Það er óheiðarlegt og afar siðlaust að þrýsta á foreldra að samþykkja umskipti barna með því að ýkja sjálfsvígshættu

Finnski prófessorinn Riittakerttu Kaltiala bendir á að þær rannsóknir sem heilbrigðisstarfsmenn horfðu til sem dásömuðu ,,kynskipti” barna sem líður illa í eigin skinni voru ekki eins góðar og áreiðanlegar og menn héldu. Þvert á móti, aðgerðirnar höfðu slæm áhrif á unglingana. Hún var sjálf í þeim hópi sem framkvæmdi aðgerðir á börnum en hefur nú skipt um skoðun eftir rannsókn sem hún ásamt fleirum gerðu 2015.

Nokkur lönd hafa tekið í handbremsuna þegar kemur að ,,kynskiptum” bara og unglinga. Skortur er á sönnunum fyrir því að heilsa barna og ungmenna batni almennt með kynskiptismeðferð. Því miður er það ekki svo í Bandaríkjunum, þar ríkir iðnaður í málaflokknum. Henni hefur verið meinað að taka þátt í ráðstefnum tali hún gegn ,,kynskiptum” barna og unglinga.

Vísindin verða ekki þögul. Læknar sem neita að taka tillit til sönnunargagna sem gagnrýnendur leggja fram setja öryggi sjúklinga í hættu segir hún.

Hún er einnig í uppnámi að læknar og stofnanir vara reglulega bandaríska foreldra við að barn þeirra sé í sjálfsvígshættu standi þau í vegi fyrir ,,kynskiptum.” Sama söngur kyrjaður hér á landi af transaðgerðasinnum.  

"Dauði hvers einasta ungmennis er harmleikur, en nákvæmar rannsóknir sýna að sjálfsvíg eru mjög sjaldgæf. Það er óheiðarlegt og afar siðlaust að kúga foreldrar til að samþykkja kynjameðferð með því að ýkja áhættuna á sjálfsmorði," skrifar hún í The Free Press.

Læknar sem segjast hafa lækningu við öllum sársauka lífsins ætti að vera viðvörun til okkar allra.

Kaltiala sér sértrúarsöfnuð þar sem heilbrigðisstofnanir byrja skyndilega trúa því að flókin vandamál ungs fólks hafi alltaf eina og sömu lausnina: ,,kynskiptiaðgerð.”

Faraldur hefur ríkt í þessum málum. Á samfélagsmiðlum virðist það hafa verið knúið áfram að trans-aðgerðasinnum og hópþrýstingi að eðlilegur kynþroski og óöryggi með líkama sinn sé eitthvað óeðlilegt. Fái barn að fara í gegnum kynþroskann jafnar unglingurinn sig.

Heimild


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband