10.12.2023 | 07:49
Hvar er formađur Félags grunnskólakennara?
PISA könnunin međ allri sinni dýrđ er opinber. Margir fjalla um og rćđa árangur nemenda og kennsluhćtti grunnskólakennara. Stefnur, strauma og matskerfi grunnskóla. Kastljós tók máliđ fyrir og ţar áttu grunnskólakennarar von á forystusauđi sínum. Nei ţannig var ţađ ekki, formađur KÍ mćtti ekki formađur Félags grunnskólakennara!
Ég spyr af hverju? Formađur KÍ á ekki ađ sitja fyrir svörum ţegar málefni grunnskólans ber á góma, ţađ á formađur Fg ađ gera og enginn annar. Til ţess var hann kosinn. Velti fyrir mér hve ţögull formađur Fg er. Sjaldan ef nokkurn tímann er rćtt viđ hann um málefni sem viđkoma grunnskólanum. Yfirtók formađur KÍ hlutverk formanna einstakra félaga ţegar hann tók viđ keflinu í Kennarasambandi Íslands, velta má ţeirri spurningu upp. Öllum er ljóst ađ hann elskar ţađ hlutverk en fyrr má nú rota en dauđrota.
PISA könnun er mćlitćki sem á rétt á sér. Eftir ađ samrćmdu prófin voru felld niđur eru engar samrćmdar mćlistikur til ađ kanna ţekkingu nemenda á landsvísu. Ţađ er slćmt. Sú jöfnunarstefna sem háir grunnskólanum hefur kostađ samfélagiđ of mikiđ. Mörgum fórnađ fyrir fáa. Danir ganga svo langt ađ tala um mikla ábyrgđ stjórnenda á lélegum árangri nemenda í PISA könnuninni. Danskir nemendur fóru illa út úr lćsi og stćrđfrćđi.
Bloggari hefur á kennsluferli sínum, 16 ár, heyrt sér reynslumeiri kennara tala um slakari lesskilning nemenda. Menn hafa velt vögum yfir lćsisstefnum, hvort Byrjendalćsi sé rétt ađferđ í lestri barna eđa hvort nota eigi eingöngu hljóđa ađferđina. Á ađ hrćra öllu saman og vona ađ út komi ţokkalegur árangur. Allir eru međvitađir, ţađ hefur eitthvađ gerst undanfarin mörg ár.
Formađur félags grunnskólakennara á ađ rćđa galla á námskrá og matskvarđa sem innleiddir voru fyrir nokkrum árum. Kennurum gert ađ vinna eftir ţeim hvort sem ţeim líkar betur eđa verr. Ákvörđun ađ ofan og minnir um margt á ţessa sögu. Ţví miđur voru mótmćlin ekki hávćr ţá.
Formađur félags grunnskólakennara á ađ rćđa fjölgun útlenskra barna í grunnskólann og ţann tíma sem ţau taka í kennslustofu ţar sem lítill stuđningur er viđ ţau inni í kennslustofum.
Formađur félags grunnskólakennara á ađ rćđa aukiđ álag í kennslustofum kennara međ fjölgun útlendinga sem tala ólík mál og agavandamál sem hafa aukist.
Formađur félag grunnskólakennara á ađ tala um mikilvćgi ţess ađ foreldrar komiđ ađ lestrarţjálfun barna sinni, sérstaklega á yngri stigum.
Formađur félags grunnskólakennara á ađ rćđa allar ţćr stefnur, strauma og hugmyndafrćđi sem laumar sér inn í skólakerfiđ, án ţess ađ grunnskólakennarar fái rönd viđ reist. Stjórnendur bera ţar höfuđ ábyrgđ. Margir skólar sinna mörgum stefnum og hugmyndafrćđi og til ţess ţarf tíma ef vel á ađ vera.
Svona gćti ég haldiđ áfram, en formađur Félags grunnskólakennara virđist í felum, á bak viđ formann KÍ. Fađir minn sagđi stundum og mér datt ţetta í hug ţegar ég hugsa framtaksleysi formanns Fg. ,,Strjúkum kviđinn - elskum friđinn og gerum ekki neitt.
Á kennsluferli bloggara hafa ţrír forystusauđir veriđ í Félagi grunnskólakennara. Sá sem nú situr virđist illa hćfur til ađ tjá sig viđ fjölmiđla, miđađ viđ hve lítiđ hann tjáir sig um málefni kennara. Formađur KÍ á ekki ađ sjá um ţađ, hans hlutverk er annađ. Hann á ekki ađ tjá sig um málefni einstakra félaga en virđist sendisveinn fyrir formann Fg.
Stađreyndir sem ekki er hćgt ađ horfa framhjá, rćđa og leita lausna viđ. Fjölgun grunnskólanema byggir á börnum af erlendum uppruna en í dag eru ţau á milli 15-20% af öllum ţeim börnum sem stunda hér nám. Í sumum hverfum er stađan mun verri. Endar ţetta eins og í Danaveldi? Danir setja börn sín í auknu mćli í einkaskóla til ađ tryggja góđa menntun fyrir börn sín. Um fimmti hver nemandi var áriđ 2022 í einkaskóla. Víđa ríkir ófremdarástand í dönskum skólum.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.