Kennaranema bregður í námi, talað um mörg kyn

Það vita allir heilbrigðir menn að kynin eru tvö. Karl- og kvenmaður. Samt er reynt að koma því víða inn í kennaramenntuninni að kynin séu fleiri. Las góða grein eftir norskan kennaranema. Dytti einhverjum hér á landi í hug að láta svona frá sér fara  yrði hann miskunarlaust beittur skoðanakúgun af hluta stéttarinnar sem hann menntar sig inn í og fleirum í samfélaginu.  

Hann talar um lygarnar þrjár í greininni.

Fyrsta lygin er að andlegt álag geti skaðað - það er, Það beri að forðast. Eitt dæmi er að allir ættu að vera með í leiknum. Að vera með í leik er auðvitað mikilvægt, en getur líka haft óheppilegar afleiðingar. Börn geta misst möguleika á viðeigandi þroska ef fullorðnir, sem ætla sér allt hið besta, trufli leik og stjórni. Hluti barna verða ekki lengur fyrir nægilegum óþægindum svo sem stríðni, ýta og móðga, sem, samkvæmt Haidt, er nauðsynleg til að virka vel ásamt öðru. Vera kann að það sé óþægilegt að heyra þetta, en ætti engu að síður að upplýsa.

Hægt er að rugla börn um það sem þau sjá og upplifa, hulið vegna þess að það má ekki tala um mál og málefni sem geta verið óþægileg.

Við ættum, á skiljanlegan hátt, að segja börnum sannleikann um kyn; að 98-99 prósent af öllu fólki passar inn í litninga sem byggjast á tveggja kynja líkaninu, XX (kvenkyns) eða XY (karlkyns), og að allir fari í gegnum mismunandi kynþroska og upplifa kannski Ekki að vera annað hvort stelpa eða strákur, jafnvel þótt þau séu það líffræðilega.

En það er kannski auðveldara að segja að kynin séu fjölbreytileg heldur en að vera sá sem segir annað og vera sakaður um að vera uppfullur af hatri og fóbíu?

Önnur lygin er að við eigum að treysta tilfinningum okkar. Það þýðir að ef barni finnst einhver vera vondur, þá er hann vondur. Hefur þetta áhrif? Já því ósannindin gilda líka um tilfinningar sem tengjast kyni.

Kynjahugmyndafræðin skapar ýmis vandamál. Þriggja ára stúlku er sagt í leikskóla að hún megi vera hvaða kyn sem hún vill, og hún útskýrir síðan fyrir foreldrum sínum, þrjósk, að hún sé strákur. Stúlkan hefur nýlega orðið stóra systir, glímir við tengslin við móður en í staðinn eru tengslin við föður sterkari. Sjáum við mynstur hér?

Þriðja lygin er sú að lífið sé barátta góða og vonda fólksins. Ríkjandi kynjahugmyndafræði í dag, sem áður fékk ekki mikla athygli, stuðlar að pólun í samfélaginu. Blæbrigði hverfa, og nemendur segja mér að öruggasta leiðin er ekki að segja hvað þeir meina. Best að halda kjafti, annars eiga þeir á hættu að fá merkimiða á sig sem iðulega er gert við þá sem lúta ekki höfði og fylgja réttri hjörð.“

Lausleg þýðing á greininni er bloggara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband