosningunum 7. september fengu þeir 7% 

CDU hefur hert innflytjendastefnuna eftir að Merkel hvarf af braut. Þeir hafa völdin í Sachen með um 30%. Flokkurinn, AFD, sem gagnrýnir innflytjendastefnuna fær 37%. Það er óvenjulegt en endurspeglar vilja þjóðarinnar. Minnstu munar að uppreisn sé í aðsigi vegna frétta um kynferðisofbeldi á 7000 konum.

Heimild.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Hér á íslandi eru margar konur í háum embættum, og flestar þeirra lyfta ekki fingri í því að hefta komu þessara manna til íslands.

Mikið ættu þær að skammast sín og finna sér svo  aðra vinnu. 

Loncexter, 3.1.2024 kl. 17:49

2 identicon

Yfirfært á Ísland væru þetta um 3 brot á ári. Fjöldi brotaþola sem koma í Stígamót á hverju ári eru um 400. Því er ekki annað að sjá en að þeir karlmenn á Íslandi sem eru ekki hælisleitendur séu margfalt líklegri til að brjóta af sér kynferðislega en hælisleitandi. Eða Íslenskir kennarar, lögregluþjónar, leigubílstjórar, dyraverðir, þjálfarar o.s.frv. eru margfalt hættulegri konum en hælisleitendur. Og ef allir hælisleitendur færu strax úr landi mundi ástandið í þessum málum lítið batna.

Þegar blekkja á fólk þá er öllum hlutföllum og prósentum sleppt. Enginn samanburður gerður. Og tölu slegið fram sem virðist mjög há og jafnvel eina talan. Hvað ætli Þýskir karlmenn hafi framið marga tugi þúsunda eða hundruð þúsunda kynferðisglæpa þessi átta ár? Þeir voru ekki aðgerðarlausir eins og halda mætti útfrá umfjöllun Neue Zürcher Zeitung.

Vagn (IP-tala skráð) 4.1.2024 kl. 03:26

3 Smámynd: Loncexter

Hvort sem múslimar eru graðari en aðrir eða ekki, þá eiga þeir ekki samleið með íslendingum á neinn hátt.

En eins og flestir ættu að vita, þá hegðar fólk sér oftast frekar illa í öðrum löndum en sínu eigin. Engin undantekning með múslimana.

Loncexter, 4.1.2024 kl. 17:31

4 identicon

Reyndar benda tölulegar upplýsingar til þess að innfæddir hagi sér verst. Vissir fjölmiðlar og háværar raddir gefa þér síðan þá tilfinningu að hið gagnstæða eigi við.  

Vagn (IP-tala skráð) 4.1.2024 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband