Ráðist gegn tjáningarfrelsinu

J.K. Rowling hefur tjáð sig um hugmyndafræði trans-hreyfinga og merkilegt nokk eru það sömu skoðanir og bloggari hefur. Skoðanir sem segir ekkert nema sannleikann.

Las áhugaverðan pistil á síðunni norn.is. Í pistlinum stendur ,, Rowling segist ekkert hafa á móti transfólki en að hún hafi áhyggjur af því óheft frelsi til að skilgreina kyn sitt án íhlutunar hins opinbera kunni að verða misnotað og leiða til enn meiri hörmunga fyrir börn með kynáttunarvanda. Hún hefur einnig haldið því fram að til séu tvö líffræðileg kyn, karlkyn og kvenkyn og telur óþarfa nærgætni við transfólk að forðast að nota orðin karl og kona.“

Kennarar hafa sýnt að þeir þora ekki í umræðuna. Mörg hundruð kennara þegja frekar en segja eins og formaður Kennarasambandsins bað þá um. Einn og einn hefur rödd skynseminnar að leiðarljósi og lætur í sér heyra.

Í pistlinum segir líka ,, Ákvörðun Rowling er hárétt. Það er svivirðilegt að verðlaun og viðurkenningar séu notuð til þess að bæla niður frjáls skoðanaskipti og Rowling er jafn mikill velgjörðamaður barna þótt skoðanir hennar á kynjapólitík fari fyrir brjóstið á Kerry Kennedy. Rowling þarf ekki viðurkenningar frá kúgunarsamtökum til að vekja athygli á þeim málefnum sem hún styður og því síður sjálfri sér.“

Fyrir svona konum ber maður virðingu. Barátta fyrir að börn og konur fái að baða sig í friði án trans-konu með lífæri karlmanns er þess virði. Barátta fyrir að stúlkur fái að stunda íþróttir á jafnréttisgrunvelli við aðrar stúlkur, ekki trans-konu sem hafa styrkleik karlmanns, er þess virði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Fólk náttúrlega þorir ekki að gagnr+yuna trannana, því þeir hafa sýnt það í verki að þeir eru morðóðír.

Ásgrímur Hartmannsson, 7.11.2023 kl. 19:26

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Vandinn er rökræðan; það er aðferðafræði Frankfúrt skólans  (og Davos marxista) að fá fólk til að rökræða fáránlega hluti.

Við þurfum ekki að rökræða um kyn eða kynvitund; öll sú rökræða er geðbílun. Maður bendir á þann einfaldleika, og leyfir Marxistunum að tapa sér í geðveikri reiði og persónuárásum, því þannig afhjúpa þeir sjálfa sig, því þeir reiðast ekki yfir að þú sért þeim ósammála, heldur að sundrungar og rangsnúnings aðferð þeirra virkaði ekki.

Því næst þakkar maður kurteislega fyrir persónuárásirnar og svívirðingarnar og ofbeldishótanirnar og hatrið.

Guðjón E. Hreinberg, 7.11.2023 kl. 21:15

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

... rétt eins og með loftslagsbreytingar af mannavöldum; sýndu mér mælingarnar!

Guðjón E. Hreinberg, 7.11.2023 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband